Vikan - 11.07.1985, Blaðsíða 56
^ ^^ósturinn
AIRMAIL
PAR AVION
Tungu-
málanám
Kœri Póstur.
Mér datt í hug að skrifa
þér því ég veit eiginlega ekki
hvert ég á að snúa mér. Ég
hef mikinn áhuga á
tungumálum og langar til
þess að fara út og komast í
málaskóla. Ég hef til dœmis
áhuga á Englandi eða
Frakklandi eða einhverjum
skóla þar sem ég get lœrt
ensku og frönsku og kannski
fleiri tungumál. Ég vil ekki
fara á neitt sumarnámskeið
og ég er bara 17 ára og ekki
með stúdentspróf þannig að
ég fer ekki í neinn háskóla.
Ég er búin með einn bekk í
fjölbraut. Eru einhverjir
svona skólar starfandi fyrir
útlendinga á veturna ? Hvert
geturðu bent mér á að leita ?
Meö bestu þökkum fyrir
hjálpina.
Ein sem hefur áhuga fyrir
málum.
1 Englandi, Frakklandi, Sviss og
víöar eru starfandi góöir skólar
eins og þú hefur í huga. Besta
ráðið er aö leita til sendiráða
Bretlands og Frakklands og
svissneska ræðismannsins. Einnig
hafa ferðaskrifstofurnar upplýs-
ingar um marga málaskóla sem
starfa einnig á veturna.
vandrœðum. Ég er búin að
vera hrifin afstrák í rúma 3
mánuði en ekkert gengur.
Vinkona mín er systir þessa
stráks þannig að við
þekkjumst alveg nógu vel,
alltaf að djóka hvort við
annað og ég er alveg að
deyja en þegar hann er
svolítið fullur þá talar hann
helmingi meira við mig.
Hann er 17 en ég 15, að
verða 16 ára. Heldurðu að
hann sé eitthvað hrifinn af
mér ? Ég vona að þú viljir
birtaþetta bréfog svara.
Ein í vandrœðum.
Hann er ef til vill feiminn,
strákurinn, og þaö getur verið
skýringin á því að hann er
fjörlegri í framkomu fullur en
edrú. En það segir litlar sögur um
raunverulegar tilfinningar hans í
þinn garð. Pósturinn heldur aö
þaö væri rétt af þér að reyna
hreinlega ákveðið við hann þegar
gott tækifæri gefst, til dæmis biðja
hann aö dansa við þig ef þið eruð á
baili eða í partíi þar sem dansað er,
eða setjast svolítið þétt upp að
honum. Beittu þínu kvenlega
innsæi við þetta, vertu ákveðin og
hæfilega tælandi en ekki of ýtin.
Það er hreint ekki ósennilegt að
hann sé eitthvað að spá í þig en
þori ekki að taka af skarið og þá er
ágætt að þú gerir það. Þú verður í
það minnsta að sjá hvað gerist því
ekki er betra að kveljast af ást og
óvissu, eða hvað?
Hrifinaf
bróður vin-
konu minnar
og alveg að
deyja
Kœri Póstur.
Ég er hér í miklum
Frankie
Yndislega hjálparhella!
Viltu gera mér þann
greiða að birta heimilisfang
hljómsveitarmeðlima hinnar
frábœru hljómsveitar
Frankie Goes to Hollywood
og líka heimilisfang aðdá-
endaklúbbs þeirra í Bretlandi
ef einhver er. Viltu líka vera
svo œðislegur að láta plakat
af þessari œðislegu hljómsveit
fylgja blaðinu einhvern tíma.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtingu ef þú birtir
einhvern tíma þetta fárán-
lega bréf.
Einn af
Frankieaðdáendum.
Pósturinn veit aldrei heimilis-
föng hljómsveitarmeðlima en
getur hins vegar gefið þér
utanáskrift aðdáendaklúbbsins. í
klúbbnum gætir þú svo ef til vill
fengið heimilisföngin.
Frankie Goes to Hollywood
P.O. Box 160
Liverpool LBG 8 BT
England
Pósturinn ræður því miður engu
um plakötin en beitir áhrifum
sínum eftir megni.
Nick Rhodes
og Duran
Duran eina
ferðina enn
Kœri Póstur.
Ég hef ekki skrifað áður
þannig að ég vona að þú
birtir bréfið.
Spurningar um Nick
Rhodes:
1. Hverjir eru uppáhalds-
litirnir hans ?
2. Hver eru áhugamál hans ?
3. Hverjar eru uppáhalds-
hljómsveitirnar hans ?
v
4. Hvað finnst honum besta
lagið með Duran Duran?
5. Er möguleiki að þið getið
birt plakat með Nick Rhodes
eða Duran Duran ?
Nokkrar spurningar um
Duran Duran:
1. Hvenœr var hljómsveitin
stofnuð ?
2. Hvað hafa komið út
margar plötur með henni?
3. Hvað heita plöturnar sem
hún hefur gefið út?
Jœja, nú verð ég að fara
að hœtta en gerið það, birtið
þið bréfið.
M.G.
1. Það ku vera bleikt og blátt.
2. Myndlist, sér í lagi ljósmyndun,
og hann hefur meðal annars gert
ljósmyndabók með afstrakt
polaroid-myndum. Djúpt í brjósti
hans býr þrá eftir að verða kvik-
myndaleikstjóri.
3. David Bowie, Roxy Music,
ABBA, Chic og Yellow Magic
Orchestra.
4. Ja, nú rakstu Póstinn á gat. Veit
það sem sagt ekki.
5. Það er möguleiki.
Svör við spurningum um Duran
Duran:
1. John Taylor og Nick Rhodes
munu hafa stofnað hljómsveitina
ásamt Simon Colley og Steven
(Tin Tin) Duffy árið 1978. Síðan
hættu tveir þeir síðarnefndu og
Roger og Andy Taylor gengu í
hljómsveitina og síðast Simon Le
Bon 1980.
2. og 3. Stóru plöturnar eru fjórar
enn sem komið er, Duran Duran
1981, Rio 1982, Seven and the
Ragged Tiger 1983 og hljómleika-
platan Arena 1984. Litlar plötur
eru eitthvað á annan tuginn og of
langt mál að telja þær upp hér.
5fc Vikan 28. tbl.