Vikan - 17.06.1982, Blaðsíða 30
Texti: Árni Daníel
„ERUMEKKINÝBYLGJU-
HLJÓMSVEIT"
Nýjar bylgjur frá Fræbbblunum
I litlu húsi bak viö Morgunblaös-
höllina var viötaliö tekiö. Ástæöa: Ný
LP-plata meö Fræbbblunum.
Poppþéttar melódíur í rokkréttu
samhengi/í kjölfar komandi
kynslóöa/Fræbbblarnir munu landiö
erfaheitir platan.
— Heföi ekki eitt nafn nægt?
— Viö fundum ekkert eitt nafn sem
við vorum ánægöir meö svo við
ákváöum að hafa þrjú.
Platan fær umsögn eöa dóm eöa eitt-
hvaö slíkt annars staöar á síöunni, sjá
þaö. Hún sýnir fram á mótsögn í hug-
myndum margra um Fræbbblana.
Þrátt fyrir aö margir hafi talið hljóm-
sveitina lélega, meölimina slæma
hljóðfæraleikara og svo framvegis
hefur hljómsveitin alltaf veriö mjög
melódísk, reyndar sú melódískasta af
nýju íslensku hljómsveitunum.
Fræbbblarnir semja vel uppbyggö
popplög sem er meira en hægt er aö
segja um ýmsar aðrar hljómsveitir.
Þeim mun undarlegri er sú fæö sem
ýmsir hafa lagt á hljómsveitina hingaö
til. Þaö gæti breyst eftir nýju plötuna.
I Fischersundinu eru allir Fræbbbl-
arnir staddir, Valli söngvari, Stebbi
trommuleikari, Steinþór bassaleikari,
Kiddi gítarleikari og Hjörtur Howser
hljómborösleikari. Þrír þeir fyrst-
nefndu hafa mótaö Fræbbblahljóminn,
sérkennilegt samband popps og pönk-
rokks. Kiddi og Hjörtur eru tiltölulega
nýbyrjaöir, sérstaklega Hjörtur.
Þeir leggja áherslu á aö Fræbbbl-
arnir séu ekki nýbylgjuhljómsveit.
— Viö erum fyrst og fremst popp-
rokkhljómsveit. Viö viljum segja skiliö
viö nýbylgjuhugtakiö, viö spilum
okkar eigin músík en fylgjum ekki tísk-
unni.
Fræbbblarnir segjast halda aö ef
þeir heföu byggt upp ákveöna ímynd
heföu þeir náö lengra. Ég spyr hvort
þeir hafi ekki einmitt mjög ákveöna
ímynd?
30 Vikan 24. tbl.