Vikan


Vikan - 01.11.1984, Blaðsíða 42

Vikan - 01.11.1984, Blaðsíða 42
\3 Framhaldssaga Þriðji hluti r CyiSTIR ^EMMU Janette Seymour Kapellan var fyrir enda suöur- álmunnar, hinum megin viö íitla salinn, og var sérbygging í barokkstíl meö klukkuturni. Um leiö og Emma lauk upp niðri og hljóp yfir stórt hlaðiö sló klukkan stundarfjóröung í tólf á miðnætti. Ugla vældi í rjóðrinu niöri viö ána. Másandi af áreynslunni kom hún að hliðardyrum kapellunnar og ýtti á þunga lokuna. Sem betur fer voru dyrnar ólæstar og huröin lét undan snertingu hennar. Hún fór inn og lokaði á eftir sér, staldraöi snöggvast viö og lagöi við hlustir meö ákafan hjartslátt. Ekkert hljóö heyröist utan kunnuglegt tap-tap-tap í trjábjöllunni sem kynnti kvendýri tegundarinnar nærveru sína. Tunglsljósið skein inn um skipta gluggana og á marmaraminnisvarðann um yfir- gjaldkera John Churchills sem gnæföi til lofts á vesturvegg kapellunnar, við hliöina á pípum stóra orgelsins. Dyrnar aö þrepunum upp á svalirnar stóöu opnar. Hún læddist þangað á tánum, í gegnum flekki af tungls- ljósi og skugga á marmaralögöu gólfinu. Eitthvað (mús, rotta?) skaust eftir tréverkinu þegar hún gekk upp stigann og þaö brakaði ugg- vænlega í þrepunum í þögninni í kapellunni. Þegar Emma kom efst í stigann sá hún sér til angurs að vegna svalahandriðsins og vegna þess að þarna uppi voru engir gluggar náöi tunglsljósið, sem skein inn um gluggana niöri, ekki aö lýsa neins staöar á gólfiö uppi. Hún hafði ekkert með sér til að lýsa þarna upp og mundi aðeins nokkurn veginn hvar hún haföi setið í fremstu röð á svölunum meöan á aftansöng stóö. Hún varö aö krjúpa á kné og fálma meö fingrunum eftir dagbókinni. Það tók lengri tíma en hún haföi haldið. Eftir kvalafull andartök tók hún aö gera sér grein fyrir að ekki var ólíklegt aö hún heföi misst dagbókina annars staöar en í kapellunni. Hvaö sem því leið gripu fingur hennar loks um grip- inn. Hún lá svolítið frá staðnum Hver er Emma? Hún er ung og falleg stúlka sem kemst að raun um að lífið er enginn dans á rósum og allt krefst nokkurra fórna. — Þegar sagan hefst munar minnstu að hún verði fómarlamb siðlausra óþokka en í það skiptið sleppur hún með skrekkinn. Hún neyðist til að ganga að eiga mann sem er henni lítt að skapi sem eiginmaður, en ævintýraferlinum er síður en svo lokið þótt hún sé gengin í það heilaga — þá fyrst fer að færast fjör í leikinn. Ein- hver leyndardómsfullur huldumaður gerir henni lífið leitt, þar til að lokum að hún uppgötvar hver hann er — og þá verða lesendurnir væntanlega ekki síður undrandi en hún sjálf.... Æsispennandi ævintýraróman — um lífsreynslu sem ekki fyrirfinnst lengur, ástir og hrakninga — mannvíg og mansal — látið ÁSTIR EMMU ekki fram hjá ykkur fara! þar sem hún hafði setiö. Líkast til haföi annaðhvort hún eða sessu- nautur hennar sparkað í hana þegar brott var gengið. Með hljóöri þakkarbæn stakk hún lausmálli dagbókinni í slopp- vasann og fetaði sig aftur aö stig- anum. I því aö hún geröi það marraði í hliðardyrum kapellunnar — þeim sem hún haföi komið inn um — og þær opnuðust hægt. Hún heyrði samfellt tuldur yfirgnæfa skyndi- legan, trylltan hjartslátt sinn, líkt og þegar hópur fólks kemur sam- an á hljóðum staö til aö ræða málin. Nærri því ógreinanlegar samræðurnar þögnuöu jafnskjótt og þær höföu hafist og fótatak heyrðist færast eftir miðgangi kapellunnar. Hljóöiö var daufir skellir i berum f ótum! Skelfd en forvitin gægðist Emma varlega yfir svalahand- riðiö, nægilega snemma til aö sjá tvær dökkklæddar verur flögra eftir ganginum í átt að altarinu. Önnur þeirra hélt á logandi kerti, glampandi stjörnu á endanum á langri stöng. Viö altarið teygði blysberinn sig upp og kveikti á háu kertunum fjórum sem þar stóöu. I skini þeirra sá Emma að verurnar tvær voru konur. Sítt hár þeirra féll laust niður á bakið. Auk þess voru ökklasíðar svartar flík- urnar, sem þær klæddust, næfur- þunnar og efnisrýrar og leiddu í ljós rennilegan kvenlegan vöxtinn undir. Báðar voru berfættar og báöar voru með svartar grímur fyrirandlitinu! Kertaljósinu fylgdi meira skrjáf og fótatak fleiri berra fóta. Eftir ganginum streymdu fleiri svart- klæddar verur, bæði karlar og konur og allar meö grímur. Þær tóku sér stööu í bekkjaröðunum frammi fyrir altarinu. Þar stóöu þær eins og biðu þær eftir að ein- hvers konar athöfn hæfist. Hliðardyrnar opnuöust og lokuð- ust og fleiri bættust í hópinn. Með því að teygja hálsinn til aö sjá sem best tókst óséöa áhorfandanum uppi á svölunum að koma fyrst allra auga á þá nýkomnu; karl og 42 Vikan 38. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.