Vikan


Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 48

Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 48
w Pósturinn AIRMAIL PAR AVION Beiðni um aðdáenda- klúbba Halló Póstur! Ég er í svolitlum vand- rœdum. Sko, ég skrifa í alla addáendaklúbba og allt sem ég veit um alla söngvara og liljómsveitir. Og svo vill til aö mig vantar heimilisfang hjá addáendaklúbbi Julian Lennon en ég veit ýmislegt um hann. Einnig vantar mig heimilisfang hjá aðdáenda- klúbbi NENU. Svo langar mig að segja gkkur að mér finnst Vikan alveg œðislegt blað en það mœtti vera meira af plakötum. Svo bið ég bara að heilsa með von um birtingu. Bœjó. Ég. P.S. Ef þið vitið heimilis- fangið hjá Madonnu þá vantar mig það líka alveg œðislega mikið. Nú stendur svo á að Pósturinn getur ekki hjálpað þér með þessi heimilisföng. En hér með óskum við eftir liðsinni lesenda sem kunna að eiga umbeðin heimilis- föng í fórum sínum. Lesendur eru vanir að bregðast skjótt við og um leiö og heimilisföngin taka að streyma inn skal Pósturinn birta þau fyrir þig. Alltaf að ergja mig og niðurlægja Kœri Póstur. Ég sendi þetta bréf vegna þess að ég er alveg ráðþrota vegna stráks sem ég er hrifin af. Það er þannig að þegar ég kynntist honum, köllum hann bara X, þá var hann svo góður við mig og stríddi mér aldrei. En svo, þegar lengra tók að líða, þá var hann alveg að fara með mig, sem sagt alltaf að ergja mig og niðurlœgja. Við megum ekki hittast, þá byrjar hann. Samt get ég ekki hœtt að vera hrifin af honum en oft get ég grenjað af reiði út í hann. Vonandi getur þú svarað eftirtöldum spurningum fyrir mig: 1. Hvers vegna lœtur hann svona? 2. Getur verið að það sé af því að hann er feiminn ? 3. Er hann að reyna að hrinda mér frá sér? 4. Ef ekki, h vað get ég gert ? Góði Póstur, reyndu að svara mér, annars geng ég af göflunum. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. B. Mannskepnurnar haga sér stundum undarlega. Póstinum þykir leitt að hryggja þig, en þetta virðist nú frekar benda til þess að hann vilji ekkert með þig hafa. Hann gæti varla tekið upp á því að láta svona nema af því. Það gæti þó verið að hann væri aö reyna að komast að því hvar hann hefur þig, reyna þig eða vita hvað hann kemst langt með þig. En Póstinum þykir þetta ljót framkoma. Þú verður að tala við strákinn og fá á hreint hvað hann meinar eöa fá einhvern milli- göngumann til þess. Ef hann er eitthvað hrifinn af þér verður honum aö skiljast aö það er ekki rétt að hann láti það svona í ljós. Ef hann er hins vegar að vísa þér á bug með þessu háttalagi sínu skaltu reigja þig og vera ekkert að abbast upp á hann. Hann getur þá bara átt sig, það er nóg af Öðrum strákum. (Auðvitað verður þú voða sár og kærir þig ekkert um aðra stráka, í þaö minnsta ekki strax, en það lagast. Tíminn þurrkar öll tár og græðir öll sár.) Burtflotin plaköt og Spandau Ballet Halló, kœri Postur! Ég œtla að byrja á að þakka fyrir gott blað en ég get ekki stillt mig um að kvarta svolítið líka. Það er hreint og beint skammarlegt að fella niður plakötin í Vikunni. Þið komið bara með myndir sem maður verður að klippa út úr blaðinu og skemma það þannig. Þið mœttuð alveg koma með plaköt í annarri hverri viku. En ég vildi líka frœðast um hina frábœru hljómsveit Spandau Ballet. Hvað heita meðlimir hljóm- sveitarinnar? Getið þið sagt mér heimilisfang aðdáenda- klúbbs hennar? Þið vœruð hreint og beint dásamlegir ef þið vilduð birta plakat af hljómsveitinni. Að lokum vil ég þakka fyrir söguna Ástir Emmu. Virkilega góð saga. Takk fyrir birtinguna. Bœ. Áskrifandi. Plakötin í Vikunni eru býsna umdeilt mál en ábendingar eins og þín hafa borist margoft og verið ræddar. Það eru margvíslegir tæknilegir örðugleikar í veginum en vel getur verið að plakötunum. taki aftur að fjölga von bráðar. Meðlimir í Spandau Ballet eru bræðurnir Gary og Martin Kemp, Tony Hadley, Steve Norman og John Keeble. Hljóm- sveitin vakti fyrst á sér athygli árið 1980 og var talin ein af upphafshljómsveitum nýju rómantíkurinnar. Meðlimirnir klæddu sig á glæsilegri og íburðar- meiri hátt en lengi hafði þá þekkst í poppinu (í pönkbylgjunni) og tón- listin var einnig léttari og íburðar- meiri en í pönkinu og nýbylgjunni. Fyrsta vinsæla lagiö þeirra var „To Cut a Long Story Short” 1980 og síðan slógu þeir aftur í gegn meö laginu „Instinction” ’82 og „True” ’83. Til að byrja með vöktu þeir á sér athygli fyrir að halda hljómleika á harla óvenjulegum stööum, svo sem í gömlum her- skipum og skemmtigörðum. Þeir fóru aldrei í venjulegar hljóm- leikaferðir í upphafi ferils síns, en tóku þann sið síðan upp og er mál manna að það hafi enn frekar ýtt undir vinsældir þeirra. Aðdáendaklúbbur Spandau Ballet hefur eftirfarandi heimilis- fang: Spandau Ballet, c/o Jacqui Suite 7 89 Portland Street London W1 England. Kennarinn: Ungi maður, þú art tveim klukkutimum of seinn i skólann og býrð bara hinum magin við götuna. Hvernig standur ó þessu? Nemandinn: Ég var að kveðja gæludýrin min. Kennarinn: Það tekur nú varla svona langan tima. Nemandinn: Þegar maður á maurabú þá gerir það það. Kennarinn: Klukkan er orðin ellefu. Þú hefðir átt að vera kominn hingað klukkan níu! Nemandinn: Vá, hvaðgerðist þá? Hið hlálega við kennslu er að kennarinn þarf að útskrifa góðu nemenduma en situr uppi með þá lólegu þangað til þeir eru líka orðnir góðir. 48 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.