Vikan - 05.07.1984, Page 14
Hann er þekktur fyrir
vinnugleði og nákvæmni,
vinnusemin er með ólík-
indum að sögn samstarfs-
manna. Áhuginn á starfinu
leynir sér ekki. í því efni
líkist hann öðrum sem
komist hafa á tindinn á
þessu sama sviði. Eitt
annað eiga þeir flestir sam-
eiginlegt — algjört bind-
indi á tóbak og vín.
næstum ómögulegt að fylgja
honum eftir, hefur kannski út-
skýrt fyrir þér hönnun og hug-
myndir ákveðins hlutar — flýgur
eitthvað nýtt í hug — og er sam-
stundis rokinn af stað til að
framkvæma það. Leitar mikið
eftir teknisku hliöinni, nýrra
efna og aðferða í hönnun.
Það er erfitt að opna búðir
frá honum því hann vill hafa
sama útlit alls staðar. Það gerir
hann sjálfur að mestu, hefur þó
arkitekt sem hjálpar honum við
það og einnig íbúðarhúsin. Núna
var ég aö tala viö fólk frá
Miöausturlöndum og það er
vafaatriði hvort borgar sig að
opna þar verslanir. Þar er nóg af
fólki sem getur keypt fötin frá
Versace, sem eru mjög dýr. En
þá kemur það sjónarmið inn að
það kýs að fara til ítalíu
eöa Parísar og kaupa fötin sín
þar heldur en að fara í búðir í
eigin landi.
Hann er vinnualki, vill helst
ekki hugsa um neitt annað en
eigin vinnu. Drekkur ekki eða
reykir, er alvarleg manngerð.
Fer helst í leikhús og ballettinn,
hannar ennþá búninga fyrir það
síðarnefnda. Ef um frí er að
ræða fer hann helst í löng
ferðalög. Hvort ég sjálf er
vinnualki — ég leik þó tennis í
frístundum og les mikið. Finnst
samt óskaplega gaman í
vinnunni!
Versace er mjög hlýr maður
og líkar vel við konur. Þegar við
hittumst og honum finnst eitt-
hvað athugavert við klæðnaðinn
lagar hann þaö og breytir á
allan mögulegan máta. Slæðan
er til dæmis hans sérsviö. Hann
er vingjarnlegur, hlýr og tillits-
samur — svo mjög að á dögun-
um, þegar við vorum að vinna
saman, vildi hann klæða mig í
frakkann sinn og hanskana. Það
var kalt í veðri og ég ekki sem
ákjósanlegast klædd fyrir það.
Og núna var ég að fá skeyti frá
honum þar sem hann biður mig
aö fara ekki á hótel þegar ég
kem til Come heldur búa í
höllinni hans þar. Hann er í raun
mjög góöur vinnufélagi og hús-
bóndi — hefur einstakt lag á því
að láta starfsmönnum finnast
þeir ein stór f jölskylda. ”
En hver skyldi hann svo vera
og hvaðan, þessi maður sem er
að verða eins konar æðstigúrú
tískunnar hjá þotufólkinu, sjó-
bissnissliðinu og hinum með
loðnu lófana? Eitt er víst aö
velgengnin og frægðin hefur
fallið ítalanum Gianni Versace
hraöar í skaut en mörgum
öðrum — fyrsta sýningin var
árið 1978 og núna, árið 1984, er
nafnið vel þekkt á Vesturlönd-
um. Fatahönnun er ennþá hans
sérsviö þótt eitthvað slæðist með
á hans nafni af hliöarvörum
þeirrar greinar. En í dag segist
hann hafa meiri áhuga á að
framleiða vörur í háum gæða-
flokki en að slá einhver
tölfræðileg sölumet á sviði út-
flutnings, er listamaður fyrst og
síðast.
Hann fæddist áriö 1946 í
Reggio Calabria, nánar tiltekið
þann 2. desember, og byrjaöi
ungur að vinna hjá móður sinni,
sem átti tvær fatabúðir í
Reggio, enda milli þeirra mjög
náið samband. Þar komst hann
aö raun um að kraftaverk má
14 Vikan 27. tbl.