Vikan


Vikan - 27.10.1983, Page 9

Vikan - 27.10.1983, Page 9
Perla Mjöll, stássleg púðla. Birta, skrautleg cavalier king Charles spaniel, Abba (sjá fleiri myndir), labrador, og Tumi, golden retriever. eins og great dane kosta um 250 pund (10.500 kr.). Þaö er kostnaðarsamt aö rækta góöa hunda. Þaö er mikiö í kringum ræktunina og tæpast hægt að rækta hunda fyrir minni peninga en þetta. Annars eru til menn sem nefndir eru Puppy-farmers,- hvolpabændur. Þeir leggja allt upp úr aö framleiða sem mest og ódýrast en kaupi menn hunda af þeim getur sparnaðurinn fljótlega horfið í ófyrirsjáanlegan kostnað því að oft koma frá þeim veiklaðir og lélegir hundar sem þurfa á ýmsu að halda sem heilbrigðir og vandlega ræktaðir hundar þurfa ekki.” Við spurðum Jean Lanning að því hvað henni fyndist um hunda- ræktina á Islandi og kom fram hjá henni að það myndi erfiðleikum bundið fyrir íslenska hundaeig- endur að bæta hundastofnana hér nema til kæmi leyfi til innflutnings á hundum annars staðar frá til þess að bæta kynin sem fyrir eru. „Mér finnst að íslensk stjóm- völd ættu að leyfa að fluttir yrðu inn fáeinir hundar ef fólk óskaöi eftir því. Ég held að hér sé fyrir hendi sannur áhugi á hundum og ekki er hægt að halda áfram rækt- un án þess að fá nýtt blóð. Ef út í innflutning yrði farið er ekki hægt að fá hunda frá öruggara landi en Bretlandi. Þar er ekki hundaæöi og þar höfum við einangrunar- stöðvar. Hundamir okkar eru seldir um allan heim og alls staðar eru menn ánægðir með að fá þá. Þeir eru sprautaðir gegn þeim sjúkdómum sem hætta getur verið á að þeir fái og heilbrigðiseftirlit með þeim er fullkomið og strangt. Ég get nefnt sem dæmi hvemig háttað er hundainnflutningi til Nýja-Sjálands. Reglur eru um að hundur skuli vera í 30 daga „hús- einangrun” sem þýðir að hann verður að halda sig heima við fyrst eftir að hann kemur inn í landið. Eigendurnir verða að sjá til þess að hann komist ekki í snertingu við aðra hunda á þessu tímabili og fara verður með hundinn til dýralæknis með ákveðnu millibili svo að hann geti fylgst með honum og ábyrgst að allt sé meö felldu. Bandaríkja- menn hlæja annars að Bretum vegna þess hve strangir þeir eru og halda fast við 6 mánaða ein- angrunarregluna þegar hundar eru fluttir til landsins. Þeir segja að hundaæði sé nær óþekkt í hús- dýrum sem vel er hugsað um og litið eftir. Það eru helst dýr sem koma frá Afríku og Indlandi, hundar og kettir, sem geta flutt með sér hundaæðiö.” Dómarar eru ekki alltaf vin- sælir, líklega sama hvort þeir dæma hunda eða menn. Jean Lanning segir okkur að lokum skemmtilega dómarasögu, sem hundadómarar hafa gaman af aö segja. Það gerðist eitt sinn að Lykla-Pétur og Skrattinn hittust og vildu hressa eitthvað upp á til- veruna. Þeim datt í hug að rétt væri að þeir efndu til hundasýn- ingar. Sýningin var ákveðin en Lykla-Pétur fór að fá bakþanka og sagði við Skrattann að verst væri að úrslitin væru líklega ráðin fyrirfram, því að sjálfsögðu væru allir bestu hundarnir í himnaríki. Skrattinn glotti og svaraði: Hafðu ekki áhyggjur, allir bestu dómaramir eru niðri hjá mér. Og þar með voru úrslit þeirrar sýningar ráðin. Tha Te King, pekinese. 43. tbl. Vikan 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.