Vikan


Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 18

Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 18
Roberta Silman Börnin í garðinum Hann var afkáralegur og klunnalegur og leit út eins og dúkkustrákur, en hann var vinur Jess. Á hverjum morgni gengum við Jessica á leikvöllinn í Kensing- tongarðinum. Við höfðum komið tíl London frá Bandaríkjunum þrem- ur vikum áður, í byrjun júní, og ætluðum að dvelja í eitt ár. Phil hafði fengið verkefni hjá bresku fyrirtæki. Suma dagana dóluðum við Jess fyrir framan sýningarglugga skartgripaverslana eða í bókabúð- inni. En þegar viö höfðum gengið fram hjá stórmarkaðnum varð Jess óþolinmóð. Þegar hún sá hlið- iö á leikvellinum fór hún að hlaupa. Þegar ég horfði á hana velti ég því fyrir mér hvort einhver myndi tala við okkur í dag. Fram til þessa hafði ekki nokkur sála ávarpað okkur. Jess virtist vera alveg sama. Hún var bara fjögurra ára og var ánægð ef henni var ýtt í rólunni eða fékk að renna sér niður rennibrautina. Þegar hún var orðin hagvön á leik- vellinum fór ég að taka með mér pr jónana mina eða bók. Ef hún gat hlaupið til mín og smellt á mig kossi var hún ánægð. Samt var þetta einmanalegt. Ég sat og virti fyrir mér ensku bömin og mæður þeirra og mér fór að líða óþægilega. Ég settist eins nálægt konunum og ég gat en þær voru niðursokknar í að fylgj- ast með bömum sínum eða rabba hver viö aðra og ég virtist aldrei fá tækifæri til aö blanda mér í samræðumar og kynna mig. Ég hafði alltaf verið feimin og eftir því sem dagamir liðu átti ég erfið- ara með að brosa. Én dag nokkura í júlí eignaðist Jess vin. Það var lítill indverskur drengur sem hét Raja. Bömin léku sér og ég og móðir Raja sát- um saman. Hún sagði mér að þau væru hér í sumarfríi. Hún var elskuleg og vingjamleg og hafði lesið eitthvað af bandarískum bókum. Veður var milt þessa viku. Það hafði ekki komið jafngott sumar í Englandi árum saman. I blöðum og útvarpi lýstu menn yfir undrun sinni. Við hittumst við hringtjöm- ina næstum því á hverjum degi og tvisvar borðuðum við saman ír garðinum. Fyrst var það banda- rískur matur og næst indverskur. Rósunum virtist fjölga fyrir framan augun á okkur. Síðasta daginn sem bömin voru saman á leikvellinum tókum við myndir af þeim þar sem þau ilmuöu af blóm- unum, síðan kvöddumst við. Daginn eftir tilkynnti Jess: „Ég ætla ekki að fara í garðinn í dag. Ég held ég sakni Raja of mikið.” Ég brosti. „Ekki hlæja að mér, mamma,” sagði hún og fór að skæla. Hún var glaðlynt bam og mér stóð ekki á sama. Ég stakk upp á því að við færum að gamni okkar lengri leið- ina, fram hjá húsi Margrétar prinsessu, gegnum appelsínulund- inn. Það þýddi að við kæmum inn á leikvöllinn baka til. Rétt við bakhliðið stóö bam sem virtist vera að bíða eftir okk- ur. Ég hafði veitt honum athygli einu sinni áður við styttuna af Pétri Pan. Hann hafði horft á Jessicu benda Raja á litlu dýrin sem voru falin í styttunni. Þegar hann sá að ég var að horfa á hann varð hann óttasleginn þannig að ég leit niður. Þegar ég leit upp aftur var 18 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.