Vikan - 27.10.1983, Side 50
Eldhús
Vikunnar Umsjón: Borghildur Anna
Paprika í öll mál
Stundum er víst alveg bannað að
birta gómsætar uppskriftir að við-
bjóðslega fitandi réttum því það gæti
freistað hinna bústnu um of. Þetta er
ein af þeim stundum sem samviskan
býður að styðja þá veiklyndu í bar-
áttunni við óæskileg aukakíló og við
ráöleggjum paprikuát á næstunni.
Hafi eitthvað ægilegt gerst sem
hindrar framkvæmdir, svo sem að
paprika reynist ófáanleg þegar þetta
birtist, er eina ráðið að geyma
Vikuna á góðum stað og draga síðan
fram leynivopnið við betra tækifæri.
En paprikan er annars viðurkennd
sem góður og hollur matur, stútfull
af bætiefnum og öðru bráðhollu.
Fyrir utan að gera má úr henni alls
kyns lostæti er alls ekki bannað að
sporðrenna henni gersamlega ein-
tómri — en í slíkt át er yfirleitt sú
gula heppilegust — nema menn vilji
bragðsterkari gerðirnar. Og þá er að
vinda sér í uppskriftirnar tvær,
karnski best að byrja á þeirri auð-
veldari sem hentar þegar tíminn er
af skornum skammti.
Hakkhúsið mikla
Takið vænan skammt af hakki
(nauta-, kinda-, kálfa- eða svína-
hakki) og steikið á pönnu. Kryddið
að vild, til dæmis með hvítlauk og
paprikudufti. Skerið þversum ofan
af paprikunni, um það bil tvo
sentímetra, og takið kjarnann úr.
Fyllið með hakkinu, lokið með
afskorna hluta paprikunnar og hitið
stutta stund í ofni. Gerið ráö fyrir
einu slíku „húsi” á mann og með má
hafa brauð fyrir þá horuðu en hrá-
salat fyrir þá af bústnari geröinni.
Röndóttur Meatloaf
Einhver sagði okkur að þetta væri
uppáhaldsmatur goðsins eina og við
seljum það jafndýrt og við keyptum.
En í hleifinn þarf:
3 /4 bolla hvítvín
2/3 bolla mjólk
3 msk. minced onion — gróft lauk-
krydd
3 /4 tsk. rósmartn
1 /4 tsk. þurrkað dill
3 tsk. salt
1 /4 tsk. pipar
3 egg, þeytt eða hrærð
1/2 bolla tómatsósu
1—1/2 bolla brauðmola
1 kg kjöthakk
Ofan á skal setja sinnep, pikklis og
tómatsósu.
Blandið saman víni, mjólk, jurta-
kryddi, salti, pipar, eggjum, tómat-
sósu og brauðmolum. Látið jafnast
og blandið vandlega saman viö kjöt-
hakkiö. Breiðið yfir og látið standa í
um það bil eina klukkustund til að
jafnast. Mótið í kjöthleif og setjið í
grunnt eldfast fat. Mótið þrjú djúp
för langsum með hnífskafti og bakið
í ofni í 40 mínútur við 200° C. Takið
úr ofninum og fyllið skorurnar með
sinnepi, pikklis og tómatsósu. Bakið
í fimm mínútur og berið fram heitt
eða kalt.
50 Vikan 43. tbl.