Vikan


Vikan - 07.06.1984, Qupperneq 58

Vikan - 07.06.1984, Qupperneq 58
11 Barna—Vikan Þýðandi: Jóhann J. Kristjánsson Teikning: Herdís Hiibner „Nei, en sá blástur,” sagði Sigríö- ur þegar hún kom út á götuna og beygði fyrir hornið. Hún var nærri búin að reka sig á drenginn sem kom með flugdrekann sinn. „Gættu aö því að slaufan sem þú hefur í hárinu fjúki ekki burtu með þig,” sagöi drengurinn, sem hét Þor- valdur, og hló. Sigríöur þreifaði eftir slaufunni. Hún var stór og stóð dug- lega út í allar áttir. En auðvitað gat hún ekki flogið með hana. „Ég á aö fara og kaupa sykur fyr- ir mömmu,” sagði hún og flýtti sér áfram. „Ertu nýflutt í bæinn?” spurði konan í búðinni um leið og hún setti sykur í körfuna hjá Sigríði. „Já. við fluttum hingaö í gær,” svaraði Sigríður og fór að fitla við slaufuna í hárinu á sér. „Eg skal binda hana upp aftur,” sagðikonanoglagaðislaufuna. „Þú getur líka komist þessa leið heim,” bætti hún viö og opnaði bakdyr. „Þú getur farið yfir litla blettinn þarna bak við garöinn og þá ertu komin heim til þín.” Þetta var betra en að þurfa að beygja fyrir götuna og Sigríður sá Þorvald úti á akrinum. Það var fínt drekaveður og drekinn hans var kominn hátt upp í loftið. „Halló,” hrópaði Þorvaldur þeg- ar hann sá Sigríði. En allt í einu gerðist nokkuð óvænt. Slaufan varð stærri og stærri og litla stúlkan lyft- ist upp og flaug á henni upp í loftið við hliðina á drekanum. Málaða and- litið á drekanum spurði: „Hver ert þú? Ertu nýtísku flugvél? Ertu dreki? Nei, þú getur ekki verið dreki því þú hefur ekkert skott úr marglit- um pappír eins og viö drekar höf- um.” „Ég er bara lítil stúlka,” svaraði Sigríður, „en slaufan mín stækkaöi og lyfti mér upp í loftið til þín. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að kom- ast niðuraftur.” „En finnst þér ekki skemmtilegt að fljúga?” spurði drekinn. „Jú, en. . . ” Sigríði fannst dálítiö undarlegt að svífa á þennan hátt og hún fór alltaf hærra og hærra, alveg þar til jörðin var orðin næstum ósýnileg. „Nei! Viltu nú bara sjá!” Drekinn varö ákafur og benti með einum dúskinum sem hékk á hliðinni á honum. „Sjáðu hvað karlinn í tunglinu er hégómlegur. Hann hefur fengiö Uglu myndatökumann til að taka af sér nærmyndir.” Þetta var alveg rétt. Sigríður var komin alveg að mánanum sem brosti og gerði sig eins fallegan og hann gat. Ljósmyndarinn hafði stillt sér upp á hornið á honum og tvær litlar mýs — hvernig sem þær höfðu nú komist þarna upp — sátu hlið viö hlið og reyndu að halda jafnvægi. „Augnablik,” sagði herra Ugla. „Vertu nú glaðlegur á svipinn. Svona! Takk! Þetta ergott.” „Æ, hvað þetta er ergilegt,” sagði drekinn í sama vetfangi, „nú dregur hann mig niður aftur, einmitt þegar ég flaug svo fallega.” „Ég vona að Þorvaldur nái mér niður líka,” sagði Sigríður og and- varpaöi. „Hann getur það vel, taktu bara í mig, svo förum við saman niður,” sagði drekinn. Sigríður greip í einn dúskinn á drekanum og nú varð hún greinilega vör við að hún seig lengra og lengra niður. Hátt uppi sá hún mánann brosa til sín og fjöldi lítilla stjarna var í kring. Þær hlógu svo það glitraði í kringum þær. En nú byrj- uðu skýin að dragast fyrir og skyggðu brátt á allt saman. Það fannst Sigríði leiðinlegt því hún hefði viljað sjá hvernig herra Ugla og litlu mýsnar kæmust aftur niður á jörð- ina. Nú myndi hún aldrei fá að vita það. En brátt fékk hún nóg að gera við að horfa niður því jörðin kom alltaf nær og nær. Þarna var gatan þar sem hún hafði mætt Þorvaldi. Lausn á þraut: 27 5S Vikan 23. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.