Vikan


Vikan - 07.06.1984, Blaðsíða 35

Vikan - 07.06.1984, Blaðsíða 35
Draumar Pöddur og dauð vinkona Kæri draumráðandi! Mig langar mikið til að biðja þig að ráða tvo eftirfarandi drauma: Annar var á þessa leið: Eg var bak við hús hjá ruslatunnunum með vinkonu minni, A. Kemur þá strákur út úr húsinu og skjtur A með skammbyssu og hleypur inn að því loknu. A fellur niður og deyr. Eg hugsa ekki meira um það í bili en nœsta kvöld spyr pabbi mig hvar A sé. Eg segi að hún liggi dauð bak við hús. Hann segir mér að fara að gá að líkinu. Eg geng niður stigann með vasaljós í hendi og fer út. Þegar komið er að ruslatunnun- um sé ég að líkið hefur verið fært upp á þœr. Hnakkinn var horf inn og allt úði og grúði af pödd- um sem voru á góðri leið með að éta hausinn upp. Litlu seinna sat ég í stofunni heima hjá A og var að flytja andlátsfregnina. Mér fannst að foreldrar hennar og bróðir sœtu þar inni. Það fyrsta sem mamma hennar gerir er að sþyrja hvort A hafi verið hrein á bak við eyrun þegar hún dó. Hinn draumurinn er á þessa leið: Eg var stödd með vinkonu minni (fyrrnefndri A) á mótum Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Við höfðum verið á búðarrápi. Mættum við svo strák sem við könnuðumst við. Þegar hann stendur við hliðina á mér og ég lít á hann finnst mér hann allt í einu svo sætur og ég segi við hann: ,,Mig langar svo að kyssa þig. ” Hann brosir og fer með okkur inn á kaffihús og við þrjú tölu'm saman góða stund, svo vakna ég. Þetta hlýtur að tákna eitthvað sérstakt því ég hef aldrei verið hrifin af þessum strák og kaffi- stofan er ekki til. Eyrirfram þökk fyrir birting- una. H.I. Fyrri draumurinn er mjög sterkur og uppfullur af mjög áberandi táknum. Stór áform og miklir sigrar virðast í aðsigi í einhverju máli sem þér er mjög annt um þegar eitthvað mjög óvænt kemur upp og vekur mikla ólgu og reiði hjá þér og líkast tii hjá fleirum. Vera má að í aðsigi sé erfitt ósamkomulag innan fjölskyldunnar út af stór- huga áformum hjá þér og góðum sigurmöguleikum. Það verður eitthvert vandræðaástand bæði vegna sundurþykkju og einnig lítur út fyrir að einhver veikindi eða óhöpp sem ekki verður við ráðið spili inn í. Af þessu skapast erfiðleikar og margt bendir til að úr þeim verði ekki létt að greiða en talsvert mikið í húfi. Spurningin í lok draumsins bendir þó á undankomuleið í málinu og þá verður að sýna fá- dæma kænsku og stjórnvisku því málið er í talsverðri hættu. Þú verður að spyrja sjálfa þig að því hvort svarið við spurningunni hafi verið jákvætt eða neikvætt, það kemur ekki fram í draumn- um, í því liggur vonin um að hægt verði að greiða úr þessari erfiðu stöðu. Spurning móður- innar er lykilorðið og ef þú heldur að þú hafir svarað þessu játandi, þá áttu möguleika á að ná þeirri niðurstöðu í málinu sem þér er mikið í mun að ná. Til þess verðurðu að vera mjög skynsöm. í seinni drauminn vantar mikilvægt atriði, nafn stráksins, til að gefa til kynna hvort draumurinn hafí táknrænt gildi eða ekki. Draumráðandi hallast að því að þessi draumur sé ekki tákndraumur, en það er rétt að taka fram að vinkona þín hefur mjög gott draumanafn og í því liggja reyndar góðu atriðin í draumnum á undan, auk þessarar spurningar móður hennar. Hermenn í skógi Draumráðandi! Mig langarað biðja þig að ráða þennan draum fyrir mig. Mig dreymdi hann þegar ég var sex ára, að ég held, fyrir sjö árum. Mér þykir stórfurðulegt að ég skuli muna hann svona vel þar sem minnið er ekki mín besta hlið. __ En svona er þá draumurinn: Eg, bróðir minn, mamma mín og stelpa sem heitir X vorum stödd i litlu húsi einhvers staðar langt úti í skógi. Þar var mikið af háum trjám. Það var stríð. Allt í einu var komið fullt af hermönn- um í grænum búningum með stóra riffla inn til okkar. Þá varX allt í einu ekki lengur þarna. Horfin. Hún var í fjólublárri peysu og hafði alltaf legið á hnjánum úti i horni og horft út um gluggann. Bróðir minn fór til hermannanna. Hann vildi fara i herinn og fá byssu. Þeir sögðu nei. Samt var þarna strák- ur sem var á svipuðum aldri og hann. Eg man að mamma var skelfingu lostin. Allt i einu lá mamma á maganum á bekknum við vegginn (það var eins og bekkur i strætóskýlum, en náði lengra fram). Tveir eða þrir hermenn sátu ofan á henni og skinnið þrýstist milli fjalanna. Nú vaknaði ég i svitabaði, og spratt á fœtur. Mér fannst þetta hræðilegt, skelfilegt. Með fyrirfram þakklœti fyrir ráðningu og birtingu. Grýla. Þessi draumur er, þó undar- legt megi virðast, heldur góður fyrir þig. Því er ekki að leyna að hann er fyrirboði deilna og erfið- leika í fjölskyldu þinni og í kjöl- farið fer ýmislegt andstreymi er beinlínis má rekja til þessa ósættis. En draumanöfnin eru einstaklega góð og staðurinn sömuleiðis. Þú mátt búast við hvað sjálfa þig varðar að gæfa og góð efni falli þér í skaut, en varla verður það í þínu valdi að blanda þér í þær erjur sem þarna koma fram og ekki líkindi til að það yrði til nokkurs, hvorki góðs né ills. Bróðir þinn mun reyna að gera það og valda móður ykkar áhyggjum út af því, en sennilega verður lítið úr framkvæmdum, öllum til mikils léttis. Þú hefur greinilega skapgerð til að fá það besta úr lífínu og tilverunni. Barn og þrjú egg Kæri draumráðandi! I nótt dreymdi mig eftirfar- andi draum: Eg var nýbúin að eignast barn (stelpu). Barnið var hraustlegt og heilbrigt. Eoreldrar minir voru báðir hjá mér og þeir voru mjög ánægðir með barmð, enda fyrsta barna- barnið. Ég var sifellt að óska þeim til hamingju meðþað. Síðan fór ég að hafa áhyggjur af þvi að barnið hefði ekkert fengið að borða og sagði mamma mér að gefa þvi að drekka. Eg fór afsíðis og gaf barninu brjóst. Eg var allan timann dálitið áhyggju- full þvi mér fannst þetta koma svo óvœnt, en samt var ég alveg i skýjunum af hamingju og ætlaði að fara að hringja i strákinn sem átti barnið með mér og tilkynna honum þetta. En svo var ég allt í einu komin inn i litinn, bláan bil. Ég sat með barnið ifanginu Í framsæti bilsins en ég veit ekki hvert ég var að fara. Svo kom mamma hlaupandi að bilnum með þrjú egg i höndunum og sagði að ég mætti ekki gleyma þeim (sennilega voru þau handa barninu). En iþvi missti hún öll eggin úr höndunum á sér og þau duttu á götuna. Þau brotnuðu ekkiy brustu ekki einu sinni, og hún tindi þau upp og lagðiþau i kjöltuna á mér hjá barninu. Og þá var ég tilbúin til fararinnar, en i því vaknaði ég. Þetta er kannski ekki merkilegur draumur en gaman vœri að fá ráðningu. Berglind. Þessi draumur er fyrirboði um að þú munir eignast þrjú börn og öll munu þau að líkindum koma þér á óvart og vera ,,brothætt” ástand í kringum þau. En eins og í draumnum mun allt fara mjög vel og ekkert illt á að henda þau né þig. Stúlkubarnið er ekki táknrænt í sjálfu sér heldur ítrekar merkinguna. 23. tbl. Vikan 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.