Vikan


Vikan - 05.07.1984, Síða 60

Vikan - 05.07.1984, Síða 60
II Popp________________________ Fríðgeir fer til Seyðisfjarðar Barist fyrir friði Frankie Goes To Hollywood er fyrsta hljómsveitin sem bönnuð hefur verið í breska útvarpinu síðan Sex Pistols voru og hétu. Það sem fór fyrir brjóstið á ráða- mönnum þar á bæ voru línurnar: „Relax, don’t do it / When you want to suck her to it / Relax, don’t do it / when you want to come....” Blessaðir mennirnir töldu að þarna væri átt við dónalega hluti, cunnilingus, fellatio og annað ljótt. Elsku litlu drengirnir voru ekki að meina neitt slíkt með þessu, þaö sem þeir áttu við var til dæmis svona: „Relax, don’t do it...” og þá áttu þeir náttúrlega við að maður ætti ekki aö slappa af, „don’t relax”. Annars virtist ástæðan fyrir banninu fremur vera hvernig orð hljómsveitin hafði fengið á sig. Holly Johnson og Paul Rutherford, aðalsprautur sveitarinnar, eru báðir hommar og eru ekkert að fela það, hafa reyndar verið vinir í níu ár. Videoið viö lagið er reyndar ansi hreint klæmið og athugið að það var ekki sú útgáfa sem þið sáuð í Skonrokki fyrir tveimur eöa þremur mánuðum. Það var útgáf- an sem gerð var eftir að hin haföi verið bönnuð. En ef við tökum textann sjálfan er hann alls ekkert klúrari en hver annar. „Make love to me . . .” er gömul lumma og margir aðrir textar hafa í sér fólgið alveg jafn- Í tilefni lagsins þótti viðeigandi að dressa drengina upp í „militerí" búninga. Þessir munu vera rússneskir en bakgrunnurinn er púra amerískur, sennilega New York. Frá vinstri til hægri: Holly Johnson, Mark O'Toole, Peter „Pedro" Gill, Paul Rutherford, Brian „Gnasher" Nash. Fyrsta umferð og jafnframt hin síðasta. Megum við kynna: Ronald „Big Daddy" Reagan og Konstantin „ófreskjan frá Síberíu" Chernenko. Heimspressan fylgist með. mikið klám og „relax”, bara ef maður er að leita eftir því. Hugsum ekki um það... Nú er þeirra nýjasta „hitt” að detta niður á við á ný eftir hið frá- bæra afrek að stökkva beint í fyrsta sætið á breska listanum. Eins og allir vita er það lagið Two Tribes, mergjaður söngur sem fjallar um stríösbrölt herranna tveggja, algert atómstríð. Þar er drepið á það hvernig fólki kæmi til með að reiða af ef svo ólíklega vildi til að annaö gamalmennið dytti á hnappinn: „When two tribes go to war/ a point is all that you can score....” Það þarf ekki fleiri orð til að lýsa þessu, þetta er ósköp einfalt. Líkurnar til þess að petta lag verði bannað eru hverfar.di, helst væri að videoið færi fyrir brjóstið á einhverjum. Þar er myndskeið af mönnum í líki þeirra Reagans og Chernenkos í upphafi slagsmál- anna, slagsins sem er aðeins ein lota. Við skulum vona að leikir á borð við þennan verði það eina sem við fáum aö sjá af slagsmál- um sem þessum. Texti: Hörður \ 60 Vikan 27« tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.