Vikan - 05.01.1984, Blaðsíða 59
dó ekki ráðalaus. Hún var bæði sterk
og stór og nú tók hún heyvagn, lagði
yfir skurðinn og flýtti sér svo á eftir
Bullukollu og stelpunni. Enn var langt
heim og stelpan var að hugsa um hvort
nokkuð mundi þýða að taka hár úr
halanum á Bullukollu og leggja það á
jörðina, en hún ákvað að reyna ekki. I
fyrsta lagi var Bullukolla svo mikil
bullukolla að hún gæti aldrei sagt heila
töfraþulu rétt þó hún kynni hana, í
öðru lagi yrði pabbi hennar öskureið-
ur ef allt í einu væri komið f jall eða
vatn eða eldur á túnið hans og í þriðja
lagi var enginn tími til að gera neinar
svona kúnstir.
En nú voru þær næstum alveg
komnar heim og stelpan vissi að ef
henni tækist að fá mömmu sína og
pabba út á hlaðið þyrði skessan ekki
lengra, því enginn þorði í mömmu
hennar og pabba þegar þau voru reið.
„Elsku góða Bullukolla, baulaðu
nú hátt og hrikalega og ekkert rugl!”
sagði stelpan í örvæntingu.
„VOFF, VOFF, VOFF!” sagði
Bullukolla, „VOFF, VOFF, VOFF! ”
Við það sprakk skessan úr hlátri.
Fjölskyldan var í marga daga að
hreinsa skessuleifamar af túninu, því
þegar sólin kom upp varð draslið sem
kom þegar skessan sprakk allt að
steinum. Fjölskyldan safnaði steinun-
um saman í vörðu við brúna á Stóra-
skurði og síðan verður sú varða alltaf
kölluð skessuvarða. En fjölskyldan
sagði aldrei neinum þessa sögu því
hún vissi að enginn myndi trúa henni.
Það trúðu henni ekki einu sinni allir í
fjölskyldunni. Og ef ekki hefði verið
fullt af grjóti á heimatúninu um morg-
uninn hefði enginn í fjölskyldunni
nokkum tíma trúað því að skessan
hefði elt þær Bullukollu og stelpuna á
bænum.
LAUSIVÁ
„FI/VNDU 6 VILLUR
Gufan h'fgar hárið, það veit óg.
£n að hún geri loðfeldinn Ijóslifandi. . .1
KROSS
OfrTfl
Þrenn varðlaun verða veitt fyrir lausn i krossgát-
unni. Þið þurfið ekki að klippa krossgátuna út úr
blaðinu heldur skrifið lausnarorðið, sem myndast
úr reltunum sem eru með tölustöfunum, i sár-
stakan reit á bls. 55. Verðlaunin eru kr. 230, 135 og
135. Góða skemmtun.
fyrir bém 04 ungllnga
Lausn á myndagátunni birtist i næsta blaði.
X. tbl. Vikan 59