Vikan - 07.06.1984, Side 7
Flóð í Bankok.
andi og þyki einkenni þessa lands:
þaöerhóran.
Chiangmai er næststærsta borg
Thailands og kölluð rós noröursins
í ferðamannabæklingum, fræg
fyrir rósir og blómarósir. Og
mikið rétt, bæklingamii- lugu ekki í
þetta sinn: þarna eru bæði rósir
og fjallmyndarlegt kvenfólk. Það
vakti athygli okkar hve mikið
menn brostu á þessum slóðum.
Brosið er eitt af því sem skilur
okkur frá dýrunum og ef það væri
það eina væru Thailendingar
komnir þjóða lengst frá dýrum og
mætti segja mér að þessi einfaldi
vöðvakipringur færði þeim ófáar
dollaramilljónir á ári. Ekki svo að
skilja aö brosið sé þeim eitthvað
tilgert, minnsta kosti var alltaf
innistæða bak við bros þeirra
Thailendinga sem við kynntumst.
Chiangmai er í mesta iðnaðar-
Munkar á hárgreiðslustofu.
héraði landsins og ýmiss konar
handiðnaður stundaður þar, oft á
stéttum úti, til dæmis aö bræða
úrelta silfurmynt og móta í
hringa, framleiða regnhlífar og
fíla, baka kókoskökur af mikilli
leikni og selja fyrir slikk, og
þannig mætti lengi telja.
Öneitanlega er margt stílað á
ferðamenn og fannst okkur nóg
um. Þaö var mikiö framboð af
skoðunarferöum út og suður, þjóð-
dansasýningum og alls konar
skrípalátum og mörg fyrirtæki
skipuleggja feröir út í sveit að
skoða kynlega þjóðflokka sem þar
hafa sest.að á síðustu hundrað ár-
um. Er mikil ásókn í þessar ferðir
og hafa hinir „frumstæöu” þegar
lært nokkur orö í frönsku, var okk-
ur sagt, svo sem: góöan daginn og
gefðu mér pening! Nálægt
Chiangmai er eini fílaskólinn í
heiminum. Þar eru fílum kennd
Hórurnar í Konkaen.
23. tbl. Vikan 7