Vikan - 31.01.1985, Side 39
Lögun
handarinnar
Hún er breiöust um lófann en fingurnir
nettir. Fólk meö svona hendur er starf-
samt og úrræöagott en leitar mjög eftir
öryggi. Þaö kann best við sig í vinahópi
eða með fjölskyldunni. Þaö á oft í
erfiöleikum með aö finna sér staö i
tilverunni, meö eigin áhugamál og
ákvarðanir, þvi þaö miðar allt viö fólkiö i
kringum sig. Þessi hönd ertalin kvenleg.
Köntuð hönd
Þessa hönd mætti kalla næstum fer-
kantaða. Þeir sem hafa hendur af þessari
gerö eru yfirleitt fremur íhaldssamir og
vilja hafa allt i röö og reglu. Þeir taka
öryggi fram yfir stundaránægju og
áhættu. Þeir eiga létt meö að líta hlutlægt
á málin og fordómalaust. Þeir eru mjög
duglegir. Þessi hönd ertalin karlmannleg.
Raunsæi eða
hugsjónir?
Það sést á
fingralengdinni
Ef fingurnir eru lengri en
lófinn
Maður dæmir fingralengd eftir
löngutöng. Sé hún lengri en lófinn
(mældur í beinu framhaldi af löngutöng)
bendir það til þess aö störfin sem
viökomandi velur séu á andlega sviðinu.
Því lengri fingur þeim mun andlegri
áhugamál. „Fingralangar" hendurbenda
oft til listrænna hæfileika sem ekki nýtast
alltaf sem skyldi því fólki með þessa gerð
handa hættir viö aö elta tálsýnir.
Ef lófinn er lengri en fingurnir
Ef lófinn er lengri en fingurnir (mælt
frá löngutöng niöur aö úlnlið) má gera
ráð fyrir að eigandi handarinnar sé raun-
sær að eðlisfari. Hann elskar að fram-
kvæma og hugsa. Efnishyggjumaður og
hefur áhuga á viöskiptum. Hann á létt
meö að koma sér fljótt úr þeim erfiöleik-
um er að kunna aö steðja í lífinu. Hins
vegar er honum lítt aö skapi aö kjást við
heimspekileg viöfangsefni. Þaö sem
næst honum stendur er honum langkær-
ast.
Lögun
naglanna
segir til um
skapgerðina
Egglaga neglur
Þær eru breiöastar viö naglaböndin.
Þær benda til listrænna hæfileika, ástar á
fögrum hlutum og mikillar þarfar fyrir
samræmi I tilverunni. Skapgerð fólks
meö svona neglur er ástúöleg og ástleitin
og það sækir í aö komast i hjónaband.
Svona neglur finnast bæði hjá þeim sem
eru mjög starfsamir og óvirkir i samfélag-
inu.
Kantaðar neglur
Þaö er sama hvort kantaöar neglur
mynda rétthyrning eöa ferning, skap-
geröin sem þær túlka er: skynsemi,
jákvætt hugarfar og jarðbundinn
hugsunarháttur. Stundum þykir fólkið
með þessa naglagerö svifaseint og jafn-
vel talsvert formfast. Það leggur mikla
áherslu á að fara samningaleiöina í öllum
málum. Ef kantaðar neglur eru á odd-
mjórri hendi má gera ráð fyrir aö raunsæ-
iö sé hugsjónum yfirsterkara þó fólkiö
beri merki beggja eölisþátta.
Oddmjó hönd
Grannir fingur og rennilegir heyra
þessari handargerð til. Þeir sem hafa
svona hendur hafa meiri áhuga á tilfinn-
ingum en skynsemi. Þeir hafa unun af að
takast á viö vandamál lífsins. Andleg
iökan og fagurfræöileg málefni og listir
eru eftirlæti þeirra og svala feguröar-
þránni sem þeim er i blóö borin best.
Störf allt frá myndlist til snyrtifræða
henta þeim. Þetta er sígild hönd hins við-
kvæma listamanns.
Ef lófi og langatöng
eru álíka löng
Þessi gerö af lófa bendir til ákjósan-
legrar blöndu af hugsjónaeldi og raun-
sæi. Þeir sem eru með svona hönd gefa
innsæi sínu yfirleitt gaum án þess aö láta
þaö leiða sig i gönur. Þeir eiga sitt hugar-
flug óbrenglaö en láta skynsemina ekki
missa tökin á sér. Þeir hafa áhuga á skyn-
samlegum rökræöum af og til og halda
fullu jarösambandi.
Þríhyrndar neglur
Þetta eru neglur sem breikka upp aö
fingurgómunum. Þeir sem eru með
svona neglur eru óvenju starfsamir eða
ætti maöur kannski að segja lúsiðnir. Þeir
eru hagsýnir, hafa viöskiptavit og vilja
hafa fast land undir fótum I öllu sem þeir
taka sér fyrir hendur. Þeir ná oft itökum í
því sem þeir hafa áhuga á. Þeir hafa leiö-
togahæfileika og sætta sig sjaldnast viö
annað en aö komast að kjarna málsins í
öllum efnum.
5. tbl. Vtkan 39