Vikan - 07.06.1984, Page 33
Umsjón: Borghildur Anna
Scherrer
Og þá er komið að enn einum fata-
hönnuði hér á síðum Vikunnar — sá er
að sjálfsögðu franskur því ennþá
virðast Frakkar standa í fararbroddi á
þessu sviði. Hann er að auki þekktur
fyrir fínlega hönnun — kvenleikinn í
fyrirrúmi — og kóngafólkið hefur
mikið leitað til hans til fyllingar fata-
skápanna. Hér er á ferðinni Jean-
Louis Scherrer og fyrirtæki hans
teygja anga sína víða um heim —
París, Monte Carlo, Brussel, Madrid,
Tókíó og Hong Kong svo eitthvað sé
nefnt.
Hann er fæddur í Lyon í Alsac
(Elsass) árið 1935 og hóf störf sem
hönnuður hjá Dior 1955. Þaðan lá
leiðin til Yves Saint Laurent og síðan í
eigið tískuhús árið 1962. Þá hafði hann
einnig unnið í Japan um tíma og á
námsárunum löngu áður starfaði
hann líka við búningahönnun fyrir
leikhús. Áhrif þessara ára má ennþá
greina í fatnaði frá tískuhúsinu í París
ásamt mjög sterkum persónulegum
einkennum Scherrers. Sem áður
sagði er hann þekktur fyrir fínlegan
svip á klæðnaðinum sem hentar mjög
fyrirfólki við hátíðlegri tækifæri. Því
eru fastir viðskiptavinir fólk eins og
Kennedyarnir, Soffía Lóren, Raquel
Welch og franska forsetafrúin.
Fyrri opnan birtir sýnishorn nokk-
urra síðustu ára frá tískuhúsinu og á
þeirri síðari er vortískan 1984.
| JEAN LOUIS SCHEHRErJ
3X Vikan 23. tbl.
23. tbl. Vikan 33