Vikan


Vikan - 05.01.1984, Síða 32

Vikan - 05.01.1984, Síða 32
I veitingahúsi í borginni starfar stúlka sem er þeim gáfum gædd aö „sjá með” mönnum, eins og þaö er kallaö, og segja fyrir um óorðna hluti, stundum í tengslum viö gesti staðarins. Sagt er að vissir fjármálamenn taki aðeins mikilvægar ákvarðan- ir í fjárfestingu eftir að hafa fyrst leitað álits þessarar stúlku, sem fluttist til Reykjavíkur fyrir fáein- umárum. Dag nokkurn í haust fór einn af langtíma áskrifendum Vikunnar einsamall á viðkomandi veitinga- hús og hugöist fá sér að borða. Það varð honum undrunarefni þegar stúlkan sem afgreiddi hann lagði á borð fyrir tvo! ,,Eg hef aldrei viljað hætta á neitt í þessu sambandi,” sagði stúlkan þegar Vikan hafði sam- band við hana eftir ábendingu áskrifandans. „Þess vegna leitaöi ég til sálfræðings strax og ég varð vör við þennan hæfileika. Ég upp- götvaöi hann í Júgóslavíu fyrir fjórum árum, þegar ég fór til þar- lendrar sígaunakonu að láta spá fyrirmér. Eg kemst iðulega ekki hjá því að sjá fyrir ýmsa atburði í tengslum við þá sem ég hef samskipti við í vinnunni, þar á meðal þjóökunna menn og stjórnmálamenn. Eins verð ég fyrir áhrifum, oft ótrúlega sterkum, þegar ég les fréttir í blöðum, jafnt innlendar f réttir sem erlendar. ’ ’ Þessi stúlka verður ekki bara fyrir áhrifum þannig að hún getur sagt fyrir um það sem veröa muni heldur skrifar hún líka ósjálfráða skrift þar sem ýmislegt kemur fram sem eftir á að gerast. Hún féllst góöfúslega á að skyggn- ast inn í framtíðina fyrir Vikuna, gegn stranglegri nafnleynd. „Eg reyni eins og ég get aö dylja þetta,” sagði hún. „Það er nóg að vera talin skrýtin þegar mér verð- ur óvart á í messunni, eins og til dæmis að leggja á borð fyrir þá sem enginn sér nema ég! ” Þjóð á kross- götum Einhvern tíma á árinu kemur að því að taka þarf mikilvæga ákvörðun fyrir hönd allrar þjóðar- innar. Hún er í sambandi við pen- ingamál, nátengd alþjóðlegri stofnun sem hefur úrslitavald um sjálfstæði okkar í efnahagsmál- um. Flestir ráðherrar okkar verða boðaðir á fund hjá þessari stofnun. Þetta verður mjög óvænt og fjöldi fréttamanna mun fara héðan með þeim til að fylgjast með gangi mála. Aö loknum þessum fundi munu hefjast harkalegar deilur hér. Þess veröur krafist að Alþingi verði rofið og efnt til nýrra kosn- inga. Einn maður mun verða til aö taka af skarið þegar deilurnar standa sem hæst. Honum mun þegar í stað takast að afla sér mik- ils fylgis. Hann mun leggja fram sáttatillögu sem flestir geta fallist á. Hún verður lögð fyrir Alþingi en ekki samþykkt þar. Þetta allt verður til þess að fjármál okkar og efnahagsástand verður mjög til umfjöllunar hjá alþjóðlegri fjár- málastofnun áfram. Afstaða þingmanna Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags varð- andi kvótaskiptingu fiskveiöa leiðir til þess að kjósendur hugsa þessum flokkum þegjandi þörfina þegar líöur að kosningum. Sala ríkisfyrirtækja og hluta- bréfa ríkisins í fyrirtækjum verö- ur mjög á dagskrá fyrri hluta árs. Þar er ekki allt sem sýnist og virð- ist svo sem máliö í heild klúðrist vegna andstööu ráðherra Sjálf- stæðisflokksins eða öllu heldur samstöðu þeirra um að taka ekki á þessu máli. Upp kemur óvænt staða í mál- efnum vinnumarkaöarins. Forseti ASÍ mun beita sér fyrir sam- komulagsgrundvelli við VSI þess efnis að lægstu laun einungis hækki í 14.000 krónur og að þau laun verði undanþegin skatti. BSRB mun ekki standa að þessu tilboði heldur kljúfa sig út úr viðræðunum. — Sáttasemjari ríkisins kemur þarna mjög við sögu og mun hann þurfa að beita fjármálaráðherra fyrir sig til aö leysa málið. Alþingishúsið sjálft verður í fréttunum rétt í þann mund sem þingi lýkur í vor, kannski fyrr. Þar er atburöur í uppsiglingu sem lengi verður minnst. Þessi atburð- ur á sér stað jafnt utan hússins sem innan. Samtök um kvennalista munu leita eftir samstöðu við Bandalag jafnaðarmanna í afvopnunar- málum. Eftrirtektarverð ályktun mun koma fram frá þessum flokkum í því máli og mun reynt að fylgja henni eftir á erlendum vettvangi. Niöurstaða þeirrar tilraunar kemur mörgum á óvart. Ekki veröa kosningar um emb- ætti forseta á árinu en miklar um- ræður um kjörtímabil forseta og hvort einfaldur meirihluti eigi aö ráða í forsetakosningum. Af stjórnmálum almennt hér innanlands er það annars að segja að í stjórnarliðinu verða fjór- menningarnir Steingrímur, Hall- dór, Sverrir og Albert hinir sterku og mikið mæðir á þeim í öllu er varðar stjórnaraðgerðir. Þessir fjórir færast smám sam- an nær hver öðrum í samvinnu og samskiptum og mynda sterkan stjórnarkjarna. Það sem meira er, þeir munu standa af sér að mestu þá gjörningahríð sem stjórnarandstaðan magnar að þeim. Þó munu þeir hver fyrir sig á tímabili eiga úr vöndu að ráöa, einkum fyrir þingslit í vor. I stjórnarandstöðunni veröa hvað mest áberandi þau Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Agnars- dóttir, Steingrímur Sigfússon, Stefán Benediktsson og Guörún Helgadóttir. Sú síðasttalda á eftir að baka samflokksfólki sínu tals- verðan vanda í sambandi við at- kvæðagreiðslu í tilteknu máli. En margir verja hennar málstað, bæði innan þings og utan. Töluveröum þrýstingi veröur beitt á ríkisstjórnina til aö fella gengið. Þar verða ólíklegustu at- riði notuö til rökstuðnings. Ekki fæ ég þó séð að gengisskráning breyt- ist til muna frá því sem nú er. Samt finnst mér hreyfing og gauragangur í kringum gjald- eyrismál á öðru sviði, en það snertir ekki beint gengisskráning- una. Þó sýnist mér að eitthvað verði gert til að tengja íslensku krónuna nánar við bandaríska dollarann en hingað til. Ekki get ég útlistað þetta í smáatriðum en fiskafuröir og orkumál koma þarna viö sögu. Iðnaður mun enn um skeið eiga viö ramman reip að draga, eink- um vegna innflutnings á sam- keppnisvörum. Þegar líður á árið veröur þó breyting þar á og hún áhrifamikil. Þaö verður iðnaðar- ráðherra sem á þar hlut að máli upp á eigin spýtur. Hann mun sjá sér leik á boröi í samhengi viö átök og upplausn innan Efnahags- bandalags Evrópu. Utflutningur til landa Efnahagsbandalagsins tekur fjörkipp viö þetta, og raunar til fleiri landa, og iðnaðinum vex fiskur um hrygg. Þjóðkunnar persónur — embættisstörf Forseti landsins mun gera víö- reist á næsta ári og tekst á hendur lengstu ferð sem íslenskur forseti hefur farið til þessa. Hún mun leiða til upphafs viðskipta íslend- inga við þjóð eða þjóðir fjarri okk- ur. Ég tel að þar verði um vöru- skiptiaðræða. Innan embættismannakerfisins veröa talsverðar hreyfingar. Það verða breytingar í stöðum ráöu- neytisstjóra, innan Trygginga- stofnunarinnar, lögreglustjóra- embættisins, tollstjóraembættis- ins og ný staða eða stofnun tekur við yfirstjórn á meðferð fíkniefna- mála. Fræðsla, beittara eftirlit með innflutningi fíkniefna og hraðari meðferð fíkniefnamála mun líka líta dagsins ljós á árinu. Þjóðkunnur prestur í Reykjavík verður í fréttunum um mitt árið og biskupsembættið á eftir að koma við sögu í deilumáli. Listir — tíska — íþróttir I listum er þaö helst að tvær nýj- ar íslenskar kvikmyndir koma fram á árinu og fær önnur þeirra góðar viðtökur, erlendis ekki síður en hér heima. íslensk leikkona verður fræg fyrir leik í þeirri mynd. Fleiri ungir menn hasla sér völl í knattspyrnunni á erlendri grund 32 Vikan 1. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.