Vikan - 31.01.1985, Síða 38
Litið í lófa
Lófalestur er vinsæll hér á landi sem annars staðar og Vikan hefur af og til birt
einfaldar leiðbeiningar í lófalestri, einkum fyrir þá sem eru forvitnir um ástamálin
og vilja vita hvað línurnar í lófunum segja um þau.
Að þessu sinni verður litið á alla höndina, línur, fjöll og lögun handarinnar, og
skýrð út nokkur grundvallaratriði lófalesturs á einfaldan hátt sem engum ætti að
vera ofviða.
Til að fá nákvæman lófalestur verður auðvitað að fara til þeirra sem lagt hafa
hann fyrir sig en það er alltaf gaman að líta aðeins á um hvað er að ræða. Oft er
spurt í hvorn lófann eigi að lesa en svarið er: Það á að lesa í þá báða. í vinstri
hendinni er upplagið, hæfileikarnir sem maður er fæddur með, í þeirri hægri það
sem maður gerir úr þeim. Hjá örvhentum er þetta þó öfugt.
Tunglfjallið
Þykkt og þétt tunglfjall bendir til þess
að listrænir hæfileikar séu vel þroskaðir,
sömuleiðis innsæið. Ef það er sérlega
þykkt er manneskjan sem það hefur
óvenju ástríðufull. Ef það er þunnt er lík-
legt að skynsemin hafi yfirhöndina hjá við-
komandi. Þá sem eru ekki með neitt tungl-
fjall skortir hugmyndaflug.
Hjartalínan
Hjartalína, sem endar á milli vísi-
fingurs og löngutangar, bendir til þess
að eigandinn sé mjög tilfinninganæmur
og hjartahlýr. Kaldlyndar manneskjur
eru með stutta hjartalínu eða dauft
markaða. Því loðnari sem hjartalínan er
þeim mun flóknari eru ástamálin.
Hjónabandslínan
Yst á hendinni, ofan við hjartalínu, neðan við litla-
fingur, eru línur, hver þeirra merkir eitt alvarlegt ásta-
samband sem gæti endað í hjónabandi en gerir það
alls ekki alltaf.
Apollo-fingurinn
Því lengri og fallegri sem Apollo-fingurinn
er (baugfingur) þeim mun beturvegnar
eigandanum í listum og öðru slíku. Ef hann er
styttri en vísifingur getur verið að mannleg
samskipti séu nokkuð strið eða stembin. Ef
hann er álíka langur og langa-
töng bendir þaðtil leikaraskapar
Ef baugfingur og vísifingur eru
jafnlangir bendir það til jafn-
vægis á milli áhuga eigandans á
öðrum og sjálfum sér.
Venusarfjallið
Þeir sem eru með þykk
Venusarfjall eru hjartahlýir, rólegir,
munúðarfullir fegurðardýrkendur.
Ef það er mjög stórt er munúðin
mjög mikil. Þeir sem hafa óþroskað
Venusarfjall eru fremur kaldlyndir.
Þumallinn
Þeir sem hafa stóran þumal líta oft
mjög stórt á sig. Þarna er stjórnsemin
og driftin sýnd. Lítill þumall fylgir fólki
sem hefur lítinn myndugleik til að bera.
Satúrnusar-fingurinn
Skylduræknin er í Satúrnusar-fingrinum
(löngutöng). Ef hann er langur bendir það til
þess að lífið sé mjög fastmótað af öðrum, sé
hann óvenju stuttur vantar eitthvað upp á
einbeitinguna.
Júpíters-fingurinn
Júpíters-fingurinn (vísifingur) er fingur skyn-
semi og sjálfsmats. Ef hann er langur og sterk-
legur er það vfirleitt talið alveg ákjósanlegt.
Ef hann er óvenju breiður bendir það til mikillar
efnishyggju.Ef hann er styttri en baugfingur getur
verið að viðkomandi sé nokkuð sjálfsvorkunnsamur.)
Merkúr-fingurinn
Litlifingurinn segir til um sambandið
við umheiminn. Því stærri og betur lag-
aður sem hann er þeim mun betur mun
eigandanum vegna í mannlegum sam-
skiptum. Of langur litlifingur bendir
yfirleitt til þess að sá sem hann hefur
hafi áhuga á öðru fólki.
Sólarlínan
Þessi lína sýnir listahæfileika betur en
nokkuð annað. Hún er stundum ekki til staðar.
Samhliða henni verður að líta á örlagalínuna til
að sjá hvort mönnum verður eitthvað úr hæfi-
leikunum.
Höfuðlínan
Andlegur kraftur birtist í
höfuðlínunni, gáfur og áhugi
á andlega sviðinu. Ef hún endar tvo
fingur frá handarjaðrinum vantar
eitthvað upp á andlega snerpu og
úthald. Ef húnnær yfir höndina
bendir það til gáfna. Þá fylgir
henni kraftur og skýr hugsun.
Örlagalínan
Glæpamenn
eru sjaldan með örlagalínu.
Í henni sést sjálfsagi og
dómgreind. Því stærri og betur
mörkuð sem hún er þeim mun
meira af þessum eiginleikum.
Þeir sem vita ekki hvað þeir vilja
eru með stutta örlagalínu. Drift
fylgir þeim sem eru með örlagalínu
samsíða líflínunni á lögum kafla.
Líflínan
Því þetur sem líflín-
an sveigir inn í lófann
þeim mun meiri lífs-
þróttur er í eigandan-
um. Veikt mörkuð og
brotin líflína bendir
hins vegar við veik-
geðja persónuleika. Þar
sem líflínan er tvöföld
er lífsþrótturinn einnig
tvöfaldur.
38 Vikan 5. tbl.