Vikan - 07.06.1984, Blaðsíða 51
SOB teiknistofa
Ný ferðaskrifstofa
Nýir sumarleyfisstaóir
S niffisilftaar ferðir. aóðir aististaðir ^
Rhodos Garda Tún/s
I Sousse í Túnis er hægt aö kynn-
ast ekta Afrískri stemmingu. Reika
um þröngar götur með hvítkölk-
uðum húsum, prútta við kaupmenn
og kynnast framandi lifnaðar-
háttum.
Farþegar okkar búa á glæsilegu
hóteli eða í þægilegum íbúðum út
við hvíta ströndina. Þar eru
þægindi og aðstaða eins og best
verður á kosið, diskótek, nætur-
klúbbar og fjölbreyttir veitingastaðir
á hverju strái.
Þægilega milt loftslagið, hvítar
strendurnar, náttúrufegurðin og
síðast en ekki síst eyjaskeggjar
sjálfir, allt gerir þetta Rhodos að
sælureit ferðamannsins.
Góð hótel eða íbúðir, sól og sjór,
fjölbreytt afþreying, fjörugt næturlíf.
Það er varla hægt að hafa það
betra.
Ef þú villt ferðast á eigin vegum,
t.d. á bílaleigubíl, þá er upplagt að
dvelja eina viku (eða fleiri) við
Gardavatnið í ítölsku Ölpunum. Við
bjóðum gistingu í glæsilegum
sumarhúsum eða íbúðum í þessari
sólarparadís, þar sem aðstaða er í
sérflokki, ekki síst fyrir börnin.
Róm - Sperlonga
Vikudvöl í Róm verður ógleymanleg. Hvern hefur ekki
dreymt um að líta augum staði eins og Péturskirkjuna,
Colosseum eða Forum Romanum?
Að dvölinni í Róm lokinni er haldið til Sperlonga, —
baðstrandar mitt á milli Rómar og Napolí. Dvalið verður
í mjög skemmtilegum íbúðum rétt við ströndina. Sund-
laug, verzlun og veitingahús er á staðnum. Og svo er
það rúsínan í pylsuendanum — bílaleigubíll fylgir með
hverri íbúð.
yrplerra
Laugavegi 28, 101 Reykjavík. Sími 29740
Verð og nánari upplýsingar á skrifstofunni. Fáið bækling og verðlista sendan