Vikan


Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 35

Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 35
Tff Draumar Alblóðug eftir kríu Kæn draumráðandi. Fyrir stuttu dreymdi mig draum sem ég bef hugsað mikið um síðan og langar til að fá ráðinn. Hann var þannig: Mér fannst ég sitja í fjöru við lygnan fjörð, alveg niðri við sjó, en ekki kannaðist ég við þennan stað. Þarna voru fjórir menn sem ég þekki, föður- bróðir minn og tveir synir hans og strákur sem ég kannast lítillega við, einnig tveir aðrir menn sem ég þekkti ekki. Mér fannst eins og þeir væru að æfa sig að skjóta af rifflum en samt ekki með neitt ákveðið skotmark t huga. Við há- vaðann frá rifflunum fældust kríur sem voru úti á firðinum og flugu upp með miklu gargi. Ein krían gerði sér lítið fyrir og gogg- aði í bakið á mér. Eg reyndi að hrista hana af mér en tókst ekki. Þá kom sá sem ég kannast við og fældi fuglinn burtu og hélt ég nú aðþessi ósköp væru á enda. Eg var orðin illa leikin eftir fuglinn og blæddi nokkuð. En þá kom fuglinn aftur og réðst aftan að mér og tókst mér ómögulega að losna við hann. Kunningi minn reyndi að hjálpa mér en ekkert gekk. Það síðasta sem ég man áður en ég vaknaði var að ég var öll al- blóðug og bakið á mér sundurhöggvið eftir krí- una. Mennirnir sem voru þarna virtust ekki taka eftir neinu og enginn sagði orð, ekki heldur ég né kunningi minn. Með fyrirfram þökk, 2555. Þessi draumur er fyrir- boði óvæntra og þrálárra veikinda. Gangur þeirra mun verða svipaður og árásir kríunnar í draumn- um. Þú munt um stund vinna bug á þeim en þau munu herja á þig á nýjan leik. Tæplega er hægt að telja að þessi veikindi séu stóralvarleg en þér mun þykja nóg um afskiptaleysi annarra og sjálfsagt muntu einnig eiga einhverja sök á því og jatnvel ekki láta vita af vanlíðan þinni fyrr en í síðustu lög. Ekkert bendir til að þú náir þér ekki eftir þetta veikindabasl og blessuð reyndu að berjast gegn þeim, það ætti að vera hægt. SPÁIÐ í ÁRIÐ 1984 Nú eru þær komnar á íslensku, upplýsingarnar um lagnir og lestur úr TAROTspáspilunum. Eftirtalin spil fyrirliggjandi: RIDER OSWALD WIRTH ALEISTER CROWLEY O.FL. ÓTAL ERLENDAR BÆKUR. Aldrei meira úrval. Við sendum í póstkröfu. Hringið og látið okkur hjálpa ykkur við valið. Hjá Magna Laugavegi 15 Sími 23011 1. tbl. Vikan 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.