Vikan - 11.07.1985, Blaðsíða 34
Auðvelt reynist að finna leiðtogann í hópi vervet-apa. Hann er mest ógnandi, neyðir hina til hlýðni og sigrar í flestum slagsmálum innan hóps-
ins. Verið getur að hann sé háður öðrum karlöpum.
Efna-
sambönd
og
vinsældir
Apaköttur apaspil... Menn og apar eru líkir að því
leyti að þeir ráðríku hafa að líkindum öðruvísi
efnastarfsemi en þeir hlýðnu.
Stjórnarmenn í skólafélaginu
eiga ef til vill eitthvaö sameigin-
legt með vervet-öpum. Jafnhliöa
hækkun í þjóðfélagsstiganum fer
aukiö magn af efnasambandi sem
verkar á heilann og aðra hluta
taugakerfisins.
Ráðríkir apar hegða sér öðru-
vísi en þeir undirgefnu. Til dæmis
eyðir leiðtogi vervet-apahóps tals-
veröum tíma í að hafa gát á hættu-
merkjum í umhverfinu en aðrir
apar í hópnum gefa slíkum hlutum
minni gaum. Hópur vísindamanna
við læknadeild Kaliforníuháskóla í
Los Angeles hefur komist aö raun
um að það er einnig líkamlegur
munur á öpunum. Ráðríkir karl-
apar hafa tvöfalt meira magn af
serótóníni í blóðinu heldur en
undirsátarnir. Þetta efnasam-
band, serótónín, er eitt af þeim
sem flytja taugaboö, það greiðir
fyrir starfsemi taugakerfisins.
Þótt þetta efnasamband orsaki
ekki ráðríka hegðun gefur magn
serótóníns í blóðinu til kynna hve
mikið einstaklingurinn hneigist til
slíkrar hegðunar.
Eitt af því merkilegasta sem
rannsóknarhópurinn uppgötvaði
var að serótónín-magn í blóðinu
eykst eftir því sem apinn klifrar
upp í samfélagi sínu. Ef ráðríkur
api er til dæmis tekinn burt frá
sínum hópi minnkar serótónín í
blóöi hans. Þegar nýr leiötogi
tekur við eykst serótónínið hjá
honum og nær sama stigi og hjá
öðrum ráðríkum öpum á tveim
vikum.
Rannsóknarmennirnir fundu
ennfremur út að hegðun hinna
apanna hefur áhrif á það hve
mikiö serótónín-magnið eykst hjá
hinum stjórnsama apa. Ráðríkur
api, sem settur var í herbergi með
spegilrúðu sem hann sá í gegnum
en hinir aparnir ekki, hélt áfram
að hegða sér á ógnandi hátt en
fékk engin viðbrögö frá hinum.
Þar sem hann hafði engin áhrif
lækkaði serótónín-magnið í blóði
hans. Sama skeði þegar allir karl-
apar voru teknir burt úr hópnum
þannig að leiðtoginn var einn eftir
með kvenöpum og ungum. Af
þessum ástæðum komust vísinda-
mennirnir að þeirri niðurstöðu að
þetta efnasamband réðist af sam-
bandi milli karla og ennfremur
væri þetta atferliskerfi háð þeirri
svörun sem verður á hverjum
tíma. Svo viröist sem efnastarf-
semin sé önnur hjá kvenöpum,
serótónínið tengist öðrum þáttum
atferlis þar.
Vísindamennirnir könnuðu líka
hvort þennan mun á magni af
efnasambandi væri að finna í blóði
kvendýra og hegðun þar af
leiðandi.
Það var líka grennslast fyrir
um hvort efnismunurinn á inni-
haldi efna væri meiri hjá íþrótta-
stjörnum. Rannsóknarhópurinn
mældi serótónín-breytingar í
blóðinu á jafnöldrum sem voru í
forystu í skólalífinu.Þeir voru
flestir með hærra serótónín-magn
í blóðinu.
Niöurstaða vísindamannanna
er sú að við erum aö öllum
líkindum líkamlega næmari fyrir
umhverfinu en flesta grunaöi.
Breytt umhverfi skapar nýtt
sálarástand og þaö breytir aftur
hegðun okkar.
34 Víkan 28. tbl.