Vikan


Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 38

Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 38
VÍDEÓ- VIKAN Vídeó-Vikan er þáttur fyrir þá sem áhuga hafa á myndböndum og þeim kvikmyndum sem unnt er að verða sér úti um hjá myndbandaleigum til afnota í heimahúsum. Við leggjum áherslu á að ekki er ætlunin að gagnrýna þætti og kvikmyndir heldur kynna þær sem á boðstólum eru og við teljum óhætt að mæla með. Frá þeim harmleik kemst ungur maður sem stefnir í vesturátt, til Ameríku. Næst erum viö stödd á Italíu, þar sem við kynnumst enn nýrri söguhetju, Marco. Hann hef- ur einnig tekið ákvörðun um að fara til Ameríku. Leið útflytjendanna frá Evrópu hefst í Hamborg. Þaðan fer skip frá Hamburg-Amerika skipafé- laginu. Þar hittum við söguhetju okkar frá Rússlandi næst. Hann er heppinn, kynnist fólki sem verður honum innanhandar við að afla fjár til þess aö kaupa farseðilinn — og ávísun á sambönd þegar vestur kemur. Skipið leggur upp frá Hamborg til írlands til að safna saman enn fleiri útflytjendum. Þar koma um borð tvær systur og eiga þær eftir að spinna þræði í margslungnum örlagavef söguhetjanna tveggja, Marco og Jake. Við fylgjumst með lífinu um borð hjá útflytjendunum á leiö- inni, allt þar til komið er til New York, Ellis Island, þar sem fram fer nákvæm sundurgreining á þeim sem þangað koma. Læknis- skoðun er stór liður í þeirri rann- sókn. Hún verður sumum örlaga- rík. Við fylgjumst með framgangi og afdrifum þessa unga fólks strax í fyrsta þætti og kynnumst nýjum persónum. En þættimir' eru aUs þrír. Frægastur leikara í myndinni er án efa Richard Burt- on sem lést hinn 5. ágúst á síðasta ári, réttum tveimur vikum eftir að hann lauk við að leika í myndinni. í þessari mynd kemur dóttir Rich- ards Burton, Kate, fram sem ein aðalpersónan. Er það í eina skipt- ið sem Richard Burton leikur með henni. EUis Island er staðurinn þar sem gæfa innflytjenda til Ameríku er ráðin. Um EUis Island komast menn inn til Bandaríkjanna og um EUis Island fara þeir frá Banda- ríkjunum ef yfirvöldum býður svo við að horfa ... Þannig endar fyrsti þáttur þessa stórkostlega myndaflokks að gert er út um ör- lög söguhetju okkar frá ItaUu í landi framtíðarinnar. Eða gerir hann þaðsjálfur ...? Þessi sjö klukkustunda mynda- flokkur er nokkuð í ætt við þættina Master of the Game og Empire Inc. en ber þó nokkuð annað yfir- bragð, meðal annars vegna þess að hér er verið að fjaUa um at- burði sögunnar í tengslum viö þjóðflutningana miklu til Ame- ríku. Draumur margra í Evrópu um síðustu aldamót var að komast til Ameríku. ElUs Island var fyrsti viðkomustaðurinn. Myndin gerist um aldamótin 1900. Fólk flykkist hvaðanæva að til Bandaríkjanna. Ástæður hvers og eins fyrir því að yfirgefa „gamla landið” eru mismunandi. Fátæktin og vonin um betra líf er þeim þó flestum sameiginleg. Við frelsisstyttuna á Ellis Island hefst sá draumur — eða sú martröð — sem „nýja land- ið” ber í skauti sér fyrir innflytj- enduma. 1 þessari mynd fylgjumst við með nokkrum þeirra frá upphafi og sjáum hvemig þeim famast í nýju heimkynnunum. Við byrjum söguna í Rússlandi árið 1907. Hópur kósakka gerir árás á bændasamfélag þar sem gyðingar eru í meirihluta. Kvikmynd byggö á sögu Fred Mustard Steward. Framleiðandi: Nick Gillott. Leikstjóri: Jerry London. Tónlist: John Addison. Helstu leikarar: Richard Burton og Fay Dunaway. Einnig: Peter Riegert, Greg Martyn, Claire Bloom, Judy Bowker, Kate Burton, Joan Greenwood, Ann Jillian, Stubby Kaye, Lila Kaye, Alice Krige, Cherie Lunchi, Milo O'Shea, Emma Samms, Ben Vereen. Sýningartimi er um sjö kist. alls. Íslenskur texti. Einkaréttur á íslandi: JS Video. 38 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.