Vikan


Vikan - 01.11.1984, Blaðsíða 9

Vikan - 01.11.1984, Blaðsíða 9
gerðum en það er næstum skylda að tala frönsku. Þess er gætt að út- lendingar blandist þarlendum sem allra best þannig að í þessum besta förðunarskóla Parísar læra þeir frönskuna líka. „Þeir reyna að gæta þess aö út- lendingamir myndi ekki of lokaöan hóp,” segír Elín. „Enda gefst það fremur illa þegar til lengdar lætur. Enskumælandi er stíað strax í sundur og jafnframt erum við látin skiptast reglulega á því að vera módel hvert fyrir ann- að, alls ekki talið gott að menn stöðvist viö sama andlitið. Ef þú færð einhvem til að sitja fyrir þig fyrri helming dagsins ertu skyld- ugur að gera þaö sama fyrir hann eftir hádegið. Þetta byggist mikið á vinnu með lifandi módel, fyrir- lestrar em tvisvar til þrisvar í viku og þá á morgnana. Sýni- kennsla er þá í leiðinni. Skólinn er í niu mánuði en það er hægt að taka styttri kúrsa líka, þriggja og sex mánaða, en það gefur ekki sömu réttindi. Helmingur nemenda kemst áfram en þeir sem falla eiga kost á að reyna við prófið aftur síðar. En héma er þröskuldurinn að skila bókinni sem á að innihalda okkar eigin vinnu með öllum verkefnum. Fyrir Islending getur verið erfitt að finna manneskju sem er til í að eyða heilu helgunum sem til- raunadýr í förðun — og þá er sjálf myndatakan eftir. Stúdíótímar em dýrir þannig að það kemur varla til greina f járhagslega og þá er að vixrna helst allt úti undir ber- um himni. Og með alla fjöl- skylduna víðs fjarri getur verið erfitt að ná árangri, ekki getur maður sífellt málað sjálfan sig og tekið síðan myndir af eigin líkama og andliti. Þess vegna er um að gera að koma sér upp einhverjum kunningjahópi og héma hafa Islendingamir reynst mér vel. Héma er kennd almenn tísku- förðun, leikhúsförðun og síðast förðun fyrir kvikmyndir og fanta- síur. Skólinn sér um að senda nemendur í starfskynningar — í kvikmynda- og leiklistarskóla og einnig til að farða á tískusýn- ingum og öðrum uppákomum. Við vinnum þetta allt með mjög góðum ítölskum vörum — Diego Dalla Palma. Fyrir spesíaleffekt- ín notum við latex (gúmmímjólk), efni sem kallast naturo pasto en þaö er vaxkennt og gott að móta úr því. Blóðið er mjög raunveru- legt og ef það stendur lengi í gervi- sári virðist þaö storkna. Skólinn er mjög góður en þrengslin eru oft voðaleg.” Þetta með þrengslin er þekkt vandamál í frönskum skólum. „Þaö þætti ekki boðlegt skóla- húsnæði á Islandi þar sem ég er,” segir Sigrún. „Fyrst er gengið í gegnum bílskúr og síðan inn í bak- garð. Hann stendur viö ágæta götu sem að vísu er fremur lítil og vandfundin — á Rue Letellier. En þetta er dýr skóli með höfuð- stöðvar í New York, heitir Par- sons School of Design. tJtibú eru í París og Tókíó. Því kom mér hús- næðið verulega á óvart. Frá bíl- geymslunni liggur leiðin inn í bak- garð og þar eru tvö lítil hús — eldgömul. Meira að segja gólfin eru steinlögð eins og gömul gata. Þaö er svo kalt í þessum hjalli að stundum á vetuma þarf að flytja kennsluna á næsta kaffihús því nemendumir verða svo loppnir á fingrunum að þeir geta ekki teikn- að. Þetta þætti ekki boðlegt á Is- landi. En það er margt nýstár- legt þama að finna, merkilegt að sjá til þeirra sem komnir em á annað ár. Stundum hægt að segja — allt má kalla list! Síðan fer maöur að tala við hina og þessa, skilja hvað þama er á ferðinni og pæla í hlutunum sjálfur. Síðast í maí var svo skólasýning þar sem verkefnið var höfuð og herðar — á okkur sjálfum. Þaö var stórkostlega gaman þótt vinnan væri mikil. Pascal heitir einn og hann fann gamalt útvarp á götu. Það varð honum næg upp- götvun. Yukari gerði blævængja- þema, enda japönsk, og Michel mætti með undarlegan plasthatt. Ég átti bágt með hreyfingar í minni múnderingu og var upp á góðvilja annarra komin með alla næringu þennan sýningardag. En það voru alltaf einhverjir tilbúnir til að gefa mér rauðvín að drekka gegnum rör. Sýningin vakti mikla hrifningu gesta frá höfuðstöðvunum i New York og við töldum okkur geta vel við unað. Næst tekur svo við hjá mér meiri áhersla á umbúðahönnun og dagblaðaútlit ásamt fleiru, en það var óskaplega gaman að skúlptúm- um.” Myrkrið verður sífellt svartara úti, rifan á bekknum er orðin þreytandi og Oli lokbrá farinn að fitla við augnlokin. Enda ein þrautin eftir — að finna hótelið sem er ekki í þessu sama hverfi heldur einhvers staðar í latínu- hverfinu. En þó að lokum: Langar ykkur heim? „Nei, ekki strax. Til hvers? er einróma svar. „Það er eitthvað svo mikið við París og við erum rétt að ná áttum enda nóg eftir til að læra og alltaf hægt að fara heim einhvem tímann seinna. ” 38. tbl. Vikan 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.