Vikan


Vikan - 05.01.1984, Page 22

Vikan - 05.01.1984, Page 22
Ein af áberandi þokkadisum kvik- myndanna er Nastassia Kinski sem sumir muna eflaust úr Tess. Sagt hefur verið um Nastassiu að hún hafi andlitsfall Ingrid Bergman, var- ir Brigitte Bardot og persónuleika Katharine Hepburn. Hún er fædd og uppalin i leiklistarbransanum, dóttir þýska leikarans Klaus Kinski. Hún var mjög ung þegar hún lék í fyrsta sinn. Það var hlutverk heyrnarlausrar og mállausrar stúlku i kvikmyndinni Wrong Movement. Þegar Nastassia var 15 ára hitti hún leikstjórann Roman Polanski i samkvæmi. Hann var þá 42 ára og átti að baki frægar kvikmyndir eins og Rosemary's Baby og Repulsion. Einkalífið hafði verið honum erfitt því eiginkona hans, Sharon Tate, var sem kunnugt er myrt barns- hafandi á svivirðilegan hátt. Siðar þurfti Polanski að flýja til Frakk- lands undan hugsanlegum fangelsisdómi fyrir að hafa lagt lag sitt við 13 ára stúlku. Polanski féll þegar i stað fyrir stúlkunni Nastassiu og hún fyrir honum og með þeim tókst ástar- samband sem hneykslaði menn mjög. Sambandið varaði þó ekki lengi og því var lokið þegar Nastassia hóf leik i kvikmyndinni Tess. Polanski er sagður hafa mót- að Nastassiu mjög og verið henni sem prófessor Higgins Elisu. i það minnsta átti hann stærstan þátt i að gera stúlkuna heimsfræga. Síðan hefur Nastassia leikið i Cat People og One from the Heart. Nýjasta mynd hennar heitir Exposed undir stjórn James Toback, en mótleikari hennar þar er ballettdansarinn Rudolph Nureyev. Nastassia hefur aldrei fengið sér- lega merkilega dóma fyrir leik. Hún þykir á hinn bóginn einstaklega fögur og kynþokkafull. Hún er ekk- ert feimin við að láta mynda sig fá- klædda i tælandi stellingum, þó án þess að misbjóða velsæminu. Næsta mynd Nastassiu sem tekin verður til sýninga er The Hotel New Hampshire með Jodie Foster og siðan mun hún leika á móti Dudley Moore í rómantiskri kvikmynd sem nefnist Unfaithfully Yours. Nastassia Kinski og Jodie Foster leika saman í kvikmyndinni The Hotel New Hampshire. Þcer eru líka mjög góðar vinkonur fyrir utan hvíta tjaldið. Nastassia er eftirsótt fyrirsœta og hefur meðal annars prýtt forsíður Vogue og fleiri heimsþekktra blaða. Nastassia Kinski þykir bæði fög- ur og kynþokkafull.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.