Vikan


Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 15

Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 15
Alberto kvaðst hafa verið feginn þegar hann vaknaði eftir 45 mínútna meðvitundarleysi. Hann var feginn að finna til. Sú staðreynd að hann sárkenndi til í fætinum færði honum nefnilega heim sanninn um að hann var á lífi. Læknirinn sem annaðist Alberto á Floresta sjúkra- húsinu sagði hann vera í ágætu formi. Allt sem virtist hrjá hann voru nokkrar skrámur, tvö brotin rif og all- djúpur skurður á vinstri handlegg. Skurðurinn kom þó ekki í veg fyrir að Alberto gæti hreyft handlegginn því skurðurinn var langs eftir handleggnum en ekki þvers og hafði því ekki skorið sundur neina vöðva. Sjálfur kvaðst Alberto muna allvel eftir aðdraganda slyssins og slysinu sjálfu. Þó væri smátímabil sem hann myndi ekki. ,,Ég var að rétta félaga mínum borð þegar ég missti jafnvægið og féll aftur á bak. Svo fékk ég högg og allt varð svart. Það er það sem ég man ekki. Ég man ekki eftir neinum sársauka. Ég vaknaði aftur þegar ég kom á spítalann. Þá fann ég til. Og ég varð ánægður því ég vissi að ég væri á lífi." En Alberto Rithner er óneitanlega heppinn maður. Læknirinn á spítalanum, sem annaðist hann eftir slysið, fullyrðir að það sé einstakt í sögu læknisfræðinnar að maður slasist jafnlítið við jafnmikið fall. Og hann er ekki bara heppinn með skrokkinn á sér. Þegar hann kom til sjálfs sín var það fyrsta sem hann gerði að þreifa á brjóstvasanum. Hann fann peningana sem hann átti að eiga þar en ekki úrið sitt. Vinnufélag- arnir leituðu að úrinu á slysstaðnum og viti menn — þar var það og gekk eins og ekkert hefði ískorist. Glerið var að vísu brotið en það var allt og sumt. Og ef þið trúið þessu ekki skuluð þið bara skoða myndirnar! 16. tbl. VIKanlS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.