Vikan


Vikan - 05.07.1984, Blaðsíða 34

Vikan - 05.07.1984, Blaðsíða 34
15 Draumar Talað um draum í draumi Kæri draumráðandi! Mig langarað biðja þig að ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi fyrir allnokkru. Eg man hann ekki lengur mjög vel en svona helstu atriðin. Mig dreymdi að ég væri stödd heima hjá mér (ég bý hjá foreldr- um mínum), mér fannst eins og það vœru jól eða einhver hátíð því systkini mín þrjú og fjöl- skyldur þeirra voru ásamt fleira fólki í heimsókn. Systir mín og önnur kona, sem ég þekki frekar lítið, voru alltaf að tala um drauminn sem systur mína átti að hafa dreymt og þær voru alveg vissar um að draumurinn ætti eftir að rætast. Eg heyrði að draumurinn væri um mig og fannst þetta voða spennandi og var alltaf að reyna að fá systur mína til að segja mér drauminn. Hún vildi það helst ekki en mér tókst að fá hana inn í herbergi. Þarsagði hún að sig hefði dreymt að hún væri orðin 51 árs og þá reiknaði ég út að ég ætti að vera 33- (I raun og veru á ég að vera 34 þegar hún verðuról.) Hana dreymdi mig og núver- andi bestu vinkonu mína sitjandi inni í eldhúsiþar sem við áttum að búa saman ásamt 1 —2 ára gömlum krakka sem vinkona mín átti að eiga. Þarna var líka maður milli þrítugs og fertugs. Hann átti að vera nýlega laus úr fangelsi þar sem hann hafði setið inni fyrír nauðgun, rán og eitt- hvað eitt enn. Mér átti að finnast það allt ílagi og vera yfir mig ást- fangin af honum. Meira fékk ég ekki að vita, hún sagði mér þetta í tveimur pörtum, þurfti að fara fram á milli því það voru svo mikil læti í krökkunum. Mér fannst eins og restin af draumn- um hennar vœrí þannig að ég og vinkona mín gætum ekki lifað báðar og að önnur dræþi hina með því að skera hana á háls. Lengri varð draumurinn ekki. (Eg og vinkona mín birtumst í draumnum alveg eins og við erum í dag þrátt fyrir að við ættum að vera um það bil helm- ingi eldrí.) Seinna þessa nótt eða undir morgun, eftir að hafa sofnað aftur, dreymdi mig að ég væri stödd á almenningssalerni. Eg opnaði einar dyrnar og fór inn. Svo var klósettið allt í einu allt flœðandi t skít og þegar ég var búin að ná í vatn og tusku og ætlaði að fara að þrífa þá gekk það ekkert því skíturinn jókst jafnóðum. Eg ákvað að fá hjálp og/eða geyma þetta þar til ég væn búin að gera eitthvað annað. Mér fannst eins og þetta vœn á skemmtistað en hvar veit ég ekki. Eorvitin. Að ráða draum í svefni eða heyra sagðan er alltaf fyrir markverðum tíðindum. Fyrri draumurinn bendir sterkt til þess að eitthvað óvænt eigi eftir að breyta framtíð þinni allverulega. Síðari draumurinn er fyrir óvæntum gróða — í peninga- málum — og líklega tengist þetta hvað öðru. Hvort happ- drættisvinningur er á næsta leiti skal ósagt látið en eitthvað slíkt virðist nokkuð sennileg ráðning. Hins vegar bendir ýmislegt til þess að þér hætti til að velja vini af losaralega taginu og það gæti komið þér í koll síðar, ekki síst við ráðstöfun þessa skyndilega fjárgróða. Þannig er betra að fara varlega og velja vini (beggja kynja) af varkárni, nýr vinur í dag og annar á morgun er var- hugaverður lífsmáti. Keppt við finnskar stelpur Kæri draumráðandi! Eg hef aldrei skrifað áður en ég skrifa vegna þess að þessi draumur er mér mjög minnis- stæður. Eg var hálfgrátandi þegar ég vaknaði, rauðeygð og koddinn minn blautur. Svona var draumurinn. Mér fannst að liðið mitt væri að keppa í handbolta við finnskar stelpur. Ég var ekki komin inn á völlinn en ég er í marki. Svo kem ég bara allt í einu ígulum íþróttagalla og með sítt hár. (Eg er með stutt.) Við töpuðum leiknum og ég stóð mig ömurlega en samt fékk ég mikið hrós. Svo kemur stelpa til mín sem heitir S. Hún segirað ákveðin persóna þoli mig ekki (ég er hrifin af þessari persónu). Eg tek það fram að S þekkir ekki þessa persónu og hefur aldrei séð hana. S segir að persónan hafi rifið mynd af mér. (Hann á ekki mynd afmér.) Eg sagði við S að mér væri alveg sama og ég væri ekkert sár en ég var alveg brjáluð og strunsaði út. Mér fannst ég hlaupa heim, svo var þetta búið og ég vaknaði. Þakka birtinguna, Ljóska. Mótlæti af einhverju tagi setur svip sinn á líf þitt um tíma og þú átt erfitt með að sætta þig við orðinn hlut. Þetta tengist mjög svikum sem þú verður fyrir og líklega svíður þér sárast að hafa jafnvel að ósekju orðið fyrir barðinu á sviksemi annarra. Talsverður tími mun líða áður en sárin gróa um heilt. Hins vegar ættirðu að líta vel í eigin barm því ýmislegt bendir til að þú valdir sjálf þarna einhverju um því framkoma þín við aðra er ekki fullkomlega heiðarleg. Þegar tímar líða fyrnist yfir flest þessu tengt og þá verður þú reynslunni ríkari og mörg tákn í draumnum benda til að atburðirnir hafí þegar á allt er litið einungis orðið þér til góðs og sem einstaklingur stendur þú mun sterkari eftir að lokum. 34 Vikan 27. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.