Vikan


Vikan - 27.10.1983, Page 6

Vikan - 27.10.1983, Page 6
Jean Lanning með tvo íslenska vini: Tinna og Sunnu. Þeim batnar fyrr sem eiga hund — segja læknar í Bretlandi, að sögn Jean Lanning hundadómara sem hér var stöddfyrir nokkru „Það líður varla sú vika aö ég dæmi ekki hunda og á sumrin dæmi ég oft á tveimur til þremur sýningum í viku,” segir Jean Lanning hundadómari, sem dæmdi hunda á hundasýningu Hundaræktarfélagsins í Félags- garði í Kjós nú nýverið. „Sýningin hérna var svipuö sýningum þeim sem ég hef dæmt á annars staðar. Nú dæmdi ég þó aðeins um 80 hunda en í Englandi eru sýningar aö minnsta kosti einu sinni í viku einhvers staðar og hundafjöldinn er þetta frá 250 og allt upp í 12 þús- und á stærstu sýningunum, eins og Cruffs sýningunni sem haldin er á hverju ári í Earls Court í London. Sú sýning stendur líka í þrjá daga,” segir Jean Lanning. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jean Lanning kemur til Islands. Fyrst kom hún hingað árið 1967 og hafði hér skamma viðdvöl á leið sinni til Bandaríkjanna. „Mark Watson, Islandsvinurinn sem gaf hingaö Dýraspítala Watsons, hvatti mig til að koma hér viö í þaö skipti. Ég átti íslenska tík sem ég hafði fengið eftir krókaleiðum frá Watson sjálfum, en hann var þá fyrir löngu farinn að rækta íslenska hunda. Ég hafði líka hitt Sigríði Pétursdóttur á Olafs- völlum sem barist hefur ötullega fyrir því að bjarga íslenska hundinum frá því aö deyja út og var farin að rækta hunda þegar þetta var. I þessari fyrstu heim- sókn minni hingað hitti ég Sigríði aftur og fleiri áhugamenn um ís- lenska hundinn. Islenski hundur- inn er af einu elsta hundakyni heimsins, yfir 1000 ára, og því er mikilvægt að hann deyi ekki út. Sigríður hefur lagt á sig mikla vinnu til að viðhalda og bæta stofninn og í byrjun hafði hún ekki úr miklu að moða hvað hunda snerti. Hingað fékk hún þó með leyfi yfirvalda tvo hvolpa frá Watson, tík og hund, og með þessu 6 Vikan 43. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.