Vikan


Vikan - 05.01.1984, Síða 29

Vikan - 05.01.1984, Síða 29
Tilraunasvæði Rússa Ekki eru Bandaríkin ein um að prófa eldflaugar. Sovétmenn hafa sitt tilraunasvæði og reyndar hafa gengið um það sögur að þeir hafi skotið niður kóresku farþega- þotuna 007 í september síðastliðn- um vegna þess að á þeim slóðum hafi þeir einmitt í þeirri andrá verið að flugprófa nýja eldflaug sem gengur undir nafninu PL-5. Nákvæmar upplýsingar um flugið frá Vandenberg-herstöðinni til Kvajalein liggja ekki á lausu. En samt er vitað að oftast er verið aö prófa gæði eldflauganna — gæðaeftirlit. Herforingjarnir vilja vita hvort eldflaugarnar virka eins og til er ætlast. Af handahófi er valin einhver Minuteman III eldflaug, sem þegar hefur verið komið fyrir í skotstöð einhvers staðar í Banda- ríkjunum. Þessi tegund er algeng- ust af langdrægum eldflaugum og ber þrjár sprengjuflaugar sem hægt er að miða á hvert skot- markið fyrir sig. Sprengibúnaður- inn er tekinn úr sambandi og flaugin flutt til Vandenberg-her- stöðvarinnar í Kaliforníu. Síðan er eldflaugin undirbúin fyrir brottför og öll loftför og sjóför vöruð við. Þegar allt er reiðubúið hefst til- raunin. Eldflauginni er skotið á loft rétt eins og um kjarnorkustríð væri að ræða. Fimmtíu tonna þung eldflaugin skýst á loft og stýrikerfin aftan viö sprengju- flaugarnar stjórna ferðinni. Hraðamælar sýna breytingar á hraðanum og gýrómælar hver stefnan er og hvort flaugin hallast of mikið. Tölva tekur viö þessum upplýsingum og stjómar eld- hreyflunum í samræmi við þær, í því skyni að halda eldflauginni á réttri braut. Þrír aflhlutar eldflaugarinnar senda hana á loft á tveim mínút- um. Þegar gangi eldflaugahreyfl- anna í þriðja hlutanum lýkur rennur upp sú stund þegar hægt er að sjá hvort skotiö tekst. Eld- flaugin á að vera komin á réttan stað úti í geimnum, á réttum hraöa og með hárrétta stefnu. Hægt er að hætta við skotið á þessum tíma, en ekki síðar. Þegar þriðji hlutinn skilur við eld- flaugina er of seint að iðrast. Eftir eru aðeins þeir hlutar sem inni- halda stjórnkerfið og sprengju- flaugarnar. Á þeim eru raunar litlir mótorar sem gera kleift aö rétta stefnuna af svo að sprengju- flaugarnar hitti skotmörkin betur. Tuttugu mínútur líða frá því að eldflaugin tekst á loft og þar til hún fellur í sjóinn við Kvajalein. Skjóta-leita-skjóta Tilraunirnar gefa bandaríska hernum kost á að prófa ýmsar teg- undir vopna sem ætlað er að granda eldflaugum (ABM-vopn). Sáttmáli milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna frá 1972 takmarkar að vísu slík vopn við 100 á hvort stórveldið en bannar ekki tilraunir með nýjar geröir slíkra vopna. Bandaríkin verja miklum pening- um í hönnun og tilraunir með ABM-vopn, til að „mæta sovésku ógninni” ef notuð eru orð hers- höfðingjans sem stjórnar vörnum Bandaríkjanna gegn óvinaeld- flaugum. Núna er verið að prófa á Kvajalein gagneldflaugakerfi sem byggir á skjóta-leita-skjóta að- ferðinni. Fyrst er skotiö á eld- flaugar utan gufuhvolfsins, síöan leitað að sprengjuflaugum sem gætu hafa komist frá burðareld- flaugunum inn í gufuhvolfið og þær skotnar niöur. Skotmarkið úti í geimnum er fundiö með innrauðum kíki sem gerir mönnum kleift aö sjá heitan útblásturinn frá eldflauginni úti í köldum geimnum. Þessi kíkir er svo næmur að með honum er hægt að sjá mann í 1500 kílómetra fjar- lægð. Vígbúnaðarkerfi sem byggðist á þessum tækjum mundi senda gagneldflaugar búnar svona kíkj- um út í geiminn og láta þær granda langdrægu eldflaugunum fyrir utan gufuhvolfið. Verið er aö hanna eldflaugar sem verða búnar ratsjártækjum til að finna þær sem hafa sloppið inn fyrir gufuhvolfiö. Kvajalein-eyjaklasinn er umdeildur. Gagnrýnendur segja aö tilraunirnar miði að því að gera Bandaríkjunum kleift að ráðast á Sovétríkin að fyrra bragði og það valdi truflun á jafnvægisástand- inu sem ríkt hafi. MX-flaugar geti leyst af hendi slíka skyndiárás og síðan sjái ABM-flaugamar um aö eyðileggja þær eldflaugar and- stæðingsins sem eftir standi. Eyjarskeggjar á Kvajalein lifa ekki neinu sældarlífi. Múgmenn- ingin í herstöðinni stingur í stúf við fátækrahverfið í Ebeye, þar sem 8000 manns búa um sig á nokkur þúsund fermetrum. Á eyj- unni er ekkert ferskvatn að finna, engin holræsi, enga menntaskóla og litla atvinnu að fá. Eyjaklasinn tilheyrir Marshall- eyjunum sem Bandaríkin stýra samkvæmt ákvöröun Sameinuðu þjóöanna. Herstöðvarnar verða að líkindum áfram á eyjunum, jafn- vel þótt margir eyjarskeggjar vilji framar öllu losna við þær. Þó gætu málin breyst ef kæmi til kjarnorkustríðsátaka.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.