Vikan - 16.08.1984, Qupperneq 19
legt líf án hennar og annað að gera
út af við hana. Auðvitað var
óhugsandi að ég, Dorothy Jami-
son, góð, trúuð kona gæti — gjör-
samlega óhugsandi! Samt skilaöi
ég túnfiskdósunum ekki aftur. Ég
tók miðana af þeim og vafði þær
inn í kniplingskjól sem ég hafði
keypt í brjálæði mínu einu sinni.
Ég varð aldrei svo óð aftur svo að
ég fór ekki í kjólinn. Þess vegna
voru ómerktar dósirnar í ljós-
grænum kniplingsnáttkjól í innstu
skúffunni minni. Mér fannst ég
áhrifameiri við að vita af þeim.
Auðvitað ætlaöi ég aldrei að nota
þær. Fyrr eða seinna færi ég að
gera hreint og henti þeim og frú
Jamison yrði æf ef hún vissi að ég
hefði hent heilum dal til einskis.
Fólk, sem þekkti frú Jamison
lítillega, gat ekki skilið hvers
vegna ég var ekki hrifin af henni.
Mér fannst hún falleg og
aðlaöandi fyrst þegar ég hitti
hana. Þetta var á styrktarfélags-
tónleikum fyrir trúboð í Afríku.
„Má ég kynna frænku mína,
Dorothy Hunt-Morrison. Frú
Randolph Jamison, Dorothy
mín.”
Ég heyrði á rödd frænku að
þetta voru einhver forréttindi. Frú
Jamison var með fallegan hatt og
glæsilega hárgreiðslu. Greinilega
hafði þekktur snyrtisérfræðingur
komið nálægt andliti hennar.
Sjálfsagt hafði hún verið falleg
þegar hún var ung og sparaði ekk-
ert til að halda fegurðinni við.
Við töluðum um tónleikana,
skólann og loks tókst frænku aö
koma því kurteislega að aö móðir
mín hefði gifst inn í hina þekktu
Hunt-Morrison ætt. Hún bætti því
ekki viö að aumingja pabbi væri
enn aðstoðarprófessor í þriðja
flokksskóla.
Frú Randolph Jamison bauð
okkur í kvöldmat daginn eftir.
Hún sagði að sonur sinn, Randolph
Jamison fjórði, væri líka í skóla-
fríi. Ég tók boðinu tveim höndum.
Það yrði mun skemmtilegra að
hitta sætan strák í fríinu og hann
hlyti að líta vel út ef hann væri
líkur móður sinni.
Hann var ekkert líkur henni.
Hann var alveg eins og myndin af
pabba hans í setustofunni. Én
hann var hávaxinn og gáfaður.
Konurnar töluöu um prestinn,
organistann og næsta kirkjuboð.
Þær gáfu það greinilega í skyn að
við mættum tala saman.
Mér fannst Randolph Jamison
fjórði óttalega klunnalegur
ungur maður, sennilega vegna
þess að faðir hans dó þegar hann
var ungur. Ég frétti að honum
þætti gaman að lesa og langaði til
útlanda næsta sumar. Ég kallaði
hann Randy en hann hvíslaði að
mér að mamma sín þyldi engin
uppnefni. Hann væri alltaf
kallaður Randolph.
„Líka í skólanum?” spurði ég.
Hann bara brosti og sagði mér
frá ritgerð sem hann væri að
skrifa um heimspeki Santayana.
Það leið langur tími áður en ég
komst að því að strákarnir í
skólanum kölluðu hann aldrei
neitt.
Sagan um tilhugalíf okkar og
giftingu er fljótsögð. Frú Jamison
komst að þeirri niðurstöðu að ég
væri lagleg, kynni mannasiöi og
yrði þæg tengdadóttir. Svo var ég
líka af Hunt-Morrison ættinni.
Frænka hafði alltaf verið hrifin af
auðæfum Jamisonanna. Nokkrum
dögum eftir lokapróf var ég gift
kona og brúðkaupið fór fram í
sömu kirkju og ég hitti frú Jami-
son fyrst í. Frænka hélt brúð-
kaupsveisluna. Pabbi hefði auð-
vitað getað séð um allt en við
Randolph vorum að ljúka prófi og
hugsa um brúðkaupsferðina.
París var eins og við höfðum
vonast eftir. Við ræddum mikið
um listastefnur. Randolph var
hrifnari af gömlu meisturunum en
ég af Picasso. Ég áleit að hann
þyrfti að kynnast ungu málurun-
um til að elska þá eins og ég. Við
fórum til Louvre en vorum mest á
nýlistasöfnum. Mér tókst að
kenna Randolph aö horfa á mál-
verk.
Við vorum mjög hamingjusöm
og þótti slæmt að fara heim.
Randolph átti að byrja að vinna í
fyrirtækinu og ég átti að verða
húsmóöir.
Frú Jamison tók á móti okkur
og sagði að herbergið okkar væri
til reiðu. Hún hlustaði með athygli
á allt sem við höfðum gert og séð.
Mér fannst ég vera ævintýraprins-
essan. Það var dásamlegt að búa
í þessu fallega húsi og þurfa
aðeins að vera dama. En ég
þreyttist fljótlega á að vera gestur
og fór að tala um eigin íbúð.
„En hlægilegt!” sagði móðir
Randolphs og flissaöi eins og
stelpa. Fyrst þótti mér þetta fliss
hennar töfrandi en það var farið
að ergja mig. Hún var ekki
ung lengur.
„Hvers vegna ættuð þið að fá
ykkur íbúð þegar nóg húsrými er
hér? Þú veist ekkert um húshald,
Dorothy mín. Vertu hérna þangað
til ég hef kennt þér undirstöðu-
atriði eldamennsku og hvernig á
að ráða við þjónustufólk.
Randolph er vanur að vel fari um
hann. Ég er sannfærð um að hann
vill vera hér þangað til þú hefur
lærtþetta.”
Ég leit á Randolph og vonaði að
hann sætti sig við brennt kex svo
að okkur liði jafnvel og í París og
Flórens. Hann forðaðist að líta á
mig. Hann þagði. Þegar við
vorum orðin ein sagði ég að það
væri best að gá að íbúð á morgun.
„Það er víst rétt hjá mömmu
að þú íærir húshald hér,” sagði
hann.
Hann var svo breyttur hjá
móður sinni en ekki gat ég sagt
honum að ég fyndi muninn þá. Ég
ætlaði að læra að hugsa um heim-
ili sem fyrst.
Ég gerði það. Ég talaði við
eldabuskuna og málarann og loks
fór ég að sjá um matinn. Ég bauð
fólki heim en þaö gekk ekki vel.
Ekki gat ég sagt frú Jamison að
hún væri ekki velkomin við borð-
stofuborðið heima hjá sér. En
fólkið skemmti sér ekki. Ég benti
Randolph á þá staöreynd.
„Nú fer ég og tala við Hunter og
Connolly. Við þurfum bara lítið
hús. Viltu einhvern sérstakan
borgarhluta?”
Randolph leit hikandi á mig.
„Ég er hræddur um að mamma sé
vön að hafa okkur hér. Hún veröur
reið.”
„Vitleysa! Það er ekki eins og
við séum að flytja langt! Við
komum oft í heimsókn. ”
Tveimur vikum seinna fékk ég
að sjá lítið og sætt hús. Ég sagði
þeim frá því um kvöldið. Frú
Jamison tók upp lítinn vasaklút og
fór að gráta án þess að eyðileggja
snyrtinguna.
„Ég hélt að þið væruð ánægð
héma,”sagöihún.
„Auðvitað erum við það,
mamma.” sagöi Randolph.
Ég reyndi að útskýra fyrir
henni aö ungt fólk þyrfti að fá að
vera í friði fyrstu hjónabandsárin
en frú Jamison hélt áfram að
gráta.
„Ekki hef ég verið að skipta
méraf ykkur.”
„Auðvitað ekki, mamma. Þú
gætir ekki gert slíkt.”
„Ég get ekki hugsað mér að
búahér ein.”
Randolph féll fyrir þessu og
fullvissaði hana um að við
myndum aldrei kaupa lítið hús á
Elm Street. Ég reyndi viö hann í
rúminu um kvöldiö en ég kunni
ekkert fyrir mér. Ég varð bara
rauðeygð og nefið á mér bólgnaði
þegar ég grét.
Ég lét undan í bili. Svo ákvað ég
að mála svefnherbergið fyrst við
áttum að vera þarna til eilífðar-
nóns. Það var reglulega sætt. Litlu
Picassoteikningarnar, sem ég
hafði fengið svo ódýrt í París,
ráku endahnútinn á allt saman.
Randolph var enn hrifinn af gömlu
meisturunum en ég áleit að þaö
lagaðist með tímanum. Fyrr eða
seinna kæmi barn í heiminn. Frú
Jamison yrði leið á að vakna á
nóttinni. En ég varð ekki barns-
hafandi. Ég talaði um tökubarn og
tengdamóður minni var nóg boðið.
„Hvernig dettur þér í hug að
tökubarn geti borið Jamison-nafn-
ið?” sagði hún. — „Hvernig getur
þér dottið svona í hug? ”
Ég varð alveg vitlaus um
kvöldið. „Hún lifir okkar lífi,”
sagði ég viö Randolph. „Við
verðum aö komast héðan. Ég vil
búaískúrmeðþér.”
Aumingja Randolph. Kon-
urnar tvær, sem hann elskaði,
toguðu báðar í hann. Ég tapaði
alltaf reiptoginu. Tengdamóðir
mín kunni taflið betur. Ég leit á
hana sem skrímsli í dulargervi.
Mig dreymdi um það sem ég gæti
gert þegar hún væri dauð, en hún
var viö bestu heilsu.
Svo kom fréttin um fiskinn.
Ég lék mér að þeirri tilhugsun að
nota hann einhvern tímann. Auð-
vitað yrði ég að fara gætilega að
því. Við Randolph máttum ekki fá
bita. Hvernig færi ég að því ef ég
gerði það sem ég myndi auðvitað
aldrei gera? Ég yrði að bera þetta
fram sem smárétti og gæta þess
vel að diskarnir lentu á réttum
stað. Hvernig fara moröingjarnir
ekki í leynilögreglusögum?
Stundum drepa þeir ekki réttu
manneskjuna. Auðvitað var þetta
hlægilegt. Eins og ég væri morð-
ingi.
Ég hefði sennilega látið sitja
við hugsunina eina ef það hefðu
ekki verið gluggatjöldin. Þau
komu í vægast sagt slæmu ástandi
úr hreinsun. Ég lagði til að kaupa
gluggatjöld sem ekki þyrfti að
strauja.
Frú Jamison brá. „Það var
frægur innréttingafræðingur sem
sá um herbergið hér,” sagði hún.
„Égvilengu breyta.”
„Ég held að þetta efni sé ekki
lengurtil.”
„Þú verður að fara í bestu
búðirnar. Ég er sannfærð um að
við getum fengið næstum eins
efni.”
Ég fór á söfn og lét mér líða vel
allan daginn í bænum og rétt áður
en ég fór heim keypti ég bút af
gerviefni sem var nákvæmlega
eins á litinn og hitt.
„Þetta er eiginlega eins,” sagði
33. tbl. Vikan X9