Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 50
Fjölskyldumál
Batnandi manni
er best að lifa
Fyrir flesta eru áramót alveg sárstök. Flestir búast við að finna
alveg sárstaka tilfinningu á þessum tímamótum. Gamla árið líður
undir lok og nýja árið blasir við eins og óskrifað blað. Eins og á jólum
tengjast áramótin gjarnan fjölskyldunni og nánustu vinunum, þeim
sem maður hefur eytt gamla árinu meó, súru og sætu.
Gamlárskvöld
og gamlar hefðir
Flestir vilja hafa gamlárskvöld-
iö með alveg sérstökum blæ.
Margir vilja halda gamlárskvöld-
iö hátíðlegt meö matseðli sem er
sá sami ár eftir ár.
Á íslandi gegnir sjónvarpiö
mikilvægu hlutverki við að kveðja
gamla árið. Fjölskyldan safnast
gjarnan saman og horfir á inn-
lendan og erlendan annál ársins
sem er aö líða. Þá rifjast upp ótal
atburðir, stórslys, hamfarir og
stjórnmálaatburðir sem tilheyra
þessu ári í minningunni. Síðan er
„skaupið” þar sem gert er grín og
glensað margt um menn og mál-
efni. „Skaupið” er ætíö viðkvæmt
mál á heimilum. Það getur verið
mikið tilfinningamál hvort árinu
eru gerö góð eða vond skil. Það
eru miklar kröfur gerðar á
gamlárskvöld, ekki bara til sjón-
varps heldur líka til þeirra
skemmtana sem efnt er til. Þær
eiga að heppnast vel af því að
gamlárskvöld er svo sérstakt.
Þær hefðir sem taldar eru
ómissandi af mörgum eru að
hlusta á forsætisráðherra og út-
varpsstjóra rétt í þann mund sem
áriö er aö hverfa út í blámann.
Þaö er mikilvægt að þeim mælist
vel.
En það eru ekki bara fjölmiðlar
sem gera yfirlit yfir árið sem er að
líða. Margir hafa þann sið að líta
yfir dagbækur og bréf ársins og
hugsa um leið til baka.
Árið sem aldrei kemur
til baka
Þegar klukkan fer aö nálgast 12
á gamlárskvöld verða margir við-
kvæmir og fyllast eftirsjá. Það er
svo óafturkallanlegt og margir fá
alveg sérstaka tilfinningu við það
að finna að ekkert stöðvar tímann.
Stundum finnst þá manninum
hann verða lítill gagnvart máttar-
völdunum.
Ef árið sem er að líða hefur haft
í för með sér miklar breytingar,
þannig að lífið hefur tekið nýja
stefnu, verða minningarnar
sérstaklega áleitnar. Þeir sem
orðið hafa fyrir áföllum á árinu, til
dæmis vegna nýafstaðins
skilnaöar eða dauðsfalls í fjöl-
skyldunni, eiga sérstaklega erfitt.
Árinu er að ljúka og staðreyndirn-
ar blasa við. Þá getur verið erfitt
að byrja nýja árið og gleðjast með
hinum.
Að byrja nýja árið
Þegar flugeldar og sólir hafa
borið þakkir og kveðjur til gamla
ársins og „Nú árið er liðið” hefur
hljóönað er hægt að taka til við að
heilsa nýja árinu með flugeldum,
blysum og kossum. Þá kemur
gjarnan glaðlegur svipur á marga
og áramótagleðin tekur nýja
stefnu. Nú á að fagna nýju ári með
gleði og bjartsýni, eftir hátíðleika
og virðulegar kveðjur til gamla
ársins rétt áður. Það er því oft
ekki fyrr en daginn eftir sem
margir fara að velta því fyrir sér
hvaö nýja árið komi til með að
bera í skauti sér.
Nýtt ár — nýtt líf?
Þegar árið er að hefjast finnst
mörgum þeir standa andspænis
lífinu eins og dálítið upp á nýtt.
Flestir hafa þörf fyrir að spá í það
óþekkta. Hvað kemur þetta ár til
með að bera í skauti sér fyrir
mig? Ætli þetta verði gott ár eða
erfitt og leiðinlegt?
Dagblöð og tímarit birta
gjarnan spár af ýmsu tagi þar
50 Víkan 1. tbl.