Vikan


Vikan - 11.07.1985, Qupperneq 26

Vikan - 11.07.1985, Qupperneq 26
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar: Hvað segja stjörnurnar um afmælisbarnið? Hver er persónuleiki þeirra sem afmæli eiga í þessari viku? Hvar ættu þeir helst að hasla sér völl í atvinnulífinu? Hvernig lítur út í ástarmálum þeirra? Hvernig er heilsufari þeirra háttað? Við lítum á það helsta sem stjörnurnar hafa að segja um þá sem eiga afmæli vikuna 11. — 17. júlí. + + + + 11.JÚIÍ: Skapferlið Líf og fjör fylgir fólki dagsins. Lundin er létt og þaö þráir tilbreytingu. Þess vegna ferðast þetta fólk mikiö og kynnist fjölda manns. Það á auðvelt með að hríf- ast af ööru fólki en það getur ekki hver sem er orðið vinur þess því það er mjög vandlátt í vinavali. Fólk dagsins á auðvelt með að komast í geöshræringu. Margir gera sér nefnilega ekki grein fyrir að undir léttu yfirborðinu er viðkvæm kvika sem auðvelt er að særa. Lifsstarfið Mannmargir vinnustaðir, þar sem léttir vindar blása, henta afmælisbarninu vel. Það vill nefnilega slá tvær flugur í einu höggi: vinna í afslappandi andrúmslofti og kynnast um leið sem flestum. Fámennir og þunglamalegir vinnustaðir bjóða hins vegar hættunni heim enda sækjast afmælisbörnin ekki eftir vinnu á slíkum stöðum. Ástalifið Náinn vinskapur við hitt kynið kemur snemma við sögu í lífi þessa fólks. Það á auðvelt að stofna til náinna kynna við gagn- stætt kyn. Stundum ganga þessi kynni einum of hratt fyrir sig og þegar viðkomandi ætlar að draga í land er það um seinan. Þess vegna lendir þetta fólk stundum í enda- sleppu hjónabandi. Heilsufarið Fæturnir eru eini veiki punkturinn í líkamsbyggingu þeirra sem eiga afmæli í dag. Þeir gefa sig oft þegar á ævina líður. Andlega heilsan lætur hins vegar engan bilbug á sér finna og þekkist ekki betri á öðrum bæjum. Heillatölur dagsins eru 2 og 7. ¥ + + + + 12. júlí: 4 4 4 4 4 Skapferlið Eirðarlausi flakkarinn er fæddur í dag. Það virðist vera í honum sífelldur ferðahugur og á faraldsfæti nýtur skapferli hans sín best. Þó er eins og hann langi innilega að eignast fastan punkt í lífinu. Það getur brugöið til beggja vona með þetta. Annaðhvort veröur maður dagsins að „flakk- ara” sem þráir sífellt að setjast í helgan stein ellegar haslar sér völl innan veggja heimilisins og langar þá stööugt að komast á flakk. Lifsstarfið í starfinu er svipaöa sögu aö segja. Þar gerir flakkaraeðlið líka vart við sig en þegar til á að taka skortir kjarkinn til að láta til skarar skríða. Afmælisbarnið er vinsælt á vinnustað og eftirsótt í störf enda er betri starfskraftur vandfundinn. Ástalifið Margir gætu haldið að flakkaraeðliö væði líka uppi í ástalífinu. Þar er hins vegar annað uppi á teningnum. Afmælisbarn dagsins er nefnilega sauðtryggt í ástalífinu og ekkert gefið fyrir rúmfletaflakk. Það finnur oftast lífsförunautinn snemma á ævinni og lætur þar viö sitja. Oft er afmælisbarniö einum of umburðarlynt í hjónabandinu og lætur makann ganga of langt. Af þeim sökum verður sambúðin stundum stormasöm. Heilsufarið Heilsan er upp og ofan hjá þeim sem fæddir eru í dag. En þessu fólki hættir til að leyna veikindum og mætir kannski í vinnu með bull- andi hita. Þá er verr farið en heima setið. Heillatölur dagsins eru 3 og 7. 13. júlí: Skapferlið Kjörorö dagsins eru viðkvæmni, hlédrægni og feimni. Afmælis- börnin vilja sigla á milli skers og báru og frekar bæta á sig auka- störfum en að stofna til illinda við samferðafólkiö. Þetta verður oft til þess að fólkið er misnotaö af öðrum. En þegar afmælisbarnið verður vart við slíkt bresta oft við- kvæmar taugarnar. Menn ættu því að minnast þess í skiptum sínum við fólk dagsins að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Lífsstarfið Hafið lokkar og laðar fólk dags- ins til starfa og það er mjög al- gengt að það vinni við sjómennsku eða við störf sem tengjast sjávar- útveginum. Annars hefur reynsl- an sýnt að afmælisbarnið getur blómstrað í hvaða starfsgrein sem er en það er mjög mikilvægt að vandað verði til valsins á vinnufé- lögunum. Ástalifið Það sama má reyndar segja um makavalið. Ef vel er vandað til þess í upphafi þarf þetta fólk ekki að kvíða hjónabandinu. Algengast er að fólk dagsins þreifi nokkuð lengi fyrir sér á ástarbrautinni áður en það skellir sér í hjóna- sængina. Það kemur bæði til af því að þetta fólk er feimið og hlédrægt í kynnum sínum við hitt kynið og það siglir líka undir kjörorðinu: það skal vanda sem lengi á að standa. Ef þannig er staðið að málum verður hjónabandið lang- líft og farsælt. Heilsufarið Ekkert er hægt að kvarta undan heilsufarinu. Yfirleitt eru afmæl- isbörnin fílhraust. Eini veiki punkturinn er maginn og það er hætta á magasári, einkum ef menn eru óheppnir með vinnufé- laga og maka. Heillatölur dagsins eru 2 og 4. 26 Vikan 28. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.