Vikan - 16.08.1984, Síða 40
Fimm mínútur meö Willy Breinholst
Skipulagsbreytingar, þróuð
starfsmannastjórn, endurskipu-
lagning, iðnvæðing, tölvuvæðing,
allt er þetta nokkuð sem gerir
þeim sem kominn er yfir
fimmtugt og lendir allt í einu í því
að standa uppi atvinnulaus órótt í
skapi. Fyrirtæki Antonsens haföi
verið lagt niður vegna erfiðrar
samkeppnisstööu, þar hafði
þróunin hreint og beint ekki orðið
nógu hröð... og allt í einu stóð
Antonsen frammi fyrir því að
hann var þarna á vinnumarkaðin-
um, of ungur til að leggja árar í
bát og of gamall til að finna sér
nýtt starf. Hann sótti um hvert
starfið af öðru, á skrifstofu eftir
skrifstofu, en án árangurs. Og
þegar auglýst var mjög skýrt af-
markað starf í stórmarkaðinum
þar sem Antonsen hafði verslað í
fjölda ára þá sótti hann um það.
— Þú færö þaö ekki, sagði konan
hans og var heldur svartsýn.
— Það sakar víst ekki að reyna,
sagði Antonsen. Svo fór hann í
fallegu, dökkbláu skrifstofufötin
sín, burstaði svörtu skóna sína enn
einu sinni og spurði konuna sína
■tgrtring isograph
Ingólfsstræti 2, simi 13271
Verslanir: Ilallarmúla 2 s:832l I
Laugavegi 84 HaJnarsiræti 18
Viðurkenndir úrvals pennar fyrir
atvinnumenn, kennararog námsfólk.
Rotring teiknipennar og teikniáhöld fást í
þægilegum einingum fyrir skóla og
teiknistofur.
Tvöföld þétting í hettunni tryggir, að eigin-
leikar (Rotring Isograph) eru ávallt hinir
sömu, jafnvel þótt hann hafi ekki verið
notaður lengi.
ÁVALLT
í FARARBRODDI
TEIKNIPENNA
40 Vlkan 33. tbl.