Vikan - 07.06.1984, Qupperneq 48
s turin n
AIRMAIL
PAR AVION
Ég er þrettán ára
en hún sextán
Kœri órnissandi Póstur.
Eg vona að þú getir
hjálpad mér. Þad er nefni-
lega þannig ad ég er bálskot-
inn í stelpu sem er þremur
árum eldri en ég. Ég er þrett-
án ára. Hán er med strák en
ég lield samt að hún vilji
kgnnast mér betur. Hún fer
alltaf hjá sér þegar augu
okkar mœtast. Er þetta eðli-
legt? Mér finnst allt eitthvað
svo skrítið þegar hún er
nálœgt mér og hún erþá allt-
af að kíkja á mig. Hvað á ég
að gera?
Er Michael Jackson með
aðdáendaklúbb?
F
A þessum árum er maöur í þvi
að vera skotinn og skotin. Þaö eru
þessar skólaástir og bekkjarskot
sem alltaf koma upp. En það er
ekki þar meö sagt að föst sambönd
þurfi endilega aö vera á dagskrá.
Þú ert þrettán ára og ættir helst aö
njóta þess að vera þrettán ára
strákur í staö þess að hella þér út í
alvarleg ástarsambönd. Eða hvaö
finnst þér? Svo er eitt atriði:
Þroskamunurinn á strákum og
stelpum er mikill á þessum árum,
stelpurnar eru oftast þroskaðri og
það geta veriö ljón á veginum hjá
ykkur. En það er ekkert óeölilegt
við það að vera skotinn í stelpunni
og heldur ekki ef hún lítur þig hýru
auga. En hún er þegar í föstu sam-
bandi þannig að þú ættir ef til vill
aö snúa þér að öörum stelpum í
kringum þig, þeim sem eru á þín-
um aldri. En ef þú vilt fá af-
dráttarlaust svar Póstsins um
þessi mál þá finnst honum að þú
eigir að bíöa aðeins með föst
ástarsambönd og njóta þess
heldur að vera skotinn og ekki
skotinn á skólaböllum, í
frímínútum og annars staöar.
Já, Michael Jackson hefur
aðdáendaklúbb og hér kemur
utanáskriftin:
Michael Jackson Fan Club
C/O Epic Records
1801 Century Park West
Los Angeles, CA 90067.
Limahl
Kœri Póstur.
Við þökkum fgrir gott blað
og aðallega Póstinn sem er
uppáhald okkar. Við vonum
að Helga láti sér nœgja að
japla á umslaginu. Þannig
er mál með vexti að okkur
vantar svo heimilisfang hjá
aðdáendaklúbbi Limahl.
Getur þú útvegað okkur
þetta ?
Svo er eitt sem við söknum
mjög en það er pennavina-
dálkurinn.
Þökkum fgrirfram,
Joe og Halla.
Limahl hinn vinsæli í
hljómsveitinni KajaGooGoo,
fæddur Christopher Hamill, hefur
að sjálfsögðu sinn aðdáendaklúbb.
Þið skrifið til:
KajaGooGoo Information
C/O EMIPRESS 2
20 Manchester Square
London W1
England.
Pennavinadálkurinn er alls ekki
hættur aö koma, hann á aö birtast
af og til og gerir það.
1S
Pennavinir
Gabriele Graf, Herbornerstrasse
18, 6348 Herborn-Hörbach, West
Germany, óskar eftir íslenskum
pennavinum. Áhugamál eru hest-
ar, bakstur, prjónaskapur og
gítarleikur.
Frauke Eilts, Yorkstrasse 6, 2960
Surich L, West Germany, er 16 ára
og vill gjarnan komast í bréfa-
samband við íslenska jafnaldra.
Áhugamál hennar eru reið-
mennska, lestur, dýr og prjóna-
skapur.
Karoline Lovas, Hohenstein 66,
5600 Wuppertal 2, West Germany,
er 22ja ára stúlka sem gjarnan vill
skrifast á við Islendinga. Er að
læra hárgreiðslu og á ýmis áhuga-
mál, eins og frímerkjasöfnun, tón-
list, bíó. Pennavinirnir mega
gjarnan hafa áhuga á frímerkj-
um.
Timo Pynttári, Kalliojarvi, SF-
69820 Rayruski, Finland, er 18 ára
piltur frá Finnlandi sem langar til
að eignast marga pennavini á Is-
landi. Finnst gaman að veiða fisk,
málar, hefur gaman af aö dansa,
safnar myntum og frímerkjum.
Mynd má gjarnan fylgja.
Roberto Barbosa, 55515 —
Amaraji, Pernambuco, Brasil,
hefur áhuga á að skrifast á viö Is-
lendinga og skiptast á myntum,
frímerkjum, peningaseðlum og
plötum. Er kennari að mennt og
getur skrifað á ensku, frönsku,
spönsku, þýsku og portúgölsku en
finnst þó mest gaman aö skrifa á
ensku.
Mary Sakellariou, Tzavella 21,
Metamorfosi, Attiki, Athens,
Greece, er grísk stúlka sem óskar
eftir að skrifast á við sætan strák
á aldrinum 18—20 ára. Mynd má
fylgja með bréfi.
Angelika Wivth, Adolf-Wachter-
Str. 37, 8580 Bayerenth, Deutsch-
land, er þýsk, 18 ára gömul stúlka
sem óskar eftir íslenskum penna-
vinum á svipuðum aldri.
Siv Toril Larsen, Ámoyamn, 8182
Ámnes, Norge, er þrettán ára
gömul stúlka sem gjarnan vill
skrifast á við íslenska stráka og
stelpur. Áhugamál: tónlist, dýr og
allt skemmtilegt. Skrifar á norsku
en skilur bæði sænsku og dönsku.
Katrín Jónsdóttir, Svínavatni,
Grímsnesi, 801 Ámessýslu, óskar
eftir pennavinum á aldrinum 9—
11 ára. Helstu áhugamál eru hest-
ar, íþróttir, frímerkjasöfnun,
pennavinir og margt fleira.
Hjördís Edda Broddadóttir,
Framnesi, Blönduhlíð, 551
Sauðárkróki, Skagafirði, er fædd
1968 og óskar eftir pennavinum,
bæði strákum og stelpum, helst á
aldrinum 15—17 ára. Áhugamálin
eru böll, diskótek, dans, dýr, úti-
legur, félagslíf, strákar og fleira.
Reynir aö svara öllum bréfum og
mynd má gjarnan fylgja með.
Elín Sigríður Jónsdóttir, Þóru-
stöðum, 425 Flateyri, vill eignast
pennavini á aldrinum 12—14 ára.
Er sjálf 13 ára. Áhugamálin eru
bækur, dýr, tónlist, partí og úti-
vera.
Elín Grétarsdóttir, Ashóli, 801,
Asahreppi, Rangárvallasýslu, er
12 ára og vill skrifast á við stráka
og stelpur á aldrinum 12—13 ára.
Áhugamálin eru margvísleg, til
dæmis, dýr, tónlist og íþróttir.
Margrét Benediktsdóttir, Kálfa-
felli, Suðursveit, 781 Hornafirði,
hefur áhuga á hestum, íþróttum
og mörgu ööru og óskar eftir að
skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 12—14ára.
48 Vikan 23. tbl.