Vikan


Vikan - 27.10.1983, Blaðsíða 23

Vikan - 27.10.1983, Blaðsíða 23
 Frœnkan frá Ameríku og ömmu. Vináttuböndin höföu styrkst gegnum árin og náðu nú einnig til foreldra minna. Og vegna þessara tengsla og vegna þess aö ég var ein í París buöu þau mér öðru hverju í tilkomumikla íbúöina sína nálægt Höllinni. Þau komu úr gjörólíkum heimi og þeg- ar ég fór í heimboð til þeirra haföi ég þaö alltaf á tilfinningunni að ég væri þátttakandi í kvikmynd. Það brást heldur ekki í þetta skipti. Stórbrotið hlaöborð í blómum skrýddri stofunni og kampavíniö flóöi. Fjöldi manns var þegar kominn, fólk á þeirra aldri, glæsi- legt fólk og sumir jafnvel yfir- drifnir, því Monsieur Katcharoff var kvikmyndaframleiðandi. Stundum bauö hann til sín kvik- myndastjörnum, leikhúsfröm- uðum eöa smástirnum sem dreymdi um frægð og frama. Ég þekkti ekki hræöu — að und- anskildum Katcharoff-hjónunum — en það hafði ekki aftraö mér frá að þiggja boðið. Mér leið eins og mölflugu sem dregst ómótstæði- lega að ljósadýrðinni. Þetta kvöld stóð Monsieur Katcharoff, smókingklæddur að vanda, og ræddi við hóp af viröu- legum mönnum. Konan hans sveif á móti mér með útbreiddan faðm- inn. „Elsku Brigitte mín, hvaö ég er glöð að sjá þig,” hrópaði hún og errin rúlluðu uppi í henni. Hún var rúmlega sjötug en var þó enn mjög falleg í brydduðum rauðum kjól. Vitanlega hafði tíminn mark- að sín spor i andlit hennar en hún var gædd þvílíkum þokka og krafti að enginn gat sagt með hreinni samvisku að hún væri gömul. Hún hristi höfuöið svo að vandlega lit- aöir logarauðir lokkarnir dönsuðu og lagöi hringum prýdda höndina á handlegginn á mér. „Hvað segirðu þá gott, ljúfan mín?” „Ekkert sérstakt, Madame,” svaraði ég brosandi. Hún hristi enn höfuðið. „En sú synd og skömm að svona falleg, ung stúlka skuli enn vera ógift. Þú ættir að hitta einhvern ín- dælan pilt sem gæti gert þig ham- ingjusama.” Ég reyndi að halda brosgrett- unni og hún hélt áfram að kvelja mig. „Svona, vertu nú dálítið lífleg. Ef þú ætlar að sigla hálfsofandi gegnum lífið verður þér ekkert ágengt.” Hún óð úr einu í annað en spuröi svo allt í einu: „Hefurðu hitt Marie-Claire?” Ég sperrti brýnn- ar. „Marie-Claire? Áttu við hana frænku mína?” „Aö sjálfsögðu. Um hverja aðra Marie-Claire ætti ég að vera að tala? ’ ’ ansaði hún óþolinmóð. „Er hún hér?” spurði ég undr- andi. „ Já, svo sannarlega. Hún er ný- komin frá Bandaríkjunum og hefur aldrei verið jafnfalleg og hrífandi.” Ég beit saman vörunum. Marie- Claire var frænka mín og jafn- aldra, þremur mánuöum yngri. Ég hafði aldrei þolað hana og það var víst örugglega gagnkvæmt. Allar götur síðan við vorum fjög- urra eöa fimm ára höfðum við verið eins og hundur og köttur. Við vorum keppinautar í skólanum og þó að viö slitum bamsskónum tók þessi eilífa samkeppni bara á sig annan blæ. Marie-Claire hafði ill- girnislega ánægju af að tæla stráka sem höfðu áhuga á mér — haföi heldur aldrei mistekist! Hún var óþolandi falleg og greind í þokkabót. Ef einhver strákur sá okkur saman sneri hann sér um- svifalaust að henni. Og hún kunni líka að snúa sinni snældu með gáfulegum innskotum og heillandi brosi. Ég dró mig inn í skelina, ákveðin í að láta sem ég vissi ekki af þessari stórkostlegu frænku minni. Feimni mín og óframfærni voru að miklu leyti sök Marie- Claire. I stuttu máli sagt var þaö henni að kenna að mér hafði aldrei tekist að losa mig viö minnimátt- arkenndina sem ég hafði burðast með síöan ég var stelpa. Þegar hún fór til New York eða, eins og hún vildi kalla það, var boðin ritstjórastaöa hjá þekktu tískublaði, hafði ég dregið andann léttar. Eg var viss um að þegar frænka kær væri farin gæti ég far- ið að láta ljós mitt skína. Það var þá helst! Ég var algerlega von- laus í gleðskap. Aldrei gat ég fund- ið neinar skynsamlegar athuga- semdir og aldrei hafði ég verið eins einmana eða lagt á mig jafn- mikið erfiði til einskis. Stöku sinnum neyddi ég sjálfa mig til að fara til Katcharoffhjón- anna þegar þau voru svo hugul- söm að bjóða mér í kokkteilboð eða kvöldverð, eins og þau höfðu gert núna. Ég var gagntekin því einkenni- lega hugboði að það yrði hjá þeim sem ég kynntist mínum tilvon- andi. Ég sagði svo sem við sjálfa mig að ég væri ímyndunarveik. Hverjum þessara vel til höfðu, kærulausu menntamanna ætti að detta í hug að líta tvisvar á hana litlu mig? Litla, feimna og ein- mana ritarann. Madame Katcharoff stýrði mér í áttina að langborðinu. „Fáðu þér nú svolítið kampavín. Það lappar alltaf upp á sjálfstraustið.” Ég blóðroðnaði. Þrátt fyrir fyr- irferöina og asann hafði Madame Katcharoff séð nákvæmlega hvað klukkan sló. „Það er með endem- um að þið frænkurnar skulið vera svona ólíkar,” blaðraöi hún. Einn þjónanna spratt upp úr gólfinu og andartaki síðar stóð ég með kampavínsglas í hendi. Hús- freyjan varð að fara að sinna öðrum gestum. Hún gat ekki hang- ið allt kvöldið yfir mér svo að hún gómaöi herramann nokkurn um fimmtugt með grásprengt hár og spurði: „Alexandre, þekkirðu hana Brigitte Amselin? ” Maðurinn hneigði sig lítillega. „Eg held ekki,” svaraði hann. „Hún er ein af okkar kæru vin- konum. Við þekkjum foreldra hennar vel og einnig afa og ömmu. Þau voru svo yndisleg við okkur þegar við komum til Frakklands. ’ ’ Að svo mæltu snerist hún á hæli og fór aö taka á móti fleiri gestum. Mannvesalingurinn, sem hún hafði aðeins kynnt aö fornafni, fann sig knúinn til að reyna að halda uppi samræöum. „Jæja, svo þú þekkir Katchar- offhjónin? Hefur kannski þekkt þaulengi?” „Síðan ég var smástelpa.” „Mjög svo viðkunnanleg hjón. ” „0, já.” Ég roðnaði yfir aum- ingjalegum svörum mínum. Hvað gat ég sagt sniðugt við þennan mann sem ég sæi trúlega aldrei aftur? Hann svipaðist um. „Þetta er mjög falleg íbúð, finnst þér ekki? Og svo smekklega innréttuð. ” „Einmitt.” Skyndilega birti yfir andliti hans. „Bíðum nú við. Kemur þá ekki Francois!” Svo beindi hann orðum sínum til mín. „Þetta er bróðursonur minn. Þetta er í fyrsta skiptið sem hann kemur til Katcharoff og ég ætla að sjá um aö hann kynnist hér fallegri stúlku.” Maður um þrítugt tók stefnuna til okkar. Ég fékk dúndrandi hjart- slátt þegar ég leit þennan myndar- lega ljóshæröa mann. Hvers vegna í ósköpunum hrukkaði hann ennið svona? Aldrei hafði nokkur karlmaður haft önnur eins og því- lík áhrif á mig. „Þetta er hann, sá eini rétti, sá sem ég hef beðið eftir öll þessi löngu ár!” söng ég innra meö mér í sæluvímu. Ég var frá mér numin af fögnuði og roðinn flæddi yfir andlit mitt. Það var þá sem ég tók eftir stúlkunni sem var með honum. Ég glennti upp augun af undrun. Þetta var engin önnur en Marie-Claire, frænka mín. . . Hún var klædd í nýtískulegan kjól meö háum klaufum í hliðun- um. Hárið, sem annars var skol- leitt, var oröið ljóst. Hún var óað- finnanlega snyrt og reykti yfirlæt- islega sígarettu í löngu munn- stykki. Snögglega rann það upp 43. tbl. Vikan 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.