Vikan - 11.07.1985, Qupperneq 37
I
að gera Dead or Alive fræga með
tilheyrandi blaðaviðtölum og sjón-
varpsþáttum en því vildi Burns
ekki taka þátt í og var ástæðan sú
að hann hataöi lagið og vildi ekki
að sín yrði minnst fyrir þaö.
Vegna þessa fékk hann músík-
blöðin á móti sér enda tók það You
Spin Me Round um þrjá mánuði aö
komast inn á topp 40 listann í Bret-
landi, og vill Burns meina að það
sé stanslausri spilamennsku
hljómsveitarinnar í ýmsum
klúbbum úti um landið að þakka.
Peter Burn§ er ákaflega annt
um feril sinn og vill ekki fara eftir
þeim reglum sem plötufyrirtæki
hans setur honum, hann vill ráða
sér sjálfur og vill komast á
toppinn á eigin skilmálum.
Bæði til karla og kvenna
Pete Burns þykir ansi kjaftfor
og má segja að hann hafi komist í
blöðin fyrst fyrir það, hann sagði
t.d. að Helen Terry, hin feitlagna,
fyrrum söngkona Culture Club,
væri „fjöldi”. Sökum þessa hefur
verið grunnt á því góða með
honum og Boy George, enda hefur
Burns verið óhræddur að senda
Gogga tóninn. Burns segir að Boy
George hafi bara verið að stæla
sig í byrjun, bæði í klæðaburöi og
söng. Nú, einnig lét hann þau orö
falla aö hakan á Ldonel Ritchie
væri eins og stra ubretti.
Hvað um það, lagið Lover
Come Back to Me fylgdi næst á
eftir You Spin Me Round og gerði
þaö sömuleiðis mjög gott og nú er
bara að sjá hvort stóra platan,
Youthquake, mun auka hróður
Dead or Alive.
Pete Burns er, eins og margir
aðrir popparar, all sérkennilegur
útlits, reyndar er maðurinn alveg
svakalega kvenlegur og kemur
oftar en ekki fram klæddur dýr-
indis fallegum kjólum og veröum
mörgum manninum oröfall þegar
honum skilst að þessi ljómandi
huggulega mannvera er ekki
kvenkyns, og aö sjálfsögðu hefur
Burns sagt frá því að hann sé bæði
til karla og kvenna, en hvaö sem
því líður er hann hamingjusam-
lega giftur ungri konu, Lynn aö
nafni, svo að honum er nú ekki alls
varnað.
Hér er ein teiknuð mynd lesenda. Það er Simon Le Bon sem horfir
einarður i augu þér, lesandi góður. Teiknarinn heitir Birta Dögg
Birgisdóttir.
)
28. tbl. Víkan 37