Vikan


Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 26

Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 26
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar: Hvað segja stjörnurnar um afmælisbarnið? Hver er persónuleiki þeirra sem afmæli eiga í þessari viku? Hvar ættu þeir helst að hasla sér völl í atvinnulífinu? Hvernig lítur út í ástamálum þeirra? Hvernig er heilsufari þeirra háttað? Við lítum á það helsta sem stjörnurnar hafa að segja um þá sem eiga afmæli 18. —24. april. * * * * * 18. apríl: * * * * * Fólk, fætt í hrútsmerkinu, er einatt þverlundað en fremur vilja- sterkt. Það er kjarkað og bregst einatt við óvæntum uppákomum af djörfung. Stundum veldur þetta því að fólk, sem fætt er í dag, er talið óháttvíst og ekki mjög næmt á tilfinningar annarra. Framkom- an mótast nefnilega oft af athafna- viljanum en er ekki eins þaulhugs- uð með tilliti til annarra. Því er einatt nauðsynlegt fyrir þann sem fæddur er í dag að huga að hátt- semi sinni, reyna að temja sér nærgætni í umgengni við annað fólk og rasa ekki um ráð fram. Þá munu kjarkurinn og fram- kvæmdaviljinn nýtast á jákvæðan hátt. Öll hagnýt störf og veraldar- vafstur eiga vel við afmælisbarn dagsins. Best henta kannski störf sem tengjast flutningastarfsemi eða annarri útvegun. Störf í kring- um vélar virðast liggja á sviði þess sem fæddur er í dag. Þar kann stundum að reyna á þolin- mæðina og jafnvel jaðrar við eirð- arleysi. Viljastyrkurinn getur þó komið þarna til góða og einþykkn- in ef tekist hefur að hemja hana í viðjum háttvísi og kurteisi. Stund- um vill bera á því hjá fólki, sem fætt er í dag, aö það varpi frá sér verkum þegar á móti blæs því það vill gjarnan sjá árangur fljótt og þolir illa alla bið. Fólki, sem fætt er í dag, farnast oft ekki vel í hjónabandi því þá koma til skapgerðareiginleikar þeir sem áður er á minnst: ein- þykknin og dálítill skilningsskort- ur gagnvart öðru fólki. Einkan- lega er þessi skilningsskortur bagalegur í samskiptum við hitt kynið. Þar er stundum svo að sjá sem fólk, fætt í dag, geti ekki lifað í sambúð. Heilsufarið er fremur gott. Viljastyrkurinn og þrjóskan láta ekki undan fyrir mörgum sjúk- dómum og það er ekki rúm fyrir neinn kveifarskap. Happatalan er 9. 19. apríl: Eins og aðrir hrútar hefur af- mælisbarn dagsins talsverða for- ystuhæfileika. Stundum er fólk, sem fætt er í dag, gætt háleitum hugsjónum og telur sig vera að ryðja braut nýjum hugmyndum. Þessum degi tengjast ótvíræðir forystuhæfileikar sem helgast ef til vill af því að fólk, fætt í dag, er fætt undir sterkum áhrifum frá sólinni og reikistjörnunni Mars. Mars var herguð Rómverja og fólk, sem fætt er undir áhrifum hans, er oft þrekmikið og jafnvel afreksfólk, til dæmis í íþróttum. Sólin er tákn tignar og göfugleika og áhrif hennar beina afmælis- börnum dagsins oft inn á brautir æðri lista. Skapandi störf henta best. Eink- um eru það bókmenntir og tónlist sem virðast liggja fyrir fólki sem fætt er í dag og tærleiki hugans og háleit markmið geta stuðlað að miklum frama á listabraut ef list- in er stunduð af kostgæfni og alúð. Forysta í félagsmálum er einnig líkleg hjá afmælisbörnum dagsins og ábyrgðarmikil stjórnunarstörf hjá ríki eða einkaaðilum. Stund- um þarf þó aö temja vel hugar- flugið og reyna að hafa hemil á sköpunargáfunni til þess að vel farnist í venjubundnum störfum. Þetta leiöir einatt til innri tog- streitu hjá afmælisbörnum dags- ins og kemur stöku sinnum fram í óþolinmæði og úrillsku í garð und- irmanna. Því er nauðsynlegt að læra að hemja skap sitt. Ástamálin eru söguleg. Þar skiptast vissulega á skin og skúrir eins og við má búast vegna af- stöðu himintunglanna. Svipting- arnar i tilfinningalífinu eru stund- um miklar en ástasamböndin stundum eldinum heitari. Þó kann svo aö fara að réttur maki finnist og endist og þá er hamingjan vís. Lífsfjörið er mikið og lífskraft- urinn svo sjúkdómar hrjá lítt þann sem fæddur er í dag. Þó er hætt við að hitasótt af einhverju tagi eigi eftir að gera þér lífið leitt. Happatölur eru 9 og 1. * * * * * 20. apríl: * * * * * Sá sem fæddur er í dag er á merkilegum tímamótum. Sólin er að fara úr hrútsmerkinu yfir í nautsmerkið og þetta setur ótví- rætt mark á allt fas og persónu- gerð þeirra sem fæddir eru í dag. Hrúturinn er viljasterkur, kapps- fullur svo stundum jaðrar viö árásarhvöt og situr aldrei auðum höndum. Nautið er tilfinningaríkt, úthaldsgott og slægviturt í fjár- málum. Þetta síðasta kemur þó oft ekki fram fyrr en afmælisbarn- ið hefur að fullu tekið út allan venjulegan þroska. Þessi tvískinnungur í afstöðunni til stjarnanna setur mark sitt á hvað best fer úr hendi þeim sem fæddur er í dag. Hrútseigindin beinir honum á braut starfa sem snerta vélar en nautið heimtar að fást viö skapandi störf. Stundum getur þetta farið saman en einatt verður af þessu mikil togstreita. Sá sem fæddur er í dag ber gott skynbragð á peninga og mun farn- ast vel í viðskiptum. Kaup- mennska er eiginlega það sem beinast liggur við. Viðskipti við hitt kynið eru stundum ofsafengin en reyndar virðast viðbrögð afmælisbarnsins einatt mótast af kaldlyndi og miskunnarleysi. Ákefðin dregur þá sem fæddir eru í dag að hinu kyninu og þeir stofna oft til náinna kynna. Allt bendir til hamingju- ríks hjónabands en þar verður af- mælisbarnið að fá að ráða ferð — annars fer illa. Þeim sem fæddir eru í dag virð- ist hætt við hálsbólgu og raunar bólgu víðar til höfuðsins en eru annars heilsugóðir. Happatölur eru 2,6 og9. 26 Vikan X6. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.