Vikan - 31.01.1985, Qupperneq 54
Barna— Vikan
Þegar Palli
og Óli ætluðu
að sofa í tjaldi
Dyrabjöllunni var hringt og
mamma hans Palla fór til dyra. Úti
á stéttinni stóö Öli.
„Er Palli heima?” sagöi hann og
var greinilega æstur.
„Já, bíddu aöeins,” sagöi
mamma og fór inn til aö ná í Palla.
„Heyrðu,” sagði Öli um leið og
Palli birtist, „eigum viö aö sofa í
tjaldi í nótt? Ég má þaö alveg og viö
getum haft nesti og vasaljós og. . . ”
Óla lá mikið á aö segja frá áætlunum
sínum. Hann hafði fengiö aö taka
upp gamla tjaldið í kjallarageymsl-
unni þegar pabbi hans var að gera
hreint um morguninn. Þaö var
laugardagur og ágætt vorveður og
pabbi hans hafði sagt að þaö væri al-
veg hægt að sofa í tjaldi núna.
Þegar Palli og Óli höfðu rætt mál-
iö dágóða stund fór Palli til mömmu
sinnar til að fá leyfi til útilegunnar.
Auðvitað var þetta voðalega spenn-
andi en honum leið eitthvað svo
skringilega í maganum út af þessu
og hann vonaði pínulítið að mamma
bannaði honum að taka þátt í ævin-
týrinu. Þeir ætluðu alls ekki að fara
langt í þessa útilegu, bara út í garð-
inn hjá Palla. Það var nefnilega
betra að vera í garðinum hjá Palla
því í garðinum hjá Óla var fullt af
alls kyns steinum og skrautlegum
blómabeðum.
„Jú, jú, Palli minn,” sagði
mamma, „þetta ætti að geta orðið
skemmtilegt hjá ykkur. Þið verðið
bara að klæða ykkur vel svo ykkur
verðiekki kalt.”
Jæja, hugsaði Palli með sér, það
er of seint að hætta viö allt núna. Óli
myndi kalla hann skræfu og segja
hinum krökkunum í hverfinu að
hann þyrði ekki að sofa í tjaldi. Hann
fór því af stað með óla til að undir-
búa kvöldið og nóttina. Óli hafði sagt
aö þeir skyldu borða kvöldmat í
tjaldinu og taka svo nóg af teikni-
myndablöðum með sér til að skoða
um kvöldið áður en þeir færu að
sofa. Nú var klukkan hálffimm og
eins gott að hafa allt tilbúið um
kvöldmatarleytið.
Það tók töluverðan tíma að koma
tjaldinu upp og Palli og Óli voru
næstum orðnir óvinir um tíma vegna
þess að þeir kenndu stöðugt hvor
öðrum um hversu illa verkið gekk.
Að lokum stóð þó tjaldið tilbúið í
garðinum og strákarnir fóru inn til
mömmu Palla til að sækja vind-
sængur, svefnpoka og teppi sem hún
hafði sótt niður í kjallara. Þá var
aðeins eftir að koma nestinu og
teiknimyndasögunum fyrir. Mamma
óla hafði smurt nokkrar samlokur
og pabbi óla, sem hafði frétt af mál-
inu, kom heim úr vinnunni með
hvorki meira né minna en fjórar gos-
flöskur. Tvær áttu að vera með
kvöldmatnum — eða samlokunum —
en hinar áttu þeir að hafa til að
drekka með súkkulaðikexi sem
mamma Palla lagði til. Svo fengu
þeir líka plastbox með tveimur
jógúrtdollum og kókómjólk, en það
átti að vera morgunverðurinn
þeirra. Já, og mamma Palla kom
líka með tvö epli út til þeirra.
Þá var ekki annað eftir en að
bjóöa öllum góða nótt. Bæði foreldr-
ar Óla og Palla litu inn í tjaldið til
þeirra. I fyrstu leið Palla vel. Þetta
var bara skemmtilegt eftir allt
54 Vikan 5. tbl.