Vikan


Vikan - 11.07.1985, Blaðsíða 35

Vikan - 11.07.1985, Blaðsíða 35
H Draumar Kæri draumráðandil Mig dreymdi um daginn að ég væri á gangi á götu í Reykjavík sem ég kannaðist ekkert við. Það sem var þó undarlegast var að gangstéttin var öll brotin og mér fannst hún raunar ganga í bylgjum. Svo fór ég yfir götuna og allt í einu var ég komin á skemmtistað þar sem var hávær tónlist og hún var óþægileg. Þarna inni voru einhver slagsmál og lög- reglan kom. Mér fannst ég vera á einhvern hátt bendl- uð við þetta og varð hrædd og flýði inn á klósett. En þar tók ekki betra við þvt klósettið var allt löðrandi í mannask. . . og mátti ég hafa mig alla við svo ég kastaði ekki upþ. En ein- mitt þegar ég kúgaðist sem mest vaknaði ég. Göngumóð! Kæra göngumóð. Þessi draumur er vissu- lega blendinn og má segja að í honum skiptist á skin og skúrir. Þó má segja að hann sé allur í aðvörunar- tón. í fyrsta lagi ættir þú að reyna af fremsta megni að losa þig við öfund og illar hugsanir sem þú elur með þér því líkur eru á að annars verði þær þér til mikils álitshnekkis. Sömuleiðis ættir þú að reyna að skipta algjörlega um félaga og hætta að stunda skemmtanir og óholla iðju því draumurinn bendir til þess að þú hafir gert það um of. Á hinn bóginn eru í draumnum vísbendingar um óvænt höpp og fjárhagslegan á- vinning. Mannasaur í draumi boðar peninga og það er líka fremur góðs viti að finna til óþæginda. Það bendir til þess að þú finnir traustan vin sem kunni að megna að hjálpa þér af þeirri braut sem þú ert á núna. Kæri draumráðandi. Vænt þætti mér um ef þú vildir ráða fyrir mig eft- irfarandi draum: Mig dreymdi að ég væri í miðbæ Reykjavtkur með kunningja mínum. Við gengum nokkra stund um bæinn og staðnæmdumst loks fyrir framan fata- verslun sem var í Austur- strætinu þar sem Bóka- verslun Sigfúsar Eymunds- sonar er nú. Vinur minn hvatti mig að ganga inn og ég gerði það. Fötin inni í búðinni voru flest úr leðri og ég mátaði snjáðan skinnjakka sem passaði alveg á mig. Eg spurði hvað hann kostaði. Afgreiðslu- konan sagði: ,,Ejórtán þúsund. ’ ’ Eg ætlaði þá að fara að klæða mig úr jakkanum en þá kom þessi vinur minn askvaðandi inn í búðina og sagði: ,,Eg borga. ’ ’ Hann borgaði síðan jakkann og við gengum saman út. Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna. Runni. Kæri Runni! Að máta og kaupa föt getur bent til ýmissa átta. Þó virðist margt í þessum draumi benda til þess að hann sé aðvörun til þín um að stilla í hóf umsvifum þínum í samskiptum við hitt kynið. Snjáði jakkinn er beinlínis tákn um kyn- ferðislífið og er ekki gott að ráða frekar í það án þess að draumráðandi viti frekari deili á þér. Það að vinur þinn borgar jakkann fyrir þig bendir til þess að þú ættir að hætta um sinn allri tilraunastarfsemi í þessum efnum og einbeita þér að því að rækta þau sambönd sem nú eru traustust. Land- könnunartímabilinu er lík- lega lokið hjá þér. Kæri draumráðandi. Mig dreymdi nýlega skrýtinn draum. Mérfannst ég vakna upp um miðja nótt og fara inn í eldhús. Eg settist í sætið sem ég sit venjulega í við eldhús- borðið, tók upp bláan bolla, sem ég á, og handlék hann. Þá heyri ég lágt hviss og sé rauða Ijóstýru uppi á eldhúsborði. Eg verð skelf- ingu lostin en kveiki samt loftljósið. Sé ég þar gömlu, sjálfvirku kaffikönnuna mtna sem ég var fyrir löngu búin að leggja til hliðar. Hún var þarna spegilgljá- andi, alveg eins og ný, og breytt að því leyti að hún var nú komin með tvær tíu bolla glerkönnur, sem hún hellti upp á í einu. Það helltist fljótlega alveg upp á aðra könnuna og ég man að ég fékk mér kaffi úr henni og það var dísætt. Svo vaknaði ég. Gaman þætti mér að fá ráðningu áþessum draumi. Þú hefur áður hjálpað mér og þá var ráðningin mjög góð. Kveðjur. Húsmóðir. Draumráðandi þakkar húsmóður lofið en er ekki eins viss um að henni líki ráðningin á þessum draumi. Það er að minnsta kosti vissara með tilliti til þess sem á eftir fer að láta ekki eiginmanninn sjá þetta tölublað af Vikunni. Ráðningin er nefnilega svona: Ekki verður betur séð en þú lendir í ævintýri utan hjónabands. Það verður þér til ánægju og upplyftingar. Að vísu má líka ráða þetta á þann veg að þér muni hlotnast eins konar endurlífgun ástar- eldsins í hjónabandinu en hitt er þó tvírætt gefið í skyn í draumnum. DRAUMSPEKI Besta draumaráðn- ingabókin, sem fáan- leg er. Hún byggir á draumaráðningum Cyprianusar og Sybille. Lófalestur er gömul vísindagrein. í bókinni er einnig að finna kennslu í lófa- lestri. Eins og allir vita taka' dómstólar fingra- för, sem afgerandi sönnunargagn, því engar tvær hendur eru eins, svo það má lesa ýmislegt í lófa fólks. Skemmtileg bók, sem fœst í nœstu bókabúð. Verð kr. 494,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.