Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 52
Nautsmerkið
Við höldum áfram að kynna
helstu einkenni stjörnumerkj-
anna auk þess sem afmælis-
börn vikunnar fá sinn venjulega
skerf og i næstu VIKU kynnum
VÍð Nautsmerkið.
Vor- og
sumartískan
á íslandi
Nú er vorið sama sem komið,
í það minnsta á dagatalinu, og
því ekki seinna vænna að
fara að hyggja að vortískunni. i
tiskuverslunum Reykjavíkur-
borgar er langt síðan allar hillur
fylltust af vor- og sumarlegum
fatnaði. í næstu VIKU kynnum
við hvað einkennir helst vortísk-
una eins og hún birtist okkur í
tískuverslunum borgarinnar og
þeim erlendu tískublöðum sem
hvað mest áhrif hafa hér á
landi.
I NÆSTU VIKU:
Litið inn til listamanna
í næstu VIKU lítum við inn hjá Sigríði Jóhannsdóttur vefnaðar-
listakonu. Sigríður vinnur annars vegar sjálfstætt heima við vef-
stólinn og hins vegar sem aðstoðarmaður eiginmannsins, Leifs
Breiðfjörðs glerlistarmanns. ,,Við köllum þessa samvinnu okkar
stundum Glerull sf.," segir Sigríður um samvinnu þeirra hjóna
með þessi ólíku efni, ull og gler.
Framhaldssagan:
VEFUR
(LACE)
Vídeó-Vikan
wum
Drottningar-
dagurinn
Það er ekki hægt að segja um
Hollendinga að þeir eigi sér
fastan þjóðhátiðardag heldur
hafa þeir um aldir haldið upp á
afmælisdag þjóðhöfðingjans
eins og þjóðhátíð. Nú er það
afmælisdagur Júlíönu sem gild-
ir, 30. apríl. Þá leyfa menn sér
margt sem annars er ekki til
siðs — og við lýsum því nánar í
næstu VIKU.
Góð peysa
í ferðalagið
Margir eru farnir að hugsa til
sumarsins og því birtum við í
næstu VIKU uppskrift að út-
prjónaðri peysu sem er kjörin í
ferðalagið um landið í sumar,
en sómir sér reyndar við flest
tilefni.
52 Vikan 16. tbl.