Vikan


Vikan - 11.07.1985, Blaðsíða 51

Vikan - 11.07.1985, Blaðsíða 51
dásamlega settleg í honum. „Þú ert pen og prúð eins og vera ber, alveg eins og dama,” sagði Charles í viðurkenningar- skyni þegar hann hjálpaði henni upp í sportbílinn. "íllinn stansaði með háu ískri í steinlögðum garði rétt fyrir utan Epernay. Þau gengu inn í gamla byggingu sem nú var notuð sem skrif- stofa. I dimmri, tómri forstof- unni, á meðan þau gengu upp lúnar steintröppurnar upp á rannsóknarstofuna, sagði Charles: , .Kampavínsfyrirtæki reynir að framleiða vín sem er alltaf eins á bragðið og jafnt að gæðum. Vegna þess að veður- farið er svo mismunandi og hver uppskera annarri ólík er aðeins hægt að ná þessu með blöndun.” Hann þagnaði og opnaði dyr með hvítmálaðri hurð. ,,Nú hittir þú mikilvæg- asta starfsmanninn í öllum kampavínsfyrirtækjum: blönd- unarmanninn minn.” Hann vísaði henni inn. ,,Það er ekki hægt að blanda kampavín í vél- um. Hjá góðu fyrirtæki verður að vera góður blöndunarmað- ur, orðstír alls fyrirtækisins er undir tungunni, augunum og nefínu á honum kominn. ’ ’ Þau gengu inn í tandur- hreina rannsóknarstofu. Fyrir framan röð af tréstólum stóðu nokkrir spýtubakkar. Nokkrar ómerktar flöskur stóðu á tré- borðinu á miðju gólfinu. „Reykingar bannaðar,” stóð á veggnum. Þettavirðist óendan- lega leiðinlegt ennþá, hugsaði Maxín þegar hún var kynnt fyrir vambmiklum manni með raunamætt andlit, fjólublátt eins og kambur á kalkúnhana. Kjallarameistarinn bauð þeim hátíðlega glas af kampa- víni sem ekki var af úrvalsár- gangi. Maxín þakkaði honum virðulega eins og hæfði þessari nýju stöðu hennar og Charles leiddi hana aftur niður stigann og eftir marmaraflísalögðum gangi í áttina að dimmum for- salnum. unum. ,4 llt í einu þreif hann í úlnliðinn á Maxín og dró hana inn í dimmt skot undir stigan- um. Hann hneppti með hröð- um handtökum frá bleika jakk- anum, stakk báðum höndum inn undir blúndubrjóstahald- arann og stöðvaði skelfingaróp hennar með munninum. Hún fann tunguna í honum þrýsta sér upp að hennar. Svo dró Charles sig til baka og sagði venjulegri röddu: „Fyrst er venjulega tappað á flöskur í lok apríl og þá bætum við út í svo- litlu af reyrsykri til þess að setja á stað seinni gerjun.” Hann tók að kyssa á henni geirvört- urnar. Maxín varð máttlaus en þegar hún tók að umla af vel- líðan dró Charles hendurnar snögglega burtu og hneppti jakkanum hennar hratt upp eins og þjónustustúlka. Maxín var máttvana af þrá og hvíslaði: „Þú mátt ekki, þú mátt alls ekki. . . gera svona lagað.” En hún var ekki sérlega sannfærandi. Charles tók í höndina á henni, leiddi hana niður fleiri steinþrep og sagði hátt: „Það er við seinni gerjunina sem kampavínið fær gosið. Gosið er í raun réttri loft. Þess vegna þarf að vera góður korktappi. Hann hélt áfram að láta móðan mása og dró hana undir stigann þegar þau voru komin niður. Þar hélt hann henni upp að sér og þreifaði með hinni hendinni undir pilsið hennar og reif í nærbuxurnar. , ,Úr þeim! ’ ’ tautaði hann. „Charles, þú ert genginn af vitinu. Einhver gæti séð okkur,” mótmælti Maxín. „Úr!” skipaði Charles og togaði harkalega í blúnduna. Maxín mjakaði sér taugaóstyrk úr buxunum og reyndi að taka upp gula blúnduna en Charles leyfði henni ekki að beygja sig niður. „Ég læt þig ekki komast upp með að verða að einhverri siðprúðri greifafrú sem hefur stöðugar áhyggjur af hvað öðru fólki finnst, eins og systur mínar,” sagði hann. Cf íðan stirðnaði hann upp þegar hann heyrði fótatak nálgast. Maxín lokaði augun- um og beið auðmýkingarinnar! Fótatakið kom nær og þagnaði svo. Síðan heyrði hún hurð opnast og lokast með skelli. Charles losaði takið. Maxín var fljót að beygja sig niður, taka upp nærbuxurnar sínar og troða þeim í veskið sitt. An þess að segja orð tók Charles í handlegginn á henni, dró hana í flýti í átt að lyftunni innst í forsalnum og sagði eðlilegri röddu: „Ég vona að þér verði nógu hlýtt. Ég varaði þig við því í gær að það væri kalt í kjallaranum. Á ég að ná í káp- una þína út í bíl?” Unglingur í hvítum samfest- ingi var fyrir aftan þau og hent- ist fram til þess að opna járn- grindina á tveggja manna lyft- unni. „Nei, nei, Charles, láttu ekki svona,” sagði Maxín óstyrkri röddu til þess að láta þennan kurteisa dreng heyra að allt væri eðlilegt þegar hann lokaði grindinni fyrir aftan þau. Charles ýtti á grænan hnapp, litla lyftan hrökk af stað niður og eins og Maxín hafði hálfvegis átt von á var höndin á honum komin undir pilsið hennar. Lyftan mjakaðist niður með rykkjurn. Hin höndin á Charles kreistii berar rasskinnarnar á henni, bakhlutinn á pilsinu hennar*1 var fast upp við lyftuvegg- inn. Hún myndi aldrei ná þessum krumpum úr, hugsaði Maxín með sér, það tæki tvo tíma að strauja það. „Þar til Dom Perignon kom fram á sjónarsviðið 1668 var flöskunum lokað með límtöpp- um sem vættir voru í ólífuolíu og vitanlega voru það ekki loft- þéttir tappar,” útskýrði Charles grafalvarlega. Ö, guð, hún gat ekki hugsað um neitt nema fingurna á honum. Nú tæki hún frekar áhættuna á að einhver kæmi að þeim en láta hann stoppa. Charles hélt áfram eins og hann væri að spjalla við móður sína. „Snilld- arhugdetta Dom Perignon var sú að bleyta korkbút til þess að gera hann eftirgefanlegri og troða honum síðan niður í flöskuhálsinn.” Maxín hrökk við og titraði þegar hann hélt áfram: „Korkurinn lokaði flöskunum og kom í veg fyrir að loftið læki út.” g> O^C/vfl " yftan nam staðar með snöggu en vægu skrölti. Charles ýtti upp járngrindinni. „Þrýstingurinn innan í kampa- vínsflösku er sá sami og í dekkjunum á rútubílum. . . svo þú sérð hvað korktappinn skiptir miklu máli.” Maxín staulaðist út og slétti úr pilsinu. Hún var andstutt og óstyrk þar sem hún gekk eftir kjallaranum, fram hjá þúsund- um flaskna sem lágu á hvolfi í grindum upp við fölgrænan krítarvegginn. Charles bandaði annarri hendinni í áttina að snyrtilegum, gljáandi röðun- um, litlu, grænu hermönnun- um í veldi hans. „Við látum flöskur með blönduðu víni vera í kjallaranum í tvö ár. Framhald í næsta blaði. ^ i 28. tbl. Vikan si
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.