Vikan - 07.06.1984, Síða 50
Fjölskyldumál
Þegar börn eignast
stjúp foreldri
Stjúpforeldri
eða fósturforeldri
Fólk blandar gjarnan saman
hugtökunum stjúpforeldri og
fósturforeldri. Þessi hugtök eru
hins vegar gjörólík og hlutverk
þeirra sem eru stjúp- og fósturfor-
eldri mismunandi. Stjúpfjölskylda
er oft mynduð úr tveim kjarnaf jöl-
skyldum, til dæmis aö tveir full-
orðnir, sem báðir hafa verið giftir
áður, mynda á nýjan leik fjöl-
skyldu með einu eða fleiri börnum
úr upprunalegu fjölskyldunni.
Fósturforeldrar eru ekki kynfor-
eldrar barns. Þeir taka að sér
barn — ganga því í foreldrastað,
annaðhvort í frumbernsku eða
síöar á ævi barnsins.
Tengsl í stjúpfjölskyldum eru
oft flókin. Þegar börn hafa fæðst í
kjarnafjölskyldu og smám saman
myndað tengsl þar og lært hvaða
reglur gilda í einni fjölskyldu
reynist þeim oft erfitt að aðlaga
sig að nýju fjölskyldukerfi. Stjúp-
fjölskyldur geta átt í erfiðleikum
þegar tvær „gamlar” fjölskyldur
þurfa aö aðlagast nýjum fjöl-
skylduháttum og nýjum reglum.
Ut á viö getur stjúpfjölskylda litið
út sem venjuleg fjölskylda en inn
á við er hún ekki eins og hefð-
bundin kjarnafjölskylda. Hin
flóknu tilfinningatengsl í stjúpfjöl-
skyldum og tillitssemi við marga
meö ólíkar þarfir reynir mikið á
einstaklingana í þessum fjöl-
skyldum. Oft hafa persónur —
kynforeldrar og aðrir nánir
ættingjar — sem standa fyrir utan
stjúpfjölskylduna áhrif á hvað
gerist innan hennar.
Bók hefur verið skrifuð um
stjúpfjölskyldur (Visher &
Visher), ein af fáum um þetta
efni, sem vísindamenn gefa nú æ
meiri gaum. í þessari grein
verður drepið á nokkur atriði sem
einnig fá umfjöllun í þessari bók.
Æ fleiri börn eignast stjúpforeldri. Með aukinni
tíðni skilnaða aukast líkurnar á myndun stjúpfjöl-
skyldna. Börn í stjúpfjölskyldum eiga oft erfitt. Þau
hafa oft ekki sömu þörf fyrir að eignast nýja fjölskyidu
og þeir fullorðnu. Ekki er óalgengt að börnum í stjúp-
fjölskyldum finnist ekki nægjanlegt tillit tekið til sin
og þau séu misskilin og höfð útundan.
Þegar börn skipta
um foreldri
Staða barna getur veriö erfið
þegar þau eignast stjúpforeldri.
Stjúpfjölskyldur myndast oft eftir
skilnaö kynforeldra barns.
Skilnaðurinn getur verið barni
sársaukafullur og það getur tekið
tíma aö syrgja og vinna úr þeim
tilfinningum sem koma í kjölfar
skilnaðar. Börnum finnst stundum
að þau missi annað foreldriö við
skilnað og þau geta einnig orðið
hrædd um að missa hitt foreldrið
líka ef það fer í nýja sambúð.
Annar og nýr missir. Það getur
því verið aukaálag fyrir barn aö
aðlagast nýjum aðila eftir skilnað
og viðbrögðin geta sýnt sig í stjúp-
fjölskyldunni og valdið erfiö-
leikum þar. Reynslan sýnir aö
viöbrögð barna hafa mikil áhrif á
samband þeirra fullorðnu sem eru
að reyna að búa sér til nýtt líf.
Börn eru kannski vön að hafa
mömmu fyrir sig. Þau geta orðiö
reið, afbrýðisöm, áreitin og sífellt
truflandi þegar hún reynir að fara
í nýtt samband. Börn geta einnig
upplifaö aö það sé hefndarráðstöf-
un gagnvart föður þeirra þegar
móðirin fer í nýtt samband.
Að byrja nýtt lif
í nýrri fjölskyldu
Fólk sem slítur sambúð og
byrjar nýja býst gjarnan við að
nýja sambúðin færi því þá
hamingju sem ekki fyrirfannst í
þeirri fyrri. Væntingarnar eru
miklar. Fjölskyldulífið á að verða
ánægjulegra, rifrildið minna,
börnin eiga að öðlast nýtt og betra
líf. Allt á að einkennast af meira
jafnvægi en áður. Oft verður þetta
ekki reyndin, þegar hversdags-
leikinn fer að móta sambandið,
því þá er svo ótalmargt að taka
tillit til sem ekki var séð fyrir;
ólíkur bakgrunnur þeirra sem
mynda stjúpfjölskylduna, ólík
reynsla úr fyrri fjölskyldu, margt
sem var sjálfsagt í „gömlu” fjöl-
skyldunni er það ekki í þeirri nýju.
Börnin bregðast oft öðruvísi við en
til var ætlast.
Til að sambönd gangi vel í stjúp-
fjölskyldum þurfa allir — þó sér-
staklega þeir fullorðnu — að geta
rætt málin og tekið á þeim sam-
skiptaerfiðleikum sem upp koma.
Ef fólk getur ekki leyst þann
vanda sjálft, sem upp kemur, þarf
yfirleitt utanaðkomandi til aö
aðstoða við lausn mála. Mörg
flókin dæmi geta komiö upp.
Tökum dæmi þar sem aðeins
konan kemur með barn eða börn
inn í nýtt samband. Hvernig pabbi
á hann að vera ? Á hann yfirleitt að
vera pabbi? Hve mikið á hann aö
skipta sér af uppeldinu? Hve
mikið á hann að skipta sér af til-
finningamálum? Hvernig á hann
að bregðast við andúð barna?
Hvernig á hann að bregðast við
setningu eins og þessari? „Hann á
ekkert að vera að skipta sér af
þessu, hann er ekki pabbi minn. ”
Á hann að draga sig í hlé? Reyna
að vinna hug barnsins? Reynslan
sýnir að mæður vilja oft að
stjúpinn taki þátt í uppeldi barna
en þær vilja ekki aö hann blandi
sér of mikið í tilfinningasamband
hennar og barnanna. Það getur
verið erfið staða að vera í.
Þegar nýtt barn fæðist í
stjúpfjölskyldu
Sérstakir erfiðleikar geta komið
upp í stjúpfjölskyldum þar sem
annar aðilinn hefur komið meö
börn en hinn ekki og þeir eignast
síðan barn saman. Kona getur til
dæmis orðið hrædd um að maður-
inn sinni einungis sameiginlegu
barni þeirra en hennar barn verði
útundan. Börn í stjúpfjölskyldum
sýna oft meiri afbrýöisemi en í
kjarnafjölskyldum og ekki er
sjaldgæft að stærri börn tali um og
upplifi að þau séu í raun höfð
útundan. Börn tala iðulega ekki
opinskátt um þessa hluti. Þau geta
sýnt það með erfiðri hegðan
heima og í skóla. Þau geta orðið
lokuð og reynt að bæla niður til-
finningar. Ýmiss konar sálfræði-
leg próf og athuganir geta sýnt
hvernig þessum börnum líður og
ekki er óalgengt að teikningar
barna segi eitthvað til um hvernig
þau upplifa stöðu sína í stjúpfjöl-
skyldu. Teikningar eru oft notaðar
sem hluti af sálfræðilegum
athugunum.
Nýtt barn í stjúpfjölskyldu getur
einnig sameinað alla meölimi
hennar. Það getur haft áhrif á að
sú eining, sem þarf að myndast í
stjúpfjölskyldunni, geti orðiðtil.
Breyttir tímar
Tímarnir eru breyttir. Skiln-
aðar- og stjúpfjölskyldur eru
raunveruleiki. Vitað er að þessar
fjölskyldur eiga oft í vanda, sér-
staklega þegar um börn er að
ræða. Ábyrgð samfélagsins er
mikil gagnvart þessum einstakl-
ingum. Þeir þurfa oft aðstoð til
þess aö komast í gegnum álags-
tímabil. Þessum málum hefur
ekki verið nægjanlega sinnt og
þesss vegna upplifa allt of margir
fullorðnir og börn að þau standa
ein þegar vandi steöjar að.
50 Vikan 23. tbl.