Vikan


Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 8

Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 8
Fremst til vinstri er benjamínsfikjutré (Ficus benjamini), falleg og býsna algeng planta i stofum. Flún getur orðiö mjög há, 2 — 3 m þar sem skilyrðin eru best. Benjamín kýs helst að standa á björtum stað í stofunni og þolir illa beint sólskin. Gætið þess að láta moldina aldrei þorna alveg því þá taka neðstu blöðin að falla. Plantan hefur gott af daglegri vatnsúðun. Aftar til vinstri er drekatré (Dracena). Drekatré eru ekki ýkja sérvitur hvað birtu snertir. Æskilegust skilyrði eru þó fremur bjartur staður en ekki beint sólskin. Það þarf að vera hlýtt kringum drekatré og það þolir mjög illa kulda. Þvi er ekki rétt að láta plöntuna standa I norðurglugga að vetri til. Flana þarf að vökva i meðallagi og hún þolir að þorna. Háa plantan á gólfinu er nilarsef (Cyperus). Þetta afbrigði getur orðið mjög hávaxið en til eru önnur minni. Nilarsef þarf góða birtu en ekki sterkt sólskin. Plantan þarf mjög mikið vatn. Best er að láta pottinn standa I stórri skál eða pottahlif og láta pottinn standa á kafi i vatni. Úðið oft. Oft getur þurft að binda stönglana saman. Plöntunni er fjölgað með því að klippa stöngul mað blaðhvirfingu og hvolfa ofan i vatn. Hann er látinn vera þar uns rætur hafa myndast. Einnig er hægt að fjölga plöntunni með skiptingu. i glugganum eru meðal annars bergflétta (Hedera) með stjörnulaga, dröfnóttum blöðum. Hún þolir ekki sterkt sólskin en getur á hinn bóginn staðið í nokkrum skugga. Best er þó að láta plöntuna standa á tiltölulega björtum stað. Hún þarf fremur litla vökvun. Úðið hana oft og þurrkið ryk af blööum með rökum klút. Blómstrandi plantan er gloxinía, fallegt sumarblóm í stofunni, rætkað upp af laukhnúðum siðla vetrar. Vökvist vel á meðan hún er í blóma. Plantan getur lifað í nokkur ár ef hún er klippt niður að lokinni blómgun. Laukhnúðurinn er geymdur á svölum stað yfir veturinn. Siðla vetrar er hnúðurinn settur í nýja mold og vökvaður. Fremst er kókospálmi, glæsileg planta sem getur verið erfið viðfangs. Kókospálminn þarf að standa á björtum stað, til dæmis nálægt stórum stofuglugga en ekki alveg við hann. Æskiiegast er að loftið umhverfis hann sé hlýtt og rakt að sumri en svalara á veturna. Kókospálminn þarf góða vökvun og klumpurinn má aldrei þorna alveg. Úðið oft með úðara. Í glugganum eru frá vinstri tengdamóðurtunga (Sansevaria) og júkka (Yucca). Þessar plöntur þola dável sólskin, einkum tengdamóðurtunga. Reyndar er því þannig varið með tengdamóðurtungu að hún þrífst nánast hvar sem er i íbúðinni. Sömuleiðis þolir hún þurrft loft. Vökvið spar- lega og leyfið moldinni að þorna alveg á milli. Ágætis planta í suðurglugga. Júkka þrífst vel í eða við suðurglugga en þolir þó að standa innar í stofunni. Vökvið hana vel yfir sumartímann en minna á veturna. Hún hefur gott af vatnsúðun öðru hverju. \ 8 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.