Vikan


Vikan - 05.07.1984, Síða 41

Vikan - 05.07.1984, Síða 41
'lly Breinholst ÞýðAnná búin að gleyma því hvernig eldhúsið. . . — Ég er búinn að skrifa þetta niður, stórum stöfum. . . til öryggis, greip ég fram í. Minnið mitt var nú ekki verra en svo að ég mundi lítillega eftir því hvernig eldhúsið leit út þegar hún hafði komið heim í fyrra. — Og gleymdu heldur ekki að þú ert búinn að lofa að mála kjallarahurðina og bílskúrinn. Skrifaöu þaöniður! Ég skrifaöi þaö. — Og það verður að affrysta ísskápinn, tvisvar sinnum. . . Ég leyfði mér að grípa fram í. — Það ertu búin að segja mér tvisvar, sjáðu bara! Ég rétti henni kassakvittunina sigri hrósandi. — Nú, já. .. og mundu svo að ryksuga stofurnar að minnsta kosti einu sinni í viku. Þó þú hafir nú ekki tíma til að vera þar mikið. — Ryksuga, tautaði ég um leið og ég skrifaði það hjá mér. — Og svo verðurðu að muna aö hringja í Tómas og biðja hann að koma og hjálpa þér að fella kastaníutréð. Þú gerðir það ekki í fyrra svo að í ár verður það að gerast. — Ég er búinn að skrifa það. — Þú verður að hringja í hann um leið og ég er farin. Gleymdu því ekki. — Treystumér. — Jæja, þá er bíllinn kom- inn. . . og hafðu það svo gott. . . og settu miðann einhvers staðar þar sem þú finnur hann. Ég lagði hann undir öskubakk- ann í stofunni, svo sást í hann. Síöan fylgdi ég Maríönnu út í bíl og veifaöi í kveðjuskyni. Svo tróð ég í pípuna mína. Ég var ekki með neinar eldspýtur á mér en það var smáglóð í arninum ennþá svo ég náði mér í bréfmiða til að fá eld í pípuna. Ég tók kassakvittunina, sem ég hafði lagt undir öskubakk- ann, rúllaði henni saman, stakk í glóðina og fékk góðan loga á. Svo áttaði ég mig. Ég átti að hringja í Tómas. Ég flýtti mér í símann og hringdi í númerið. — Sæll gamli! sagði ég. — Hvernig hefurðu það? Ertu hress og kátur? Kemurðu þá ekki með mér í 8 daga veiðitúr á morgun? ? Stjörnuspá Hrúturinn 21. mars-20. april Þér hættir til að taka óþarfa áhættu og hugsa ekki skynsam- lega fram í tímann. Þú færð mjög freistandi tilboð, að þínu mati, en þú ættir að hugsa þig vel og vandlega um áður en þú tekur því. Krabbinn 22. júní - 23. júli Þú munt þurfa að ganga í gegnum prófraun á næstunni. Þú sérð ekki strax já- kvæðu hliðina viö þaö en bráðlega gerist mjög skemmtilegur atburöur í lifi þínu og þá munu augu þín opnast. Vogin 24. sept. - 23. okt. Þú ert opinn og fullur af fjöri og því þykir fólki yfirleitt gott aö vera meö þér. Vinir þínir leita til þín meö vandamál á næstunni og það mun koma í þinn hlut að leysa úr því máli. Nautið 21. april - 21. mai Þú ættir að gæta vel að heilsunni því líklegt er að þig muni hrjá eitthvert heilsuleysi á næstunni. Þér líkar illa þegar á móti blæs en þú veist að þaö hefur alltaf þroskandi áhrif. Ljónið 24. júlí - 24. ágúst Sumarið er mjög rómantískur tími og ekki að furða þó þú verðir fyrir ein- hverjum straumum. Þú hefur alltaf skipu- lagt allt líf þitt en í þetta skipti ættir þú að leyfa hverjum degi að hafa sinn gang. Sporðdrekinn 24. okt. - 23. nóv. Þú ert afskaplega lítið fyrir að neita þér um það sem þér þykir gott. En nú er svo komið aö þaö er nauðsynlegt fyrir þig að læra að segja nei, takk! Þú kemst fljót- lega að raun um hvers vegna. Steingeitin 22. des. - 20. jan. Það tók þig nokkurn tíma að jafna þig eftir mikið álag sem þú hefur verið undir. Nú tekur við sælutími hjá þér og þú ættir að reyna að njóta hans til hins ýtrasta því framundan er mikið annríki. Vatnsberinn 21. jan. - 19. febr. Þú verður fyrir óvæntu happi sem setur strik í framtíðaráætlanir þínar. Þetta verður til þess að ný leiö opnast fyrir þig og þú kemur til með að veröa mjög ánægður með það í framtíðinni. Tvíburarnir 22. maí -21. júni Þú ert mjög þolin- móður að eðlisfari en það er samt hægt að ganga fram af þér. Þú mátt ekki æsa þig við ákveðinn vin þinn sem hagar sér heimskulega á næstunni. Reyndu aö ráöleggja honum. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Það veröa einhverjar róttækar breytingar í fjölskyldu þinni á næstu vikum. Það verða ánægjulegar breytingar þegar fram í sækir og þú þarft ekki aö hafa neinar áhyggjur af framtíðinni. Bogmaðurinn 24. nóv. - 21. des. Þú ert alltaf til í að gera eitthvað nýtt og spennandi en ert lítið fyrir skuldbindingar. Þetta fer ákaflega í taugarnar á ein- hverjum þér ná- komnum og því ættir þú að reyna aö laga þetta. Fiskarnir 20. febr.-20. mars Þú hefur mikla þörf fyrir athygli annarra og fólk þarf sífellt að vera að segja álit sitt á þínum málum. Þú verður að læra aö standa á eigin fótum og taka afleiðingum gerða þinna. 27. tbl. Vikan 41

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.