Vikan - 11.07.1985, Qupperneq 38
Þegar andinn er reiðubúinn
en holdið er slappt
Áttundi hver íslenskur karlmaður hefur að
líkindum reynslu af getuleysi. Dugleysi í kyn-
lífi veldur einstaklingnum hugarvíli og hann
gerir illt verra með því að segja engum frá.
Flestir geta nefnilega fengið árangursríka
aðstoð.
Flestir karlmenn veröa einhvern
tíma fyrir því áfalli aö upplifa tíma-
bundiö getuleysi. Hann og hún eru bæöi
reiöubúin, komin í bóliö og þá vill hann
skyndilega ekki upp. Karlinum stend-
ur ekki eöa limurinn helst ekki stinnur.
Flestum veröur þetta einstætt áfall,
leiðindaatvik af því aö allt gengur aö
óskum næst þegar reynt er.
En — áttundi hver karlmaður þarf
aö glíma viö þennan vanda um lengra
skeið, sumir jafnvel alla ævi. Nærri
lætur aö um 2000 íslenskir karlmenn
séu ólæknandi getulausir. Fyrsta
slappleikakastið veldur ýmsum svo
miklu áfalli aö þeir þurfa sífellt aö
sanna mátt sinn og megin. Aörir reyna
af veikum mætti aö sýna fram á ágæti
sitt en þeim mun meir sem þeir
rembast þvi torfengnari reynast
stinna og sáölát.
Öryggisleysið læsir sig um karl-
manninn þegar hann veröur var viö
stinnuleysiö, hvort sem þaö kemur
eins og þruma úr heiöskíru lofti eöa í
kjölfar langvarandi veikinda. Hann
getur ekki faliö þróttleysiö, líkt og
kona getur duliö áhugaleysi sitt.
Líkamshlutinn, sem ætíð hefur veriö
tákn karlmennskunnar, bærir ekki á
sér og eigandinn fyllist óhug.
Ástæflurnar
Læknar og aörir sérfróöir menn hafa
um langan aldur velt fyrir sér ástæö-
um stinnuleysis hjá karlmönnum og
sýnist sitt hverjum. Annars vegar eru
þeir sem vilja rekja ástæöuna til lík-
amsstarfsemi og segja aö veilur í
henni valdi hinum hangandi limum.
Þeir telja aö getuleysi megi rekja til
ónógs blóöþrýstings og gallaörar
hormónastarfsemi.
Hins vegar telja aörir sérfræöingar
aö stinnuleysi flestra stafi frá hug-
leysi, þaö sé óttinn viö aö bregöast sem
valdi því aö allt bregst. Raunar hefur
tækninni fleygt þaö mikiö fram á síö-
ustu misserum aö núna er hægt aö
skilja hafrana frá sauðunum meö
mælitækjum. Staöreyndin er nefnilega
sú aö öllum heilbrigöum karlmönnum
rís hold þrisvar til fimm sinnum á
nóttu hverri, stundum aöeins nokkrar
mínútur en annars allt að einni klukku-
stund. Sá sem stendur sig á þann hátt
eölilega í svefni getur aðeins lokaö fyr-
ir blóöstreymiö meö hugsunum og til-
finningum, vegna þess aö taugar og
æöar eru greinilega í lagi.
Þvagfærafræðingar og aörir læknar
sérfróðir um kynlíf leggja oft karl-
menn sem þjást af getuleysi inn á
sjúkrahús til limgátar. Meö mælitækj-
um er fylgst meö limnum og atferli
hans aö næturlagi. Sumir fá jafnvel
sérstakan stinnumæli meö sér heim til
aö fylgjast með möguleikunum sjálfir.
Líkamlegt
Þeir sem hafa gengist undir skurö-
aögerö í kviðarholi, fengiö hjartaáfall
eöa gíma við truflanir á æðakerfi eiga
á hættu aö missa getuna. Taugar eöa
æöar sem tengjast tippinu geta veriö
skaddaöar meö þeim afleiöingum aö
þaö rís ekki. Slagæöarnar sem liggja
niöur í kviðbotninn og kvíslast út í fót-
leggina geta veriö svo illa á sig
komnar aö blóðflæðið nægi ekki þegar
á rúmstokkinn er komiö. Langoftast er
um aö ræöa miðaldra eöa eldri karl-
menn sem hafa reykt mikinn hluta æv-
innar.
Hægt er aö hreinsa þessar slagæöar
aö innan, laga þær meö bláæðabútum
eöa jafnvel koma fyrir leiöslum úr
gerviefni. Algeng er sú aöferö aö auka
þrýsting í reöurbolnum meö því aö
tengja saman slagæö sem flytur blóöiö
til tippisins og bláæö sem flytur þaö til
baka. Þrýstingurinn frá slagæöinni
hindrar aö blóöstreymi frá tippinu sé
meö eölilegum hætti þannig aö þegar
limurinn rís á annaö borö helst hann
stinnur lengur en ella.
„Sú aöferö er einföld og hætta á
sýkingu minni en þegar limurinn er
styrktur meö innleggi,” sagöi vestur-
þýski æöasérfræöingurinn Dirk Loose
viö blaðamann tímaritsins Stern.
„Þessi innlegg eru síöasta hálmstráiö
þegar allt annaö hefur veriö reynt og
sýnt þykir aö æöar og taugar duga ekki
lengur.”
Algengasta gerö af innleggjum eöa
hjálpartækjum nefnist Jónasar-inn-
legg. Þaö eru tvær stoðir úr sílikóni
meö innbyggðum silfurvír sem rennt
er inn í reöurbolinn. Tippið er alltaf
jafnstórt en þaö er hægt aö sveigja þaö
Lélegt blóðflœði orsakar oft truflanir á getunni. Þessar röntgenmyndir af 58 ára
gömlum karlmanni sýna hvað getur gerst. Vinstra megin sást hvernig slagæðarnar i
kviðbotni voru að hluta til stiflaðar (pilurnar benda á stíflurnar). Blóðflæðið var svo
lálegt að maðurinn gat aðeins gengið 50 metra i einni lotu. Oftast hafa langvarandi
reykingar orsakað þetta ásigkomulag og þar með getuleysi.
Hægri myndin sýnir sama karlmann eftir að skurðlæknir hafði komið fyrir æðum
úr gerviefni í kviðarholinu. Blóðflæði var aftur eðlilegt — og limurinn hress á ný.
Getan minnkar með aldrinum. I handbók þýskra skurðlækna er þróunin hjá
körlum á aldrinum 30—70 ára sýnd með mismunandi stöðu á kýrhölum.
38 Vikan 18. tbl.