Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 8
Framundan nefinu á greinarhöfundi (og
flestra mynda) glittir í Clovelly þorpið. Á
ströndinni grillir í hafnargarðinn.
Úti fyrir hafnargarðinum lá einn bátur, mjög
vel búinn lífbátur sem þjónar norðurströnd
Devon sýslunnar sem er vestast í Englandi.
íslensk fjallgöngufól hafa ekki
mikið fyrir bröttugötum litla
þorpsins Clovelly. En samt hvarflaði
svo sem að manni, yfir þykka
Devonrjómanum, með sultu og
skonsum, að íbúar þorpsins hlytu að
hafa vel þroskuð læri. Stelpan sem
bar rjómann á borð var að minnsta
kosti blómleg og kát — stökk um eins
og hind.
Clovelly-þorpið veit á móti norð-
austri og er því alltaf í skjóli fyrir
hinni vondu vestanátt sem stundum
puðrar stormum yfir Devon-sýsl-
una. Sjómenn hafa alltaf fundið sér
gott skjól í Clovelly-víkinni, öldum
saman. Þessi veðursæld í þorpinu og
nánasta umhverfi hefur gert að
verkum að þarna vaxa og dafna ótal
jurta- og viðartegundir — þetta er
sannkallaður skrúðgarður.
Sjálfsagt hefur þetta smáþorp
verið við lýði löngu áður en
nokkrum manni datt í hug að stefna
Fiskimennirnir dytta að netum og bátum
á fjörunni. Áður var Clovelly mikill síld veióibær
en á síðustu áratugum hefur dregið úr fiskveiðum.
skipi sínu á íslandsmið. Minjar um
rómverska byggð hafa fundist
skammt frá Clovelly og segja sumir
að nafnið sé af rómverskum rótum:
Clausa Vallis, sem má útleggja
frjálslega að þar sé skrúðgarður
umluktur hömrum.
Clovelly hefur öldum saman verið
í einkaeign og þakka þorpsbúar
gamalhúsa-menninguna konu nokk-
urri, Christine Hamlyn, að húsin
hafa varðveist svo vel sem raun er á.
Hún lét endurbyggja flest húsin á
síðustu öld og þessari (1884-1936).
Þeir sem láta sér detta í hug að
heimsækja Clovelly ættu að reikna
með heOum degi í það minnsta (það
er eitt hótel í bænum), bæði vegna
þess að þar er margt að sjá og skoða
og líka vegna þess að rétt er fyrir
suma að fara sér hægt. BOa verða
nefnilega allir að skOja eftir uppi á
efstu brún.
Horft frá hafnargarðiniim
á háfjöru
- eina vatnið var í poliinum.
Sumir bátanna eru í hvarfi
við brúnina á steingarðinum.
Clovelly-þorpið er lagt steinhnullungum að
mestu leyti, auk þess sem hnullungarnir
eru nntaðir í vmis mannvirki.
8 Vikan 1. tbl.