Vikan


Vikan - 01.11.1984, Side 11

Vikan - 01.11.1984, Side 11
Margt smátt Eins og að spiia „stjörnustríð" Ný tækni til þess að losa fóik við nýrnasteina Það er ótrúlegt en satt að líklega væri gagnleg starfsþjálf- un fyrir lækna að spila „stjörnustríð" á leiktölvu. Ástæðan er ekki bara sú að handstyrkurinn aukist við þjálfun af þessu tæi heldur er sjálfur leikurinn furðu líkur nýrri tækni til þess að eyða nýrnasteinum. Læknarnir eru líka komnir það til fullorðinsára að lítil hætta er á að þeir yrðu haldnir spilafíkn. Það eru Vestur-Þjóðverjar sem eiga heiðurinn af þessari uppfinningu. Hún er í aðalatriðum þannig að sjúklingnum er komið fyrir á börum sem siga niður í baðker fullt af vatni. Börunum er lyft með vökvatjökkum og hægt að hagræða sjúklingnum á ýmsa vegu. Undir kerinu eru sendar sem framleiða byigjur með rafskautum og beina þeirri skothríð að nýrum sjúklingsins. Andspænis hvorum sendi er tölvu- tengd röntgenmyndavél sem gefur lækninum upplýsingar um hve vel hann hittir skotmörkin: nýrnasteinana. Síðan ganga kurlaðir steinarnir niður af sjúklingnum með þvag- inu. Sagt er að við fyrstu prófanir hafi þessi útbúnaður reynst ágætlega. Flest klæðir Björn Borg Börnin burt úr skúffunum Hér er vinsam/eg ábending til foreldra sem viija ekki hafa börnin sín í skúffunum allan lið- langan daginn. Ef skúffurnar eru með höldum afþessu tagi er ein- faldast af öllu að setja bara spýtu eins og sýnt er á teikning- unni. Þessu bifa börnin ekki. Hlýðninámsk. - hundaeig. I Hlýðninámskeiö I og II eru að hefjást. Kennt ] er í litlum hópum. Innritanir í síma 54151. Vinsamlegast staðfestið pantanir. ■ Hlýðninefnd Hundaræktarfélags íslands. Sky/c/i A/bert mæta? L___________________________________l Sænska tennishetjan Bjöm Borg kom ekki alls fyrir löngu fram á tískusýningu í París. Nú á að kenna körlum aö klæða sig smart og fylgir það sögunni að með þeim flíkum sem við sjáum á myndinni skuli endi bundinn á „slöppu tískuna”. Flíkurnar sem félagamir flagga, en Borg er í miðjunni, bera nafnið „Bjöm Borg Collection”. Að vísu hefur kappinn sjálfur lítið með þessi föt að gera, hann hvorki hannaði þau né gengur í þeim. Best þykir Borg að ganga í gallabuxum og bol. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að Bjöm fékk 50.000 kall fyrir að sýna fötin í 20 mínútur á sviðinu í París (það gerir 150.000 í tíma- kaup) og aö auki fær hann hluta af sölunni. Þetta eru kannski ekki stórar upphæðir fyrir svona stórstjömu — kannski hann hafi bara látið hendur standa fram úr ermum og skálmað fyrir málstaðinn: sænskan iðnað og útflutning! 38. tbl. Vikan 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.