Vikan


Vikan - 17.06.1982, Blaðsíða 24

Vikan - 17.06.1982, Blaðsíða 24
Ljósmyndakeppni Vikunnar 1982 Vikan efnir til Ijósmyndakeppni með glæsilegum vinningum. Fyrstu verðlaun eru Þar að auki veitum við 100 þátttakendum viðurkenningu fyrir þátttökuna með því nýja myndavélin Minolta X 700, önnur verðlaun Ijósmyndastækkari af gerðinni að senda þeim filmu frá Kodak! Beseler Printmaker 35 og þriðju verðlaun eru slides-sýningarvél, Liesegang Junior. Það er þvi til nokkurs að vinna. Að hika er sama og tapa - nú er um að gera að draga fram myndirnar - eða Ijósmyndavélina - og finna verðlaunamyndirnar. Ástin og voríð — þátttökureg/ur Þema Ijósmyndakeppni Vikunnar 1982 erÁSTiN OG VORIÐ. Innsendar myndir skulu geta boriðþann titil. Hver þátttakandi má senda allt að tíu myndir — svart/hvítar, litmyndir stækkaðar á pappír eða slides. Hverja mynd ber að merkja höfundi sínum svo útilokað só að rug/ingur geti átt sér stað. Æskilegt er að myndir séu ekki stærri en 24 x 30 og ekki minni en 13 x 18 sm. Myndirnar skulu sendar á ritstjórn Vik- unnar, Síðumúla 23, pósthólf 533, Reykjavík, fyrir 1. júlí 1982. Umslögin skulu merkt Ljósmyndakeppni '82. Dómnefnd velur þrjár bestu myndirnar. Vikan áskilur sér birtingarrétt á þeim myndum sem sendar eru í keppnina. Liesegang Junior eitt þekktasta merki slides-sýningarvéla, en eins og þeir vita sem komið hafa nærri Ijósmyndun eru engar myndir skarpari og skýrari en slidesmyndir. Með sýningarvél eins og Liesegang Junior getur þú varpað myndum þínum á tjald — eða vegg — og reglulega notið myndasýningarinnar. Liesegang Junior er handhæg sýningarvél og létt i meðförum. Hún er með 85 mm linsu og fjarstýringu. Hún er með hitafilter og lágþrýstikælingu til að vernda myndirnar og sleðinn rennur á einu spori. Þetta er kjörgripur til að eiga heima i stofu. Verð kr. 3.032. Kodakfilmurnar þekkja allir. Eru nokkrar betri? Printmaker 35 lipur og fyrirferðarlítill stækkari fyrir 35 millímetra filmur. Hægt er að fókusa með hvorri hönd sem er og auðvelt að hækka og lækka. Fljótlegt er að skipta um linsu, en standardlinsan er 50 mm f/3,5. Þetta er heppilegur stækkari fyrir þá sem vilja taka svarthvítar myndir og vinna þær sjálfir og einnig er auðvelt fyrir þá sem vilja koma litmyndum sínum á pappir að fá sér viðbótar „kit”, og jafnvel búnað til að stækka af allt að 6x7 sm filmu, og vera þannig komnir með það sem hugurinn gimist i hendurnar. Verðkr. 2.995. Verðlaunin eru: Minolta X-700 nýjasta Minoltan og ein magnaðasta myndavélin á markaðnum. Hún býður uppá þrjá möguleika: Algerlega sjálfvirkt prógramm — þú þarft ekki annað en stilla fjarlægðina og smella af. Sjálfvirka, stiglausa hraðastillingu. Þú velur ljósopið en myndavélin ákveður mesta mögulega tökuhraða algerlega sjálfvirkt. Eða ef þú ert langt kominn í listinni getur þú stillt hana þannig að hún verði algerlega handvirk og engin sjálfvirkni spilli fyrir þeim listrænu áhrifum sem þú vilt ná fram. Hvaða möguleika sem þú velur sérðu alltaf hvaða ljósop og hraða þú ert með, um leið og þú horfir í gegnum vélina. Auk þess minnir hún þig á ef þú hefur gleymt einhverju áríðandi stillingaratriði. Ef þú hefur eignast Minolta skipti- linsu síðasta aldarfjórðunginn eða svo getur þú notað hana á X-700 — þeir hjá Minolta eru ekki að skipta um „bayonet" bara til þess að þú þurfir að kaupa nýja linsu. Verðkr. 6.604. Vertu með -fáðu filmu frá KODAK 14 Vlkkn 24. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.