Vikan


Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 44

Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 44
Francois og var nemi í Le Mornay. rancoir var eins og forskrift, dökkhærður og myndarlegur. í örmum þessa liðuga herra (öruggur með sig, jafnvel þegar hann sneri í valsinum) leið Kata yflr dans- gólfið í gleðivímu. Með stjórn- sömum örmum þrýsti hann henni fastar að stífuðu skyrtu- brjóstinu og hjartað í henni barðist ótt og títt þegar hún fann ókunnuga hlýjuna frá honum við brjóst sín. Næsti dans var rúmba sem Francois dansaði með alls kyns tilfæring- um. Það er of heitt hérna inni, hugsaði hún, síðan fann hún til torkennilegrar kenndar; hún fann samhliða til svima í höfð- inu, stings í maganum og hún kiknaði í hnjáliðunum. Það er að líða yfir mig, hugsaði hún, en hvað það er skrítið. Allt í einu rann það upp fyrir Kötu, þetta hlýtur að vera það. Hún var að springa af hamingju og hélt að þessi losti væri ástin. Francois hafði æfðan og lipr- an talanda. Þegar þau liðu yfir gólfið eða þegar hann beygði sig yfir hana í innilegri samba talaði hann mjög kurteislega, eins og þau væru að drekka te með fjölskyldu hans. Kötu fannst það einkennilega æs- andi að finna hvernig hann harðnaði upp við hana (eða var hún bara að ímynda sér það því hann hafði greinilega ekki tekið eftir neinu) meðan hann sagði afar þýðlega frá bestu skógarstígunum, skíðabrekk- unum, leiðsöguritunum, börunum, hótelunum og dans- stöðunum í grenndinni. ðí. ata sagði fátt. Grænu augun hennar störðu bara í aðdáun á sólbrúnt andlit Francois á meðan hann út- skýrði að það væri aðeins einn galli á gjöf Njarðar á laugar- dagskvöldsböllunum. Eftir ballið var stúlkunum bannað að tala við mennina sem þær höfðu kynnst. Á laugardags- kvöldum mátti halla sér að draumaprinsinum í ótal út- setningum á ,,La Vie en Rose” en ef hann varð á vegi manns á sunnudagsmorgni átti maður að láta sem maður sæi hann ekki, horfa beint í gegnum manninn sem hugsanlega var stóra ástin í lífinu. Frá bæjardyrum skólastjór- ans séð áttu stúlkurnar að vera útlærðar í samkvæmisdönsum áður en þeim var skilað aftur heim í foreldrahús. Francois út- skýrði að þó kenna mætti með- fæddri vanhæfni stúlknanna, leti þeirra, barnalegri tauga- veiklun eða taugaspennu fyrir stelpurnar töluðu ekki við hana. Þær voru ekki bara öfundsjúkar vegna þess hve Kata var vinsæl. Þær voru reiðar vegna þess að þær botnuðu ekkert í þessu. Kata var svo venjuleg. ,,Ég skil ekki hvað hann sér við hana í þessum gamla, ljóta kjól,” hnussaði í einni. Það er ekki fegurðinni fyrir að fara. Þunnt hár — ekki einu sinni sítt — og þessi skrítnu grænu útstæðu augu.” Kata fékk í fyrsta sinn að finna smjörþefínn af ótrúlegri öfundsýki sem hún átti eftir að þola af hálfu kvenna næstu blæðingar um sitt af hverju sem miður færi þá yrðu foreldr- arnir ævareiðir ef stúlkurnar kynnu ekki að dansa. Það var góð og ódýr leið til þess að finna herra sem væru viljugir að kenna þeim og æfa þær að leyfa nemunum að sækja opin- bera dansleiki á kostnað for- eldranna. Samt sem áður treysti Chardin karlinn ekki neinni einustu unglingsstúlk- unni sem hann bar ábyrgð á og hann kærði sig ekki um ösku- reiða tilvonandi afa og ömmur, heimtandi skaðabætur eða það sem verra var, að fá að vita faðernið. Auðveldasta leiðin til að tryggja sér hugarró og öryggi nemanna var að læsa þá inni á hverju kvöldi eins og hænsni. Þetta bauð upp á vandræði. f 'Gm miðnætti leið Kötu eins og Öskubusku. Hún var satt að segja of ringluð til þess að taka eftir því þegar hún fór inn á snyrtinguna að hinar þrjátíu árin. Þær gátu ekki skil- ið hvers vegna menn hrifust af henni, konum fannst Kata slæg, að hún beitti brögðum, að enginn karlmaður væri öruggur með henni. í rauninni var þessu öfugt farið; Kata var ekki örugg með nokkrum manni. Symbalarnir skullu og kast- ljósinu var beint að hljóm- sveitarstjóranum sem tilkynnti að fegurðarsamkeppnin ,,ung- frú Gstaad” færi fram eftir næsta dans og atkvæðaseðlum yrði dreift á hvert borð. ,,Það fer ekkert á milli mála hver tekur þátt í henni frá okkar borði,” sagði Heiðna glaðlega. ,,Kata er stjarna kvöldsins. Hún á skilið að verða ungfrú Gstaad líka.” , ,Ekki láta sv.ona kjánalega, svaraði Kata. ,,Ég ætla ekki að fara upp á svið og gera mig að fífli.” ,,Ég mana þig, sagði Maxín. ,,Þetta er bara grín, þetta er ekki nein alheims- fegurðarsamkeppni, þetta er bara smáþorpsskemmtun. ’ ’ Hún ýtti ákveðið við Kötu og vísaði henni burt af rauðbrúna flauelsklædda bekknum. „Góða, vertu ekki svona and- skoti bresk.” ð ata stóð upp. Hún drattaðist treglega yfir á dans- gólfið og skemmtanastjórinn ýtti henni í röðina og rétti henni stórt spjald sem á stóð nr. 17. Nemendur úr tveimur öðrum framhaldsskólum voru einnig á ballinu og því voru um þrjátíu stúlkur á dansgólflnu, þar á meðal ein þrýstin ítölsk stúlka í hlýralausum, svörtum flauelskjól. Kata sá að hún átti enga möguleika á að vinna en það var of seint að hætta við. Hægt og rólega mynduðu stúlkurnar hring. En Kata hafði ekki reiknað með Nick sem gekk að þjónin- um sem var að útbýta atkvæða- seðlunum. Hann brosti til hans brosi sem þýddi: ,,Ég tala um þetta við þig seinna,” laumaði hnefafylli af seðlum í vasa sinn, hentist inn á karlaklósettið og hripaði ,,17” á þá alla. Síðan gekk hann út, tók pípuhattinn sem átti að ganga milli borðanna og safna í atkvæða- seðlunum. Einfalt mál. Ljósin voru deyfð og hvikult kastljós lýsti á hvern keppanda þar sem hann gekk hægt upp þrepin upp á pallinn. Þar stóð hann fyrir miðju, geislandi af gleði eða vandræðalegur á svip, hélt uppi spjaldinu með númerinu og gekk síðan niður aftur. Það kvað við lófaklapp og blístur, ljósin voru kveikt og allir settu atkvæði sín í hattinn sem Nick bar að hverju borði. 'jé,, llar stúlkurnar í keppninni reyndu að líta út eins og ekkert væri. Fyrir þær var fegurðarsamkeppnin ekki bara smávegis skemmtiatriði sem hundleiður en fag- mannlega hress skemmtana- stjórinn ákvað. Fyrir hverja og eina þeirra var þetta fyrsta nasasjónin af opinberri keppni í kynþokka. Hjartað í þeim 44 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.