Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 24
Heimiliö
Efni:
Spónaplata, 19 mm þykk, 240 x 122 cm
19 mm kúptir kantlistar
280 cm af 3 x 5 cm furulistum
trélím, tréfylliefni, grunnmálning, lakkmáln
ing, mött eða glansandi
1 1 /4 tommu naglar
1 1/4 tommu, nr. 6, skrúfur í tré
3 tommu, nr. 8, skrúfur í tré
Byrjað er á því að saga út burðarkrossinn
(mynd 1). Sagiö 80 cm langar og 26 cm breið-
ar plötur. Sagiö út raufar til þess aö festa plöt-
urnar saman og límið með trélími.
Sagið út 80x80 cm boröplötu og botn. Sagið
kúptu kantlistana til, sagið geirung á hornin
(45° skáa) (mynd 2). Berið lím á kantana og
neglið meö litlum nöglum, en rekið þá í fyrstu
atrennu aöeins inn til hálfs. Berið plötuna við
burðarkrossinn og neglið naglana alveg inn ef
allt fellur rétt saman.
Límiö boröplötuna við burðarkrossinn og
negliðsíðan (mynd3).
Sagið út hliðarnar, 40x26 cm, og festiö
kantlista á annan mjórri endann á hverri
plötu. Snúið borðinu viö, límið og negliö hliö-
arnar viö brúnir burðarkrossins, að sjálf-
sögöu þann enda sem kantlistinn er ekki á
(mynd 4). Snúiö borðinu aftur rétt og negliö
gegnum plötuna.
Sagið út undirstööurnar, 70 cm langa 3x5
cm furulista.
Sagið geirung á hornin (45° skáa). Borið 1,5
mm göt, límið hornin saman og skrúfið með 1
1/4 tommu skrúfum.
Límiö og skrúfið undirstöðurnar við botninn
(mynd 5). Borið og skrúfið með 3 tommu
skrúfum.
Festið botninn og undirstöðurnar viö boröið
meö lími og nöglum.
Snúið borðinu rétt. Rekið alla nagla og
skrúfið allar skrúfur á kaf. Feliö með tréfylli-
efni. Þegar það er orðið þurrt er pússaö yfir
allt borðiö með meöalgrófum sandpappír.
Berið grunnmálningu á. Pússið með sand-
pappír þegar hún er oröin þurr og málið að
síðustu með hálfmattri eða glansandi lakk-
málningu.
24 Vikan I. tbl.