Vikan


Vikan - 05.01.1984, Qupperneq 41

Vikan - 05.01.1984, Qupperneq 41
Þýðandi: Anna þaö var ekki svo einfalt að beygja sig niður til að taka hann upp. Ég mundi allt í einu eftir gamla brandaranum um fimmkallinn sem var límdur svo fast niður aö enginn gat náð honum og þegar menn fóru að reyna það lentu þeir alltaf í að einhver falleg af- greiðslustúlka sagöi: „Afsakið, herra minn. En þessi peningur er alveg fastur. Þú getur gefist upp strax því hann er límdur með nýja stórkostlega galdratröllatonna- töfralímtakinu. Vantar þig ekki einmitt túpu?” Ég svipaðist um í kringum mig. Ég gæti auðvitað veriö fyndinn líka og sagt: „Ég held varla, ég lími peningana mína svo sjaldan niöur í gólfið.” En ég sá enga afgreiðslustúlku og hugsaði með mér að þetta gerðist ekki nema í bröndurum. Ég ákvað að gera enn eina atlögu og með liprum framherja- brag sparkaöi ég í fimmkall- inn. Hann hentist til og undir af- greiðsluborðið. Þá sá ég að fólk var fariö að horfa á mig. Ég ákvað að gefast upp. Ég gat ekki, þrátt fyrir barnatrúna á gildi peninga, gert mig að fífli fyrir fimmkall. Ég hraðaði mér aö kassanum, borgaði vörurnar sem ég hafði keypt og reyndi að hugsa ekki um fimmkallinn. Á verðbólgutímum ætti að vera auðvelt að sannfæra sjálfan sig um að fimmkall geri hvorki til né frá í lífinu. En rótgró- ið uppeldi, þar sem manni er innrætt annað verömætamat en verðbólgukynslóðinni sem nú vex úr grasi, gerði mér erfitt fyrir. Ég fór á pósthúsið og athugaði í póst- hólfið mitt, en enn angraði það mig að hafa gefist upp við að reyna að ná í fimmkallinn. Ég sótti bílinn minn á Seðlabanka- stæðið og fór upp Hverfisgötuna. Klukkan var að verða fjögur. Ég mundi eftir því að ég átti eftir að fara í banka til að ná mér í ávísanahefti. Það var föstudagur og nú var aö duga eða drepast. Ég reyndi að komast hratt upp Hverfisgötuna en það virtist úti- lokað. Klukkuna vantaði fjórar mínútur í fjögur. Ég sá stæði rétt fyrir neðan bankann minn, ég kæmist í bankann ef ég næði því. Ég varð að fá heftið. Á verðbólgu- tímum, þegar verögildi pening- anna rýrnar yfir eina helgi, verð- ur maður að vera trúr uppeldi sínu og meta gildi lítilla upphæða. Auk þess átti ég eftir aö fá mér eina. . . huggulegt borðvín auð- vitað. Ég renndi í stæöiö og hoppaði út úr bílnum. Klukkuna vantaði eina mínútu í, ég leitaði í vösunum og fann loksins einn lít- inn pening, krónu, og setti sigri hrósandi í stöðumælinn rétt áður en stöðumælavörðurinn kom að næstnæsta bíl við mig. Þá sá ég gulan miða á stöðumælinum: Gjald í stöðumæla er 5 krónur. Stjörnuspá Hrúturinn 21. mars 20. apríl Þéráeftiraðfinnast næsta vika heldur daufleg miðað viö þær síöustu sem hafa verið mjög fjörlegar. En þú þarft á þessari hvíld að halda því á næstunni mun reyna mjög á þrek þitt. Krabbinn 22. júni - 23. júli Þér eiga eftir aö berast mörg boö um að vera mcð í alls kyns verkefnum. En þar sem þú ert að vinna að mjög þýðingarmiklu verk- efni ættir þú ekki aö þiggja neitt og einbeita þér heldur að einu. Vogin 24. sept. - 23. okt. Þaö er mikið aö gera hjá þér á næstunni en þú nýtur þess af því aö þér gengur vel og þú skilar þínu þannig að allir eru ánægöir. Þó peningaútlitið virðist svart um tíma rætist úr því. Steingeitin 22. des. 28. jan. Þér mistekst eitt- hvert ætlunarverk og þú tekur það mjög nærri þér. Þar sem þú veist ástæðuna fyrir mistökunum ættir þú aö nýta þér gamla máltækið: Reynslan er besti skólinn. Nautið 21. april -21. maí Þú færð vitneskju sem á eftir að hafa mikil áhrif á einkalíf þitt. Þú skalt reyna að hafa gætur á góöum vini þínum. Líklegast er að hann sé í vandræðum og eigi erfitt meðaðkom- ast úr þeim hjálpar- laust. Ljónið 24. júli 24. ágúst Þú munt óvænt hitta ákveðna persónu sem þú hefur kviöið mjög að hitta eftir langan aðskilnað. Ef þér mislíkar einhver um- mæli sem þú heyrir áttu skilyrðislaust að láta álit þitt í ljósi. Sporðdrekinn 24. okt. 23. nóv. Því miður hefur þér sinnast eitthvað viö góöan vin og þú átt erfitt með aö jafna þaðaftur. Lík- legast sýnir þú þess- mn vini þínum ekki nægilegan skilning og ert of óþolinmóður í hans garð. Vatnsberinn 21. jan. 19. febr. Þú hefur i bígerö aö gera stóra hluti en ert hræddur um að ákveðinn aöili komi í veg fyrir aö þér tak- ist það. Þú vantreyst- ir fólki allt of mikið og kemst að því aö allir vilja þér bara vel. Tviburarnir 22. mai 21. júni Einhver vina þinna hefur gert þér mikinn greiða en það lítur út fyrir að þú kunnir ekki að meta þaö. Þér hættir til að vera vanþakklátur og sjálfselskur og það hefnir sín bara fyrir rest. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Þú hefur allt of lítið sjálfstraust og því skaltu ekki verða hissa þótt eitthvert gullið tækifæri renni þér úr greipum. Ef þú skipuleggur tíma þinn vel muntu koma miklu í verk á næst- unni. Bogmaðurinn 24. nóv. 21.des. Þú hefur lengi haft mjög ákveðna skoöun á ákveðnu máli og enginn hefur getaö haggað því. En nú kemst þú aö sannleikanum í mál- inu og þá áttu alls ekki að skammast þín fyrir að skipta um skoðun. Fiskarnir 20. febr. 20. mars Þú hefur haft áhyggjur af heilsu einhvers í fjölskyld- unni. Þú getur andað léttar núna, það er ekkert alvarlegt á ferð. Öviljandi kemstu aö leyndar- máli sem þú ættir aö láta kyrrt liggja. I. tbl. Víkan 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.