Vikan - 01.11.1984, Page 33
I
íf « ♦ K
w & ”:
i
Er þetta þá götudans eins og
hann er upphaflega hugsaður?
Rúrik: Það hafa verið skrif um
það í blööum að breikdansinn eigi
ekki heima hér á Islandi heldur
aðeins á götum úti í Bandaríkjun-
um en þetta er þvæla. Götudans-
inn er kominn mikið til af götun-
um. Það sjást auðvitað ennþá
hópar sem eru að vinna sér inn
peninga meö þessu úti á götu en
þeir sem byrjuöu á þessu eru
löngu komnir af götunum og vinna
nú við að sýna á skemmtistöð-
um. . .
Stefán: . . .nú eða þá þetta fólk
er orðið kvikmyndastjömur eins
og til dæmis Michael Boogaloo
Schrimp sem dansar Turbo í kvik-
myndinni Breakdance. Þessir
strákar eru ekki lengur á götunni.
Þetta er orðið tískufyrirbæri og
kom reyndar fyrst hingað þegar
þetta var komið mestmegnis af
götunum og inn á skemmti-
staöina. Það hafa líka sumir verið
að halda því fram að við hér á Is-
landi ættum að láta þetta eiga sig,
við getum aldrei náð þessum
hreyfingum, en þetta er rugl.
Miðað við hvað stutt er síöan við
byrjuðum á þessu er furðulegt
hvað við getum gert.
Hvað er svo framundan hjá
ykkur í vetur?
Stefán: Eg var í æfingadeild
Kennaraháskóla Islands síðast-
liðinn vetur, í 9. bekk. Eg hef
slegið frekar slöku við undanfarið
í náminu, komst á einhvers konar
kæruleysisstig seinni hluta 8.
bekkjar. Mig langar hins vegar til
að halda áfram í skóla og þá
jafnvel aö fara í Kvennaskólann
sem er ekki lengur kvennaskóli
eins og þú kannski veist. Eg kenni
svo breikdans í vetur hjá Kol-
brúnu Aðalsteinsdóttur þar sem
ég er sjálfur að læra jassballett.
Rúrik: Ég fer í Menntaskólann
við Hamrahlíð. Þetta er fjórða
árið mitt þar og svo fer ég aö
kenna breik með skólanum í Dans-
stúdíói Sóleyjar.
38. tbl. Vlkan 33